Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • App fyrir allt, Studio Ghibli, Sinéad O'Connor og Repeat
    Twitter er orðið að X. Þetta ákvað Elon Musk. X getur staðið fyrir hvað sem er og á X á að vera hægt að gera hvað sem er. Það er þó snúið að skipta ekki bara um nafn heldur vörumerki og stefnu og í þættinum í dag er rætt við Írisi Mjöll Gylfadóttur framkvæmdastjóra vörumerkjastofunnar Brandr og Lenyu Rún Töhu Karim, varaþingkonu og tístara um þessar skyndilegu og óvæntu breytingar.
    Við rifjum líka upp umfjöllun um japanska kvikmyndagerðamanninn Hayao Miyazaki og teiknmyndaver hans Studio Ghibli.
    Í síðari hluta þáttar hlustum við á tónlist Sinéad O'Connor sem féll skyndilega frá á dögunum, langt fyrir aldur fram og tónlistarkonan Brynja Bjarnadóttir segir frá plötu sinni Repeat sem kom út á bleikum vínil í dag.
    1 hr 55 min
  • Gógó Starr, Bræður í Kristi, MTV og Kurt Cobain
    Við ræðum við Sigurð Starr Guðjónsson sem á sér hliðarsjálfið Gógó Starr, sem er ein ástsælasta dragdrottning landsins. Í seinni hluta þáttar ræðum við við ungan sviðshöfund, Melkorku Gunborg Briansdóttur og flytjum nýtt leikrit eftir hana, Bræður í Kristi, það fyrsta af þremur sem verða flutt hér í Tengivagninum. Leikritin skrifaði hún í skapandi sumarstörfum í Kópavogi. Loks heyrum við um afmælisbarn dagsins, sjónvarpsstöðina MTV og Kurt Cobain.
    1 hr 55 min
  • Nostalgíunautn, Kómedíuleikhúsið, Hjörtur Matthías og Shoplifter
    Í pistli dagsins rifjar Tómas Ævar Ólafsson upp starfsmannapartí í bókabúð þar sem nostalgíunautnir bar á góma og fjallar um verk sem hafði gífurleg áhrif, ekki bara á hann, heldur listamennina sjálfa.
    Við kíkjum líka í heimsókn í Kómedíuleikhúsið í Haukadal í Dýrafirði sem er sennilega afskekktasta leikhús landsins og ræðum við Marsibil G. Kristjánsdóttur og Elfar Loga Hannesson.
    Í síðari hlutanum heyrum við svo samtal myndlistarmannana Hjartar Matthíasar Skólasonar og Hrafnhildar Arnardóttur Shoplifter en hún er fyrirmynd Hjartar sem leit til hennar með stjörnur í augunum. Þau ræða krossgötur, klippikort, lífið og listina.
    1 hr 55 min
  • Söngljóð, skemmtiferðarskip, Mannfólkið breytist í slím og Tjöruhúsið
    Kristín Einarsdóttir Mäntylä syngur í Hörpu á sunnudaginn klukkan 16:00. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Velkomin heim sem veitir tónlistarfólki búsettu erlendis tækifæri á að koma sér á framfæri heima. Með henni leikur Eva Þyri Hilmarsdóttir á píanó og þær kíkja á okkur í fyrri hluta þáttar, við heyrum nokkur lög, veltum söngljóðinu fyrir okkur og þeirri byrði sem hefðin getur verið.
    Í síðari hlutanum förum við út á land, tökum stöðuna á skemmtiferðaskipum á Ísafirði, tónleikum Salóme Katrínar, K.óla og Söru Flindt í Tjöruhúsinu annað kvöld og forvitnumst um jaðartónlistarhátíðina Mannfólkið breytist í slím sem fer fram á Akureyri um helgina.
    1 hr 55 min
  • Barbenheimer, Sagan, Lúsmý klýfur fjölskyldu
    Við rifjum upp pistil Önnu Marsibilar Clausen og förum í ferðalag til að heyra hvernig eldgos hljómar, Barbenheimer er mál málanna þessa dagana, það var söguleg opnunarhelgi myndanna um Barbie og Oppenheimer nú um helgina sem sló ótal sölu og aðsóknarmet víða um heim með einhverjum furðulegum hætti sem vert er að skoða og svo flytur Karl Ólafur Hallbjörnsson okkur pistil um Söguna, með stóru s-i alltumlykjandi sögurnar sem við segjum sjálfum okkur og öðrum.
    Í seinni hluta þáttar förum við til Ísafjarðar. Þar hefur lítil padda klofið fjölskyldu í tvennt. Þeir sem trúa að um lúsmý sé að ræða og þeir sem þvertaka fyrir að svo sé. Við kíkjum í nýtt klifurhús sem er í gömlu skátaheimili, þar eru haldnir AA-fundir á kvöldin, svo að nokkuð einstakur blær er yfir rýminu. Að lokum förum við í hádeginu í Tjöruhúsið og ræðum við smiðinn sem sér um viðhaldið á öllum þessum gömlu byggingum í Neðstakaupstað.
    59 min
  • Geimfarar á Íslandi, delirium lunaris, varúlfar og tíðahringurinn
    Þáttur dagsins er helgaður tunglinu.
    Við veltum tunglförunum og tunglferðunum fyrir okkur hér í fyrri hluta þáttar, ræðum við Ingólf Ásgeir Jóhannesson um æfingar geimfara á Íslandi 1965 og1967, heyrum tungltónlist og söguna af Wernher von Braun, manninum sem fann upp Saturn V flaugina sem kom geimförunum alla leið á áfangastað.
    Í síðari hlutanum eru merking og máttur tunglsins svo í fyrirrúmi, Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda segir okkur frá varúlfum og þjóðtrú tengdri tunglinu, við eldum fyrir ykkur tunglsúpu með hráefni úr kistu Ríkisútvarpsins og ræðum við Heru Sigurðardóttir um tunglathafnir, tíðahringinn og áhrif tunglsins á líðan okkar.
    1 hr 55 min
  • Höggmyndaganga, dánarfregnir, Páll Ivan og Róshildur
    Listasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn og bókmenntaborgin standa á morgun fyrir kvöldgöngu þar sem myndlistakonan Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir segir frá völdum verkum Ásmundar Sveinssonar við Ásmundarsafn og í Laugardalnum. Ingunn segir okkur frá Ásmundi og við heyrum brot úr viðtölum við hann.
    Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir veltir fyrir sér dánarfregnum á tímum ólínulegra miðla í pistli dagsins.
    Páll Ivan frá Eiðum ræðir listina, lífið, kaupmennskuna og sjálfsefann og í síðari hluta þáttarins kemur tónlistarkonan Anna Róshildur í heimsókn en hún gaf á dögunum út stuttskífu sem nefnist v2,2. Platan var samin og tekin upp í Flateyri, á flugvöllum, í kirkju og á dönskum sveitabæ. Við hlustum á þessi nýju lög og hlustum líka á lög með nokkrum tónlistarkonum sem eru í uppáhaldi hjá Önnu Róshildi, Dolly Parton, Rósalía og Ólöf Arnalds.
    1 hr 55 min
  • Ideoscapes, IceDocs, skáldskaparkröfur og íslenskar költmyndir
    Í þætti dagsins hittum við þýsku listakonuna Karin Sanders í Gallerí i8 þar sem sýning hennar Ideoscapes stendur nú yfir. Karin er sennilega nafntoguðust fyrir hugmynd sína um pálmatré í Vogabyggð en á Ideoscapes má skoða nákvæmar eftirmyndir af 12 íslenskum fjöllum.
    Alþjóðlega heimildarmyndahátíðin IceDocs hefst á Akranesi annað kvöld og stendur fram á sunnudag. Yfir 30 myndir verða sýndar en Ingibjörg Halldórsdóttir, einn af stofnendum hátíðarinnar fer yfir dagskránna.
    Karl Ólafur Hallbjörnsson flytur pistil um kröfur lesenda og höfunda skáldskapar til hvers annars og veltir fyrir sér í því samhengi bandaríska rithöfundinum Gene Wolfe, sem þekktur er fyrir krefjandi vísindaskáldskap.
    Í síðari hluta þáttar koma þær Sigríður Regína Sigurþórsdóttir og Harpa Hjartardóttir í Tengivagninn og velta fyrir sér íslenskum költmyndum.
    1 hr 50 min

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.