Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • Nói Síríus, Randonautica, Elja og núll
    Í tilefni aldarafmæli Nóa Síríusar hefur sælgætisframleiðandinn blásið til afmælissýningar í Kornhúsi Árbæjarsafns, við kíkjum við og kynnum okkur sögu hinna og þessa sælgætistegunda.
    Og Kammersveitin Elja er að leggja af stað í langferð um landið - 30 manna sveit - þekkt fyrir líflegan flutning. Við fáum tvo meðlimi sveitarinnar í spjall í Tengivagninum í dag.
    Í seinni hluta þáttarins kemur svo sviðslistahópurinn Marmarabörn í heimsókn, en þau munu ræða um lífið og listina út frá þema dagsins sem er núll.
    1 hr 50 min
  • UngNordisk, Þerapistinn, heimili og forsetakosningar í Póllandi
    Í Tengivagninum í dag verður meðal annars fjallað um bókmenntir, leiklist, tónlist, og óvanaleg heimili. Ræðum við Óðinn Ásbjarnarson, ungan háskólanema, sem býr í þjónustukjarna fyrir eldri borgara. Í ljósi nýafstaðinna forsetakosninga í Póllandi skoðum stöðu samkynhneigðra þar í landi, ræðum við Jacob Vuslky. Maríanna Clara Lúthersdóttir rýnir síðan Þerapistann eftir Helene Flood, og við kynnum okkur fleiri tónskáld sem taka þátt í UngNordisk Musik í Finnlandi í lok sumars. Gestur síðari hluta Tengivagnsins er Viðar Eggertsson, og er þema spjallsins í dag snúningur.
    1 hr 50 min
  • Tónlist og dans, Skjaldborg og upprisan
    Í Tengivagninum í dag er ýmislegt á seyði. Justyna Wilczynska flytur okkur pistil um tónlist og dans, við ræðum við aðstandendur Skjaldborgarhátíðarinnar sem fer fram í byrjun ágúst og Stella Önnudóttir Sigurgeirsdóttir kemur í spjall um listasýningu sem hún opnaði nýlega á Mokka.
    Gestur síðari hluta Tengivagnsins er Hrönn Sveinsdóttir sem ræðir lífið, tilveruna og Bíó Paradís út frá þemanu Upprisan.
    1 hr 50 min
  • Óvenjuleg heimili, litbrigði mannkyns og rætur
    Óvanaleg heimili, litbrigði mannkyns og Svikaskáld eru meðal efnis Tengivagnsins í dag.
    Ragnheiður Gyða Jónsdóttir heldur áfram að skoða litbrigði mannkyns - til sálar og líkama í pistli sínum í dag.
    Við veltum vöngum yfir óvanalegum heimilum, þá sér í lagi heimilum sem fylgja ákveðnum störfum - eins og t.d. starfi húsvarðar eða forstöðufólks af ýmsum toga. Að gefnu tilefni heimsækjum við Árbæjarsafnið en hefð er fyrir því að ráðsmenn safnsins búi í einu húsa þess. Við ræðum við þrjá starfsmenn safnsins sem hafa búið á safninum á einum eða öðrum tíma.
    Í síðari hluta þáttarins fáum við síðan til okkar þrjá meðlimi Svikaskálda Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, Sunnu Dís Másdóttur og Melkorku Ólafsdóttur til að ræða lífið og listina út frá þemanu rætur.
    1 hr 50 min
  • UngNord, litbrigði mannkyns, Dagbók bóksalans, Ó-lykt og innblástur
    Í Tengivagninum í dag förum við um víðan völl. Við fáum að heyra fyrsta innslag sumarsins um þá ungu Íslendinga sem halda á UngNordisk hátíðina í Tampere í ágúst. Tónlistarmaður dagsins er Hildur Elísa Jónsdóttir. Ragnheiður Gyða Jónsdóttir flytur fyrsta pistil sinn um litbrigði mannkyns, til sálar og líkama. Við fáum að heyra í Maríönnu Clöru Lúthersdóttur sem las nýlega Dagbók bóksalans. Þá skreppum við í miðbæinn, á sýninguna Ó-lykt í verslunar- og sýningarrýminu Fischer.
    Gestur seinni hluta Tengivangsins er Rakel Mjöll Leifsdóttir sem ræðir við okkur og velur tónlist út frá þemanu innblástur.
    1 hr 50 min
  • IceDocs, tónlist í heimsfaraldri, Elín Hall og Kaos
    Í Tengivagninum í dag förum við í ferðalag, en á Akranesi er nú að byrja heimildamyndahátíðin IceDocs. Ólafur Arnalds, tónlistarmaður og Bryndís Jónatansdóttir hjá útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar koma í hljóðstofu og ræða stöðu tónlistar í heimsfaraldri. Tónlistarkonan Elín Hall kemur líka í viðtalm en hún gaf nýlegu út sína fyrstu sólóplötu, Með öðrum orðum.
    Elísabet Indra Ragnarsdóttir er gestur síðari hluta Tengivagnsins, en hún ætlar að ræða lífið og listina út frá þemanu Kaos.
    1 hr 50 min
  • Hákarlar, Njála, Barbour jakkinn og bras
    Í Tengivagninum í dag kennir ýmissa grasa.
    Í dag er alþjóðlegur dagur hákarlsins og því sannarlega tilefni til að heyra meira af þeirri fornfrægu skepnu, en elsti núlifandi hákarlinn sem vitað er um er um það bil 400 ára gamall.
    Eiríkur Guðmundsson ræðir við Ármann Jakobsson um hefnd í Njálu, en þetta er síðasta spjall þeirra um Njálu, sem er kvöldsaga Rásar 1 um þessar mundir.
    Jóhannes Ólafsson veltir vöngum um arfleifð Barbour jakkans.
    Í seinni hluta Tengivagnsins kemur listahópurinn Young Inspirational Female Artist Club sem samanstendur meðal annars af þeim Höllu Birgisdóttur, Sigrúnu Hlín Sigurðardóttur, Ragnheiði Maísól Sturludóttur og Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur. Þær ætla að ræða um lífið og listina út frá þema dagsins sem er bras.
    Umsjónarmenn Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Fanney Benjamínsdóttir og Anna Gyða Sigurgísladóttir
    1 hr 50 min
  • UngNordisk musik, Dúplum dúó, Raunvera, Grikkur og Fróði
    Í fyrri hluta þáttarins kíkjum við í heimsókn í Tjarnarbíó þar sem verið er að undirbúa tónleika UngNordisk Musik og ræðum við Pétur Eggertsson, einn aðstandenda tónleikanna.
    Á laugardag fara fram tónleikar í Hörpu undir yfirskriftinni Velkomin heim. Þær Björk Níelsdóttir söngkona og Þóra Margrét Sveinsdóttir víóluleikari sem kalla sig Dúplum dúó flytja þar verk sem samin eru sérstaklega fyrir þær af fjölbreyttum tónskáldum og textahöfundum.
    Við heyrum af nýju útvarpsleikhúsi á Spotify sem nefnist Raunvera sem er hluti af skapandi sumarstarfi Kópavogsbæjar. Þær Inga Steinunn Henningsdóttir og Hólmfríður Hafliðadóttir heimsækja þáttinn og segja nánar frá því.
    Maríanna Clara Lúthersdóttir flytur á næstu vikum pistla um bækur og í dag rýnir hún í skáldsöguna Grikk eftir Domenico Starnone.
    Í seinni hluta þáttarins frumflytjum við nýjan dagskrárlið. Við fáum til okkar heimildarmyndaklúbbinn Fróða sem segir okkur frá sínum reglulegu fundum og merkilegum kvikmyndum. Við ræðum einnig við Helgu Rakel Rafnsdóttur leikstjóra og kvikmyndaframleiðanda.
    1 hr 50 min
  • Tónlistarflutningur, talgreinir, uppruni orða, KOK og skilningur
    Í fyrri hluta Tengivagnsins í dag flytur Justyna Wilczynska okkur pistil um íslenska tónlist og lifandi flutning á tímum samkomubanns.
    Við skreppum í heimsókn í Háskólann í Reykjavík, en þar er unnið að því að þróa raddgervil og talgreini sem skilja og tala íslensku. Jón Guðnason dósent við verkfræðideild og Ragnheiður Þórhallsdóttir, verkefnastjóri hjá mál- og raddtæknideild HR segja nánar frá því.
    Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur flytur seinni pistil sinn þar fjallar hún um uppruna orða og nýyrði. Nú veltir hún fyrir sér nýyrðum í ljóðmáli nokkurra íslenskra skálda, frá Jónasi Hallgrímssyni til Sigfúsar Daðasonar. Um leið beinir hún sjónum að ofnotkun valinkunnra orða.
    Þórunn Gréta Sigurðardóttir, tónskáld, og Kolfinna Nikulásdóttir, leikstjóri, segja frá óperu sem þær eru með í vinnslu, upp úr bókverki Kristínar Eiríksdóttur, KOK, sem kom út árið 2014. Óperan verður sett upp á óperudögum í Borgarleikhúsinu í haust.
    Í seinni hluta þáttarins, eftir fimmfréttirnar fáum við til okkar heiðursgest í hljóðstofu, það er rithöfundurinn og útgefandinn Sverrir Norland. Hann ætlar að ræða um lífið og listina út frá þemanu “skilningur“ og velja tónlist þáttarins.
    1 hr 50 min
  • Þjóðrembingur, feigð, vinn vinn og Morricone
    Í fyrri hluta þáttarins verður fjallað um nýja kynningarherferið Knattspyrnusambands Íslands sem hefur vakið umræður og jafnvel deilur. Þótt margir kunni vel að meta auglýsinguna hefur hún fengið á sig gagnrýni fyrir þjóðrembing og jafnvel bendluð við fasískt myndmál. Fanney spurði Írisi Ellenberger sagnfræðing og lektor á menntavísindasviði HÍ
    Eiríkur Guðmundsson heldur áfram að ræða við Ármann Jakobsson um Njálu, sem er kvöldsagan hér á Rás 1. Í dag ræða þeir um feigð í Njálu.
    Við skellum okkur í Mosfellsbæ, á nýja listasýningu sem stendur yfir í Listasal Mosfellsbæjar. Þar hefur Sara Björk Hauksdóttir myndlistarkona sett upp sýninguna Vinn, vinn, þar sem sjá má málverk og skúlptúra sem hún vann í samstarfi við 21 listamann. 
    Ítalska tónskáldið Ennio Morricone lést í gær á sjúkrahúsi í Rómaborg, 91 árs að aldri. Morricone samdi tónlist við yfir 400 kvikmyndir og ferill hans spannaði tæp sextíu ár. Gunnar Theodór Eggertsson kvikmyndafræðingur rýndi í tónsmíðar tónskáldsins út frá ólíkum kvikmyndategundum í útvarpsþáttunum Meistari Morricone hér á Rás 1. Þættina gerði hann í tilefni níræðisafmælis Morricone í fyrra. Við mog þætti Gunnars vegna andláts tónskáldsins. Við heyrum brot úr einum þætti, en þá má nálgast á menningarvef RÚV, í spilaranum á ruv.is og í hlaðvarpinu.
    1 hr 50 min

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.