Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • Húkka bíl, mannveran, falsanir og staða bókaútgáfu
    Í fyrri hluta þáttarins verður fjallað um útvarpsþættina Úti að húkka bíla. Þar ferðast Huldar Breiðfjörð um landið á puttanum með hljóðnema og kynnist fólki úr öllum áttum og hann kemur í spjall til okkar hér á eftir og segir okkur frá lífinu á vegum úti.
    Karl Ólafur Hallbjörnsson, heimspekinemi við Háskólann í Warwick hefur verið að velta fyrir sér stöðu mannsins í heiminum. Hann klárar í dag pistlaröðina sem hann hóf í Lestinni hér fyrr í vor með pistli um mannveruna.
    Einnig verður fjallað um mörk falsana og raunveruleika og birtingarmyndir fölsunar í nútímanum. Það verður rætt við Gunnþórunni Guðmundsdóttur, prófessor í almennri bókmenntafræði, um áhrif falsana á hversdaginn og framtíðina.
    Í síðari hluta Tengivagnsins verða pallborðsumræður um stöðuna sem upp er komin í íslenskri bókaútgáfu með kaupum Storytel á stórum hluta Forlagsins. Gestir í pallborði verða Óttar Proppé bóksali og verslunarstjóri Bóksölu stúdenta, Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur og Ragnheiður Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Rithöfundasambands Íslands koma til okkar í hljóðstofu ásamt Jórunni Sigurðardóttur dagskrárgerðarmanni á Rás 1.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Fanney Benjamínsdóttir
    1 hr 50 min
  • TÞM, uppruni orða, FjarVera og Bergþóra Snæbjörnsdóttir
    Í fyrri hluta þáttarins verður fjallað um Tónlistarþróunarmiðstöðina, TÞM. Þar hefur verið starfrækt æfingarrými fyrir tónlistarfólk, hljómsveitir og ýmsa listhópa í nær tvo áratugi. Rætt verður við stofnanda miðsvöðvarinnar, Daníel Pollock og tónlistarmennina Þóri Georg Jónsson og Júlíu Aradóttur um rými fyrir sköpun.
    Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur flytur fyrri pistil sinn af tveimur þar þar sem hún veltir fyrir sér tungumálinu og uppruna orða.
    Einnig verður fjallað verður um sýninguna FjarVeru á Listahátíð. Í sýningunni býður hópur fólks með ólíkan bakgrunn gestum að fara um heimili sitt og velta því fyrir sér hvað það þýði að vera til staðar í eigin lífi, að vera virkur, að nota skilningarvitin. Í hverju felst nærvera og hvað er það sem aðskilur og sameinar okkur sem manneskjur? Steinunn Önnu-Knútsdóttir kemur í heimsókn og segir nánar frá sýningunni.
    Gestur Tengivagnsins í síðari hluta þáttarins er Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöfundur. Hún ætlar að ræða lífið og listina og velja áhugaverða list út frá þemanu hafið.
    Umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Jóhannes Ólafsson og Fanney Benjamínsdóttir
    1 hr 50 min
  • Meliae, Þrælar í Njálu og draugahús heilans. Og VHS.
    Í fyrri hluta þáttarins verður rætt við tónlistarkonuna Ingibjörgu Elsu Turchi sem gefur frá sér nýja plötu í byrjun júlí. Ingibjörg hefur verið mjög virk í tónlistarlífinu undanfarin ár og hefur komið fram með mörgum af ástsælustu listamönnum þjóðarinnar. Útgáfutónleikar plötunnar, Meliae verða haldnir í Kaldalóni í Hörpu ásamt hljómsveit fimmtudaginn 2. júlí.
    Ármann Jakobsson heldur áfram spjalli sínu við Eirík Guðmundsson um Njáls sögu, sem er kvöldsaga Rásar 1 um þessar mundir.
    Og Sigrún Margrét Guðmundsdóttir heimsækir þáttinn og segir frá nýlegri doktorsritgerð sinni í íslenskum bókmenntum sem nefnist „Húsið og heilinn. Um virkni reimleikahússins í The Shining og þremur íslenskum hrollvekjum“.
    Í síðari hluta Tengivagnsins kemur uppistandsþríeykið VHS í heimsókn en það skipa þeir Stefán Ingvar Vigfússon, Vilhelm Neto og Hákon Örn Helgason. Þeir ræða lífið og listina út frá þemanu "samgöngur" og velja viðeigindi tónlist.
    Umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Jóhannes Ólafsson og Fanney Benjamínsdóttir
    1 hr 50 min
  • Samfélög og einfarar
    Í þættinum í dag heyrum við að af hópi karlmanna sem telja kynlíf til mannréttinda og að á þeim sé markvisst brotið, því þeir séu sviknir um þessi réttindi. Arnór Steinn Ívarsson segir okkur frá Incel-samfélaginu sem fyrirfinnst á Internetinu.
    Starkaður Sigurðarson og Auður Lóa Guðnadóttir senda okkur pistil frá Langanesi. Í dag segja þau söguna af Drauma-Jóa, sem öðlaðist frægð fyrir að dreyma staðsetningu hluta sem höfðu týnst.
    Ingunn Ásdísardóttir, formaður Reykjavíkurakademíunnar, segir frá starfsemi akademíunnar og fullveldismaraþoni sem hún stendur fyrir á laugardaginn.
    Og við kíkjum í heimsókn til Ólafs Elíassonar, myndlistarmanns, og spjöllum við hann um matargerð og hvernig listsköpunin fer fram á fjölmennri vinnustofu hans í Berlín.
    Í lok þáttar minnumst við Arethu Franklin, sem lést í dag, 76 ára að aldri, og spilum lagið I'm on top of the world.
    1 hr
  • Manga, höggmyndir og heimilisstörf
    Í Tengivagninum í dag verður rætt við Gunnellu Þorgeirsdóttur, lektor í japönsku, um Manga, hina sérjapönsku teiknimyndasöguhefð.
    Við förum í Ásmundarsafn þar sem Matthías Rúnar Sigurðsson undirbýr nú innrás með ýmsum furðuverum sem hann stillir upp við hlið eldri verka Ásmundar Sveinssonar. Við ferðumst líka aftur í tímann og heimsækjum Ásmund sjálfan í fylgd með Matthíasi Jóhannessen, árið 1964.
    Í pistli sínum í dag fjallar Nanna Hlín Halldórsdóttir, heimspekingur, um heimilisstörf og veltir því upp hvort mögulegt sé og æskilegt að meta þau til launa.
    57 min
  • Mannfræði í náttúru og listum
    Í þessum þætti Tengivagnsins erum við á mannfræðilegum slóðum, sem liggja víða.
    Við heyrum af Okjökli, sem missti jöklatitil sinn fyrir þremur árum, en nú hafa tveir bandarískir mannfræðingar gert heimildamynd um jökulinn og velta þar meðal annars fyrir sér persónuleika fjallsins Oks.
    Guðrún Gígja Georgsdóttir, mannfræðingur, heimsækir þáttinn og segir frá ritgerð sinni um tvískinnung Íslendinga í garð listarinnar og þá helst myndlistarmanna.
    Maríanna Clara Lúthersdóttir fjallar um skáldsöguna Sæluvímu, sem segir frá ævintýrum mannfræðinga í Nýju-Gíneu.
    Og við rifjum upp brot úr þættinum Við sem heima sitjum, í stjórn Svövu Jakobsdóttur frá árinu 1960, en hér er það Vigdís Finnbogadóttir sem fjallar um siði ýmissa Evrópulanda þar sem hún hefur dvalið.
    57 min
  • Konur og kynþáttahyggja
    Tengivagninn, 13. ágúst 2018:
    Áslaug Torfadóttir fjallar um sjónvarpsþáttaröðina Sharp Objects úr smiðju HBO.
    Við sökkvum okkur ofan í Íslendingasögurnar og leitum þar uppi mögulega kynþáttahyggju með Arngrími Vídalín
    Diljá SIgursveinsdóttir segir frá tónleikverkinu Bréf Halldóru Guðbrandsdóttur - 1625 - Tvær konur, sem tvinnar saman bréf sem Halldóra sendi dönskum stjórnvöldum árið 1625 við elstu óperu eftir kventónskáld, Francescu Caccini, sem var frumflutt þetta sama ár.
    Og við rifjum upp brot úr útvarpsþættinum Úr Eiríksbyggð á Grænlandi, frá árinu 1960. Sveinn Einarsson hafði umsjón með þeim þætti.
    Umsjónarmenn: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Kristján Guðjónsson
    1 hr
  • Rúmenskir villimenn og upprifjun
    Í föstudagsþætti Tengivagnsins er venju samkvæmt litið yfir liðna viku og ólíkar raddir tengdar saman. Á þessum brautarpalli vikunnar er meðal annars rætt um um heilagleika og pólitíska rétthugsun, regnbogaþráð og jarðskjálfta, vestur-íslendinga og torfbæi.
    Ásgeir H. Ingólfsson er á Karlovy Vary kvikmyndahátíðinni í Tékklandi og fjallar í dag meðal annars um sigurmyndina á hátíðinni, "Mér er sama þó að sagan muni dæma okkur sem villimenn," sem kemur frá Rúmeníu, og nýjustu mynd bandaríska leikstjórans Spike Lee, BlacKkKlansman.
    1 hr

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.