Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • Íslendingar; þjóðin, ræturnar og nesin
    Regnbogaþráður nefnist ný leið í gegnum grunnsýningu Þjóðminjasafnsins, þar sem varpað er nýju ljósi á sýninguna og hún skoðuð með hinsegin gleraugum. Ásta Kristín Benediktsdóttir, íslenskufræðingur, segir okkur allt af létta.
    Við sláum á þráðinn til Borgarness þar sem verið er að undirbúa listahátíðina Plan-B, Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir segir okkur allt af létta.
    Maríanna Clara Lúthersdóttir rýnir í spennusöguna Marrið í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur.
    Starkaður og Auður Lóa færa okkur fréttir af Vestur-Íslendingum sem hafa ratað út á Langanes
    við rifjum upp frásögn af Sigurði Júlíusi Jóhannessyni, Vestur-Íslendingi (1868-1956). Stefán Jónsson, rithöfundur og barnakennari, segir okkur frá honum. Brot úr þættinum Þjóðlegt efni fyrir ungt fólk frá árinu 1963.
    og Ragnar Árni Ólafsson, stjórnarmeðlimur UNM (Ung Nordisk Musik) segir okkur frá tvennum tónleikum sem fara fram í Tjarnarbíói um helgina, en við heyrum einnig brot úr tónverki Báru Gísladóttur, Devotchka watch her garbles.
    1 hr
  • Torfbæir og mammviskubit
    Í Tengivagninum í dag fjallar Nanna Hlín Halldórsdóttir, heimspekingur, um mammviskubitið, samviskubit mæðra á tímum stöðugt fleiri og fræðilegri uppeldisstefna.
    Við fræðumst líka um samsýninguna Torf sem opnar í Gróttu í dag. Við ræðum við sýningarstjórann Annabelle von Girsewald um áhuga hennar á torfhúsum. Ólöf Nordal segir frá verki sínu á sýningunni, og Gunnhildur Hauksdóttir útskýrir hvernig hún nýtir jarðskjálftamælingar í nýju hljóðverki í Gróttuvita.
    Við heyrum einnig brot úr sjónvarspættinum Saga og samtíð frá árinu 1985 en þar segir Hörður Ágústson, listmálari og fornhúsafræðingur, frá þróun íslenska torfbæjarins.
    1 hr
  • Helgispjöll og gamanþættir
    Í Tengivagninum í dag verður rætt við Sólveigu Önnu Bóasdóttur, guðfræðing, um heilagleika og helgispjöll, en þessi hugtök hafa verið í umræðunni eftir umdeildan gjörning Snorra Ásmundssonar í Hríseyjarkirkju nú um helgina.
    Við rifjum líka upp gamalt viðtal við Úlfar Þormóðsson, en í ár eru 35 ár frá því að Úlfar var dæmdur fyrir guðlast fyrir myndaþátt í skopmyndablaðinu Spegillinum
    Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri, heimsækir þáttinn og spjallar um yfirstandandi verkefni, m.a. sýninguna Insomnia sem verður frumsýnd í Þjóðleikhúsinu í haust, en þar skoðar leikhópurinn Stertabenda áhrifin sem vinsælustu gamanþættir okkar tíma hafa haft á sjálfsmynd kynslóðanna.
    Áslaug Torfadóttir sjónvarpsrýnir er á svipuðum nótum í þætti dagsins og fjallar um svokallaðar kjánakómedíur á borð við 30 Rock.
    1 hr
  • Skissubækur Orson Welles og upprifjun
    Í Tengivagninum í dag ætlum við að heyra um stórmerkilegar skissubækur Orson Welles. Ásgeir Ingólfsson ræddi við Mark Cousins, leikstjóra nýrrar heimildamyndar um þennan magnaða kvikmyndagerðarmann og nýfundnar skissubækur hans.
    Við rifjum líka upp það besta úr þættinum í liðinni viku, veltum vöngum og tengjum saman ólíkar raddir. Myndlæsi, teiknimyndasögur og myndlist, ferðalög, gestavinnustofur og ýmislegt fleira kemur við sögu.
    1 hr
  • Hún, Studio Sol, þjóðhátíð og heilagleiki þess upprunalega
    Starkaður Sigurðarson og Auður Lóa Guðnadóttir, safnverðir í Sauðaneshúsi á Langanesi, senda okkur pistil. Í dag fjalla þau um eitt elsta steinhús landsins og velta fyrir sér heilagleika hins gamla og upprunalega.
    Við heimsækjum nýtt sýningarrými uppi á Höfðabakka, Studio Sol, og ræðum við stofnandann Daríu Sól Andrews um galleríið og veltum fyrir okkur hvort hægt sé að draga reykvískar listaspírur úr miðbænum.
    Í Skálholti eru sumartónleikarnir í fullum gangi og við heyrum í Höllu Steinunni Stefánsdóttur, fiðluleikara, og meðlim tónlistarhópsins Nordic Affect. Hópurinn heldur tónleika um helgina þar sem sjónum verður beint að framlagi kvenna til tónlistar á barokktímanum.
    Við rifjum líka upp sögu Verslumannahelgarinnar og Þjóðhátíðar í Eyjum með broti úr safni.
    1 hr
  • Berskjöldun, bókmenntaverðlaun, Blóðengill og skemmtilegs
    Í Tengivagninum í dag kynnum við okkur Nýju nóbelsverðlaunin í bókmenntum sem verða haldin í fyrsta og mögulega eina skipti í ár vegna upplausnarástands í sænsku akademíunni. Nýlega var birtur listi yfir þá rithöfunda sem eru tilnefndir og þeirra á meðal er einn Íslendingur, Jón Kalman Stefánsson. Við hringjum til Svíþjóðar og fræðumst um þessi nýju verðlaun
    Nanna Hlín Halldórsdóttir, heimspekingur, fjallar um berskjöldun og breytttan mannskilning á MeToo-tímum í pistli sínum í dag.
    Við kíkjum á sýninguna Skemmtilegs í Gallerý Port, en þar sýnir listamannaparið Baldur Helgason og Patty Spyrakos litrík málverk og líflega skúlptúra.
    Maríanna Clara Lúthersdóttir heldur áfram að rýna í sumarbækurnar í ár, og í dag er það spennusagan Blóðengill eftir Óskar Guðmundsson.
    1 hr
  • Myndlæsi og myndasögur
    Í Tengivagninum í dag erum við með hugann við myndasögur og myndlæsi.
    Salka Guðmundsdóttir, leikskáld og þýðandi, mælir með þremur bókum sem hafa heillað hana, þar á meðal er ein myndasaga.
    Við heimsækjum líka Elísabetu Rún Þorsteinsdóttur, sem er útskrifaður teiknari frá Myndlistarskólanum í Reykjavík en er nú á leið í frekara nám þar sem hún ætlar að einbeita sér að fréttamyndasagnagerð.
    Rætt verður við Dag Sævarsson myndlistarmann um myndlæsi, en í mastersverkefni sínu í Listkennslu við Listaháskóla Íslands smíðaði hann námsefni sem gæti gagnast við kennslu myndlæsis í grunnskóla.
    Við fræðumst um myndasöguna Sabrina sem er fyrsta myndasagan til að vera tilnefnd til hinna bresku Booker-bókmenntaverðlauna í 50 ára sögu þeirra.
    Úr safni Ríkisútvarpsins gröfum við upp fræðslu um hvernig njóta skal myndverka, brot úr þættinum Leiftur úr listasögunni með Birni Th. Björnssyni (1981)
    57 min
  • Vinnustofudvalir og fjölbragðaglíma kvenna
    Við erum með hugann við vinnustofudvalir í Tengivagninum í dag, það er algengt að myndlistarmenn dvelji í vinnustofum erlendis en líka hér á landi.
    Við ræðum við Katrínu Helenu Jónsdóttur, verkefnastjóra gestavinnustofa hjá SÍM, sem og listamennina Gabriel Gold og Lasse Lecklin sem dvelja þar nú um mundir.
    Myndlistarkonan Bjargey Ólafsdóttir er stundum kölluð residensíudrottningin, hún hefur ferðast víða um heim og dvalið á ólíkum stöðum við listsköpun. Við hittum hana í ljósmyndagalleríinu RamSkram þar sem hún er með sýningu. Við fáum líka að heyra brot úr nýju hljóðverki hennar þar sem heyra má hrotur sofandi hunds.
    Áslaug Torfadóttir flytur auk þess sjónvarpspistil, að þessu sinni um þáttaröðina GLOW, þar sem fjölbragðaglíma kvenna kemur við sögu.
    Umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Kristján Guðjónsson.
    1 hr
  • Don Kíkóti og tengingar
    Í Tengivagninum í dag heyrum við um nýja kvikmynd um spænska miðaldariddarann Don Kíkóta, mynd sem hefur verið rétt tæplega 30 ár á teikniborðinu. Ásgeir Ingólfsson sá myndina á Karlovy Vary kvikmyndahátíðinni í Tékklandi og tók síðan þátt í blaðamannafundi með leikstjóranum Terry Gilliam úr Monty Python grínhópnum.
    Við lítum svo yfir liðna viku og tengjum saman ólíkar raddir sem ræða meðal annars um heimspeki í listum, ólhjóðræna þætti tónlistar, fallvelti og flæði, Strauma á Flateyri, áfengisbann og Guns N'Roses.
    57 min
  • Nýjar víddir tónlistar, galdrar og spegill tímans.
    Í Tengivagninum í dag verður rætt við Pétur Eggertsson tónskáld um djúphlustun og hvernig hægt er að notast við óhljóðræna þætti í tónsmíðum.
    Við ræðum einnig við norska listamanninn Arild Tveito sem opnar nýja sýningu, Tunglið er spegill tímans, í Harbinger á laugardag.
    Starkaður Sigurðarson og Auður Lóa Guðnadóttir senda pistil frá Langanesi, en í dag rifja þau upp söguna af meintum galdrapresti og horfinni byggð.
    Við rifjum upp 54 ára gamalt viðtal Matthíasar Jóhannessen við Halldór Laxness.
    50 min

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.