Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • Hvernig er veðrið?
    Veður er umfjöllunarefni þáttarins í dag
    rætt er við Eirík Valdimarsson, þjóðfræðing;
    Óla Þór Árnason, veðurfræðing hjá Veðurstofu Íslands;
    Braga Þorgrím Ólafsson, fagstjóri handritasafns Landsbókasafns Íslands
    og Gró Einarsdóttur, doktor í umhverfis- og félagssálfræði.
    Við heyrum brot úr þáttum Jóns Halls Stefánssonar, Veðurskip
    upptöku frá Veðurstofu Íslands þegar hún var við Reykjavíkurflugvöll
    elstu veðurfregnir úr safni Ríkisútvarpsins frá 1936, fluttar af Jóni Eyþórssyni
    og brot úr þáttum Páls Bergþórssonar, frá 1960 - vísnaþættir um veður
    og brot úr þáttum Eggerts Þórs Bernharðssonar Aldarspegill í útvarpi.
    umsjón Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Kristján Guðjónsson
    1 hr
  • Tækniblöndun lífs og listar
    Í þættinum í dag ætlum við að velta fyrir okkur tækni í ýmsum myndum, áhrifum hennar á líf okkar og list.
    Við ræðum við Graham Taylor, prófessor í tölvugreind í Guelph háskóla í Kanada, um nýjungar innan tæknigeirans, um gervigreind, djúpnám og ýmislegt fleira.
    Um síðustu helgi var sýnt á sviðslistahátíðinni Reykjavík Fringe Festival, sýndarveruleika-leikverkið Kassinn. Verkið vakti athygli erlendra hátíðarhaldara og verður meðal annars sýnt aftur á Stockholm Fringe hátíðinni í september. Forsprakkar leikhópsins Huldufugl eru Nanna Gunnars og Owen Hindley, en auk þeirra koma leikarinn Ástþór Ágústsson og tónlistarkonan Íris Thorarins að verkinu.
    Ein fyrsta almenna umfjöllun Ríkisútvarpsins um GSM-síma var í sjónvarpsþættinum Dagsljós í nóvember 1994. Þar er GSM síminn kynntur til sögunnar, notagildi hans og þjónusta. Við rifjum upp þessa sögulegu umfjöllun.
    Við veltum fyrir okkur einsemdinni með Hermanni Stefánssyni rithöfundi. Bók hans Leiðin út í heim, sem kom út hjá bókaútgáfunni Sæmundi árið 2015 er bók vikunnar á Rás 1.
    57 min
  • Verðmætaflutningar
    Tengivagninn, 9. júlí 2018
    Verðmætaflutningar eru umfjöllunarefni Tengivagnsins í dag.
    Guðvarður Már Gunnlaugsson, handritasérfræðingur, segir okkur frá því hvernig það er að flytja þjóðararf í flugi til landsins, en hann flutti Ormsbók og Reykjabók til landsins síðasta fimmtudag, ásamt Þórunni Sigurðardóttur.
    Við ræðum líka við Ólaf Inga Jónsson, forvörð Listasafns Íslands, sem hefur nokkrum sinnum fengið það hlutverk að ferðast með og passa upp á listaverkið Jackqueline eftir Pablo Picasso á ferðalögum.
    Við skoðum í safn Ríkisútvarpsins og gröfum upp nokkra mola sem tengjast verðmætaflutningum og öryggisgæslu.
    Auk þess flytur Áslaug Torfadóttir, sjónvarpsrýnir, pistil um þáttaröðina The Staircase.
    Umsjónarmenn: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Kristján Guðjónsson
    57 min
  • Hljóðnemar á HM og liðin vika
    Tengivagninn föstudaginn 6. júlí
    Upprifjun úr þáttum vikunnar og HM pistill.
    Halldór Armand Ágústsson veltir fyrir sér hvers vegna hljóðnemar eru ekki notaðir á fótboltavellinum.
    Brot úr eftirfarandi innslögum liðinnar viku:
    - rætt við Dagrúnu Aðalsteinsdóttur um sýninguna Professional Amateur
    - rætt við Úlf Hansson um segulhörpu, nýtt hljóðfæri sem hann hannaði
    - rætt við Höllu Margréti Jóhannesdóttur um hlutverk hennar í kvikmyndinni Kona fer í stríð
    - Starkaður Sigurðarson flutti pistil um rekavið
    - rætt við Sverri Norland um sýningu Adrien Piper í MoMA
    - rætt við Ingu Jónsdóttur, safnstjóra Listasafns Árnesinga, um stofnun Skaftfells á Seyðisfirði fyrir 20 árum síðan
    - rætt við Anne Carson, ljóðskáld og fræðimann, og Robert Currie, samverkamann hennar og eiginmann
    Umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Kristján Guðjónsson
    55 min
  • Segulharpa, rekaviður, handrit og Anne Carson
    Kanadíska ljóðskáldið og fræðikonan Anne Carson heimsækir þáttinn ásamt eiginmanni sínum og samverkamanni Bob Currie.
    Tónlistarmaðurinn Úlfur Hansson kemur og segir frá Segulhörpu, algjörlega nýrri tegund strengjahljóðfæris sem hann hefur unnið að undanfarin sex ár, og er nú loksins tilbúin til framleiðslu.
    Rekaviður kemur við sögu í pistli sem Starkaður Sigurðarson og Auður Lóa Guðnadóttir senda okkur frá Langanesi, en þar eru þau safnverðir í Sauðaneshúsi.
    Í dag lentu á Keflavíkurflugvelli með flugvél Icelandair FI 2015 tvö af helstu miðaldahandritum Íslendinga sem varðveitt eru í Kaupmannahöfn. Ormsbók, eitt af höfuðhandritum Snorra Eddu, og Reykjabók Njálu, elsta nær heila handrit sögunnar og eina handrit hennar sem enn er varðveitt í Kaupmannahöfn. Þessi handrit koma í heimsókn til Íslands í tilefni af sýningunni Lífsblómið - Fullveldi í 100 ár sem opnuð verður í Listasafni Íslands þann 18. Júlí. Að því tilefni rifjum við upp beina útsendingu Ríkisútvarpsins frá árinu 1971 þegar mörg af verðmætustu fornhandritum Íslandssögunnar komu aftur til landsins, eftir að hafa varðveitt af dönum um aldaskeið.
    50 min
  • Ósýnilegt aðalhlutverk, viðkvæmni, hellar og fyrsta áætlanaflugið til
    Í þættinum í dag segir Halla Margrét Jóhannesdóttir frá hlutverki sínu í kvikmyndinni Kona fer í stríð. Hún leikur stórt hlutverk en hún sést þó aldrei á hvíta tjaldinu.
    Nanna Hlín Halldórsdóttir, heimspekingur, fjallar um mikilvægi þess að við gefum viðkvæmni pláss í samtímanum.
    Það er fjórði júlí, þjóðhátíðardagur Banaríkjanna, og að því tilefni skellum við okkur vestur um haf, nánar tiltekið í fyrsta áætlunarflugið frá Íslandi til Bandaríkjanna árið 1948. Sigurður Magnússon verður fararstjóri okkar, en hann lýsti þessari ferð ansi nákvæmlega fyrir útvarpshlustendum í september sama ár.
    Undanfarna viku hefur heimsbyggðin staðið á öndinni vegna hóps fótboltastráka sem berjast fyrir lifi sinu, ekki bara þeirra sem sparka í bolta í Rússlandi heldur vegna þeirra tólf unglinga sem hafa setið fastir í helli í Taílandi ásamt fótboltaþjálfara sínum. Í Tengivagninum í dag veltum við fyrir okkur hellum, merkingu þeirra og mikilvægi í menningarsögunni
    Umsjónarmenn: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Kristján Guðjónsson
    57 min
  • Adrian Piper, Snaran og Endur hugsa
    Í Tengivagninum í dag veltum við fyrir okkur umhverfsmálum og listum með listahópnum Endur Hugsa, en í sumar stendur hópurinn fyrir fyrirlestrum og viðburðum í Gerðarsafni.
    Við heyrum brot úr viðtali frá árinu 1975 við rithöfundinn Jakobínu Sigurðardóttur um bók hennar Snaran, en hún er bók vikunnar á Rás 1.
    Við kynnum okkur svo einkasýningu bandarísku hugmyndalistakonunnar Adrian Piper sem nú stendur yfir í nútímalistasafninu í New York, MoMA, en sýningin er stærsta einkasýning lifandi listamanns sem haldin hefur verið í safninu. Sýningin tekst á við eldfim umræðuefni á borð við kynþætti og rasisma. Sverrir Norland, rithöfundur, kíkti á sýninguna og segir frá upplifun sinni.
    57 min
  • Skór ljósmæðra, Skaftfell, Nanetta og atvinnuáhugamenn
    Tólf ljósmæður sem hættu störfum á Landspítalanum í gærkvöldi mótmæltu kjörum sínum með því að skilja vinnuskóna eftir á tröppum Stjórnaráðshússins. Við veltum fyrir okkur táknmynd skóa í Tengivagninum í dag. Við kíkjum líka inn á fæðingardeild Landsspítalans árið 1959 og heyrum þar í Guðrúnu Magnúsdóttur, yfirljósmóður, sem ræðir um ljósmóðurstarfið.
    Inga Jónsdóttir, formaður Listasafns Árnesinga, rifjar upp stofnun Skaftfells á Seyðisfirði, sem í ár fagnar 20 ára starfsafmæli sínu.
    Rætt verður við Dagrúnu Aðalsteinsdóttur, myndlistarkonu, um atvinnu- og áhugamennsku í listum í tengslum við myndlistarsýninguna Professional Amateur sem stendur nú yfir í Kling og Bang.
    Áslaug Torfadóttir, sjónvarpsrýnir, fjallar um uppistandið Nanette sem finna má á Netflix.
    57 min

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.