Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • Orna, masókismi Davíðs Stefánssonar og Straumar fyrir vestan
    Tónlistarmadurinn Teitur Magnússon heimsækir þáttinn og segir okkur frá annarri plötu sinni, Orna, sem kemur út á föstudag. Við heyrum brot úr nokkrum lögum af plötunni.
    Við veltum líka fyrir okkur ljóðinu sem titill plötunnar vísar í, Komdu, eftir Davíð Stefánsson. Í því samhengi skoðum við gamla grein úr Lesbók Morgunblaðsins eftir Guðmund Andra Thorsson sem vill meina að þar aðhyllist ljóðmælandi masókisma. Við heyrum upplestur Herdísar Þorvaldsdóttur frá árinu 1995 og einnig heyrist örstutt í rödd Helgu Jónsdóttur, hún les sama ljóð, upptakan er frá árinu 1996.
    Við ferðumst vestur á Flateyri og kynnumst verkefninu Straumar, en það miðar að því að fá listamenn sem eru ættaðir af Vestfjörðum til að koma aftur heim og fremja list sína. Halla Ólafsdóttir hitti þrjá af þátttakendum í verkefninu á Ísafirði, myndlistarkonurnar Ólöfu Dómhildi Jóhannsdóttir, Heiðrúnu Viktorsdóttur og Rannveigu Jónsdóttur.
    Nanna Hlín Halldórsdóttir fjallar um glæpasögur á röngunni, spennusögur þar sem ljóst er frá upphafi hver hinn seki er, en ástæða glæpsins er á huldu.
    1 hr
  • Guns n Roses, flamengó tónlist og Fjallið í Kaupmannahöfn
    Stærstu tónleikar Íslandssögunnar fara fram í Laugardalnum í kvöld. Tveir gallharðir aðdáendur hljómsveitarinnar Guns n Roses heimsækja þáttinn, þau Brynhildur Oddsdóttir og Franz Gunnarsson.
    Við ferðumst til ársins 1989 og fræðumst um tónlistarsmekk ungmenna, við heyrum brot úr sjónvarpsþættinum Fiðringur, þar heyrist meðal annars í leikstjóranum Benedikt Erlingssyni, þá um tvítugt, en hann segist hlusta mest á Flamengó-tónlist.
    Maríanna Clara Lúthersdóttir flytur pistil um Fjallið í Kaupmannahöfn eftir Kaspar Colling Nielsen.
    Leifur Hauksson les brot úr bók vikunnar, Tabula rasa, eftir Sigurð Guðmundsson.
    1 hr
  • Fallveltishátíð, áfengi og sumarbækur
    Það verður fallveltishátíð í Tengivagninum í dag. Við hjólum um Reykjavík með Heiðari Kára Rannverssyni um myndlistarsýninguna Hjólið - Fallvelti heimsins sem stendur nú yfir. Við ræðum meðal annars um útilistaverk í almenningsrýminu, um hjól örlaganna og forgengileika allra hluta.
    Áfengisbann tók gildi á Íslandi árið 1915 og fullveldinu var því fagnað af bláedrú Íslendingum. Stefán Pálsson sagnfræðingur segir okkur frá þurri Reykjavík og bannárunum í kringum 1918. Við dettum svo í það með ungmennum í Hveragerði árið 1960.
    Yrsa Sigurðardóttir, spennusagnahöfundur, mælir að loli, með nokkrum góðum bókum til að taka með sér í sumarfríið.
    Og við heyrum brot úr þættinum Heima og heiman frá árinu 1960, þar sem Valgarð Runólfsson, skólastjórinn í Hveragerði, lýsir aðstæðum á sveitaballi og ræðir við nokkur misölvuð ungmenni.
    57 min
  • Karlvovy Vary og upprifjun
    Í þættinum í dag ferðumst við á Karlovy Vary kvikmyndahátíðina í Tékklandi. Útsendari Tengivagnsins, Ásgeir H. Ingólfsson, segir frá nokkrum af áhugaverðustu myndunum sem hann sá á hátíðinni, en þær koma flestar frá Austur Evrópu.
    Við rifjum líka upp vikuna sem leið í Tengivagninum. Við ræðum meðal annars um nýja fullveldissýningu, táknrænan mótmælagjörning á fullveldishátíð, ræðum um minningar og réttinn til að gleymast, sjálfsvíg og tilfinningar karla.
    57 min
  • Hvítur fáni, ísbirnir og Manifesta
    Á Þingvöllum í gær var haldin hátíðarsamkoma til að minnast aldarafmæli sambandslaganna. Í fámennum áhorfendahópnum voru forsvarskonur Cycle myndlistarhátíðarinnar og veifuðu hvítum fána. Við ræðum við Söru Öldudóttur, sýningarstjóra Cycle, og myndlistarmanninn Unnar Örn um þennan táknræna gjörning.
    Starkaður Sigurðarson og Auður Lóa Guðnadóttir senda okkur pistil frá Langanesi, en í dag fjalla þau um heimsókn hvítabjarna hingað til lands og sogurnar sem their skilja eftir. Við rifjum líka upp heimsókn annars ísbjarnar, eða fæðingu hans, á Langjökli, í nóvember fyrir átta árum síðan.
    Og Birta Guðjónsdóttir, myndlistarkona og sýningarstjóri, kemur til okkar og segir frá flakkandi evrópska myndlistartvíæringnum Manifesta sem fer fram um þessar mundir í Palermo á Sikiley.
    50 min
  • Lífsblómið, Mandela, vísindaskáldskapur, strákar og Cher
    Tengivagninn, miðvikudagurinn 18. júlí 2018
    Í dag er 18. júlí 2018 og öld liðin síðan Sambandslögin voru undirrituð og Ísland varð í kjölfarið fullvalda ríki. Af þessu tilefni var sýningin Lífsblómið opnuð í Listasafni Íslands. Við röltum um sýninguna með Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur, sýningarstjóra, og finnum þar ýmsa forvitnilega muni sem sýna fullveldið í óvæntu ljósi.
    Í dag eru líka hundrað ár liðin frá fæðingu Nelsons Mandela, við heiðrum minningu þessa merka manns með því að heyra brot úr sjálfsævisögu hans, Leiðinni til frelsis, sem kom út árið 1996, í þýðingu Jóns Þ. Þór og Elínar Guðmundsdóttur. Eiríkur Guðmundsson les.
    Nanna Hlín Halldórsdóttir flytur okkur pistil og í dag fjallar hún um skapandi réttlæti í feminískum vísindaskáldskap Octaviu Butler, sem eins og Nelson Mandela lét að sér kveða í réttindabaráttu svartra, sem og annarra raunar, með tækjum og tólum vísindaskáldskaparins.
    Leiðin að betri heimi er mörgum hugleikinn, jafnrétti kynjanna þar á meðal, en Þórður Jörundsson, vöruhönnuður og tónlistarmaður, kemur til okkar og segir okkur frá starfi sínu í félagsmiðstöðvum, þar sem hann hefur unnið með ungum mönnum. Hugmyndin um „eitraða karlmennsku“ hvatti hann áfram í þessu verkefni.
    Við spjöllum aðeins um poppgyðjuna Cher, sem fer með hlutverk í nýju ABBA myndinni sem frumsýnd var í Lundúnum í gær. Hún opinberaði einnig í gær að hún ætlar að gefa út plötu sem inniheldur einungis ABBA-ábreiður.
    Umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Kristján Guðjónsson.
    1 hr
  • Rétturinn til að gleymast og ástæður til að minnast
    Tengivagninn, þriðjudaginn 17. júlí
    Við fjöllum um gleymsku í Tengivagninum í dag, í tilefni þess að nýlega gengu í gegn lög Evrópusambandsins um réttinn til þess að gleymast.
    - Við kíkjum í kaffi til Vigdísar Evu Líndal, starfsmann Persónuverndar, og fræðumst um þennan nýja rétt
    - Við röltum um Hólavallakirkjugarð með Ragnhildi Hólmgeirsdóttur, sagnfræðingi, ásamt ótal mikilvægu fólki sem horfið er á braut, og spyrjum af hverju við minnumst
    - Rætt er við Kristínu Maríu Hreinsdóttur, safnafræðing, um minningasöfn og pólitískt minni
    - Maríanna Clara Lúthersdóttir flytur pistil um sumarbókmenntir, en þar koma gleymnir og/eða óáreiðanlegir sögumenn við sögu. Í dag fjallar hún um bókina Konan í glugganum.
    Umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Kristján Guðjónsson
    57 min
  • Heinrich von Kleist, Pussy Riot og 90's-nostalgía
    Tengivagninn, mánudaginn 16. júlí.
    - Fjallað verður um þýska rithöfundinn Heinrich von Kleist, rætt er við Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúa, sem hefur þýtt sögur og hugleiðingar hans.
    - Pólitíski gjörningahópurinn Pussy Riot hefur enn einu sinni vakið athygli heimsbyggðarinnar, nú með því að æða inn á úrslitaleik HM. Rætt verður um þennan gjörning, innblástur og eftirmála hans.
    - Áslaug Torfadóttir fjallar um klassíska sjónvarpsþætti frá tíunda áratugnum.
    Umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Kristján Guðjónsson
    1 hr
  • Úrslitaleikur HM og upprifjun
    Upprifjunarþáttur, brot úr efni liðinnar viku.
    Einnig flytur Halldór Armand Ásgeirsson sinn síðasta HM-pistil, í þetta skipti um leikmennina sem spila úrslitaleikinn og óvænt atvik sem átti sér stað þegar Króatar fögnuðu sigurmarki sínu gegn Englendingum.
    1 hr
  • Masterklass, syndandi kindur og veikar konur
    Við heimsækjum Alþjóðlegu tónlistarakademíuna í Hörpu og fræðumst aðeins um Masterklassa, ræðum m.a. við Judith Ingólfsson og Þórunni Marinósdóttur.
    Starkaður Sigurðarson og Auður Lóa Guðnadóttir flytja pistil um syndandi kind
    Nanna Hlín Halldórsdóttir fjallar um mikilvægi þess að taka mark á veikum konum
    og við grúskum í safni Ríkisútvarpsins að venju og drögum í dag upp brot úr Mósaíkþáttum Jónatans Garðarsonar frá 2004 þar sem hann ræðir við Hrein Friðfinnsson.
    umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Kristján Guðjónsson
    50 min

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.