Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • Listasafnið á Akureyri, ægifegurð og Queer Situations
    Tengivagninn í dag hringir norður á Listasafnið á Akureyri. Þar sem tvær stórar sumarsýningar opnuðu í júní. Önnur þeirra kallast Er þetta norður?, og var sett upp í tengslum við listahátíð í Reykjavík. Hin samsýningin er STRANDED – W(H)/ALE A REMAKE PORTFOLIO – MORE THAN THIS, EVEN sem samanstendur af verkum unnum í mismunandi miðla sem öll fjalla um eða tengjast hvölum á einn eða annan hátt. Halla Harðardóttir hringdi í sýningarstjórann, Freyju Reynisdóttir.
    Við grömsum í kistu ríkisútvarpsins. Árið 2002 gerði María Anna Þorsteinsdóttir nokkra þætti um tengsl sjómennsku og bókmennta. Við ætlum að grípa niður í þriðja þætti þar sem fjallað er um skáldsöguna Togarasaga með tilbrigðum eftir Hafliða Magnússon sem kom fyrst út árið 1981 og Hjalti Rögnvaldsson les brot úr verkinu.
    Fjóla Gerður Gunnarsdóttir er nemi í Menntaskólanum við Hamrahlíð, hefur mikinn áhuga á bókmenntum og heimspeki og er í U18 landsliðinu í körfubolta. Fjóla flytur okkur pistil um ægifegurð, eldfjöll og hugmyndir Edmund Burke.
    Síðari hluti Tengivagnsins fer í að ræða hinsegin bókmenntahátíðina Queer Situations sem haldin verður í fyrsta sinn dagana 22. - 24. ágúst. Skipuleggjendur hátíðarinnar eru Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Eva Rún Snorradóttir. Þær koma til okkar og segja frá tilurð og tilgangi hátíðarinnar og segja frá athyglisverðustu bókum þeirra höfunda sem verða gestir á hátíðinni.
    Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Jóhannes Ólafsson
    1 hr 46 min
  • Upprásin, Hin íslenska litabók, Ebba Katrín og Nína Dögg
    Við hefjum þennan lokþátt Tengivagnsins í grasrót tónlistarinnar sem verður hampað á tónleikaröðinni Upprás sem fram fer í Hörpu í vetur. Róshildur, Flaaryr og virgin orchestra hleypa tónleikaröðinni af stað 5. september en við tókum skipuleggjendur hátíðarinnar, þær Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur og Ásu Dýradóttur tali.
    Hin íslenska litabók er nýjasta verk myndlistarkonunnar Sísí Ingólfsdóttur þar sem hún teiknar Ísland og Íslendinga frá spaugilegum sjónarhornum. Upprunalegu myndirnar eru til sýnis í bókabúðinni Sölku og við lítum þangað inn í þætti dagsins.
    Í síðari hlutanum ræðir leikkonan Ebba Katrín Finnsdóttir ræðir við fyrirmynd sína Nínu Dögg Filippusdóttur um leiklistina, leikhúsið, traustið og ferlið.
    1 hr 55 min
  • SUND, óskhyggja kántrísins og Plötumarkaður Óla
    SUND er glænýtt íslenskt leikverk sem frumsýnt verður annað kvöld, en það er leikhópurinn Blautir búkar sem setur verkið upp á fjölum Tjarnarbíós. Leikmyndin og ein aðalpersónan, sjálf sundlaugin, er í höndum Krassasig en í henni munu leikarar og dansarar bregða sér í hlutverk sundgesta sem upplifa laugina allir á sinn hátt. Birnir Jón Sigurðsson leikstjóri og einn höfunda verksins leit við hjá okkur en hann segir sundmenningu okkar Íslendinga vera hversdagslega, heilaga og horní.
    Kántrítónlistin er enn vinsælasta tónlistin vestanhafs þó lítið af henni flæði út fyrir landsteinana. Nýjasta stjarnan er söngvaskáldið Oliver Anthony sem sló í gegn upp úr þurru með laginu Rich Men North of Richmond, sem sagt hefur verið mótmælasöngur heillar kynslóðar. En ekki er allt sem sýnist í kántríinu. Við rýnum í málið í fyrri hluta þáttarins og höldum svo áfram með annars konar tónlist í síðari hlutanum en við litum við í Plötumarkaði Óla, stærsta vínylsafni landsins og grúskuðum í safninu með eigandanum.
    1 hr 55 min
  • Andskotans hávaði, Listheimar og Sveinssafn
    Við hefjum þáttinn á heimsókn í Hamraborgina, þar var pönk um helgina á Hamraborg Festival sem gladdi marga en angraði einhverja. Gerð voru skemmdarverk á verkinu Andskotans hávaði, kakófóníu Curvers Thoroddsen sem hann vann upp úr 8 íslenskum pönklögum.
    Viktor Pétur Hannesson rekur Listheima í Súðavogi. Það er ekki bara vinnustofa heldur líka gallerí, innrömmun og verkstæði. Við lítum við hjá honum og heyrum af verkum sem Kristín gunnlaugsdóttir hefur unnið inn í ramma Viktors.
    Í síðari hlutanum heimsækjum við svo Sveinssafn í Krýsuvík þar sem listmálarinn Sveinn Björnsson kom sér fyrir með vinnustofu á seinni hluta ævi sinnar. Sveinn Björnsson var fæddur árið 1925 í Hafnafirði og byrjaði ungur að starfa við sjómennsku en á ákveðnum tímapunkti í lífi sínu fékk hann vitrun, úti á Halamiðum, og ákvað í kjölfarið að segja skilið við sjóinn og helga líf sitt listagyðjunni.
    1 hr 49 min
  • Djazzhátíð, Karlovy Vary, Found Records, Alveg eins og alvöru
    Í fyrri hluta þáttar er rætt við Helenu Margréti Jónsdóttur sem opnar sýninguna Alveg eins og alvöru í D-sal Hafnarhússins annað kvöld. Ásgeir H. Ingólfsson segir frá kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary og Þórður Ingi Jónsson ræðir við stofnanda Found Records í Los Angeles.
    Og í síðari hluta þáttarins verður spilaður jazz því í dag hefst Djazzhátíð Reykjavíkur. Jón Ómar Árnason listrænn stjórnandi hátíðarinnar verður gestur okkar og segir frá áherslunum í ár, listamönnunum sem stíga á stokk og málþingi sem fjallar um steríótýpísk hlutverk innan senunnar.
    1 hr 55 min
  • Vilhjálmur Hjálmarsson, Karlovy Vary, Myndlistin okkar og Sævar Karl
    Við byrjum á að heyra flakk Lísu Pálsdóttur og Vilhjálms Hjálmarssonar um Útvarpshúsið en Vilhjálmur, einn af þeim sem teiknaði húsið, féll frá á dögunum.
    Við kíkjum líka á alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Karlovy Vary í Tékklandi með Ásgeiri H. Ingólfssyni og lítum á sýninguna Myndlistin okkar á Kjarvalsstöðum en almenningur fékk að velja verkin sem sett voru upp.
    Í síðari hluta þáttar kemur svo Sævar Karl Ólason í heimsókn. Hann er flestum kunnur sem klæðskeri og tískufrömuður með meiru en Þegar Sævar var fimmtugur settist hann á skólabekk í Myndlistarskóla Reykjavíkurog síðar í Listaháskóla Íslands og þegar hann var sextugur seldu þau hjónin verlsuninaS;var Karl og fluttust til Münchenar. Þar hefur Sævar stundað meira nám í myndlist og vinnur nú alla daga að myndlistinni, bæði í Reykjavík og München.
    Sævar opnar sýningu á fimmtudag í Grafíksalnum og fer yfir þessa ástríðu sína fyrir myndlist og margt fleira í þættinum í dag.
    1 hr 55 min

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.