Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • Sigtryggur Baldursson, Shelley Duvall, Ars Longa
    Bandaríska leikkonan Shelley Duvall lést 7. júlí síðastliðinn, 75 ára að aldri. Duvall reis upp á stjörnuhimininn á áttunda áratugnum þegar hún lék í nokkrum myndum í leikstjórn Robert Altman sem hún átti í farsælu samstarfi við lengi vel á ferli sínum. Þekktasta hlutverk Duvall er þó eflaust sem Wendy Torrance í kvikmynd Stanley Kubrick The Shining frá 1980. Ester Bíbí Ásgeirsdóttir kom í heimsókn í Tengivagninn og ræddi feril og arfleifð Shelley Duvall.
    Ásgeir H. Ingólfsson menningarblaðamaður og menningarsmyglari var staddur í tékknesku borginni Karlovy Vary, á samnenfndri kvikmyndahátíð sem var haldin 28. júní -6. júlí. Þar sá Ásgeir fjölbreytt úrval kvikmynda sem hann hefur gert skil í pistlum í Tengivagninum. Það er komið að fjórða og seinasta pistlinum frá hátíðinni, að þessu sinni er jaðarsett fólk til umfjöllunar.
    Við heimsækjum samtímalistasafnið Ars Longa í Djúpavogi. Fyrir safninu standa myndlistarmennirnir Sigurður Guðmundsson og Þór Vigfússon, íbúar íbúar í Djúpavogi. semstanda að baki. Og í sumar stendur þar sýningin Rúllandi snjóbolti. Rætt er við Þór Vigfússon.
    Sigtryggur Baldursson er einna helst þekktur fyrir tónlist sína - á níunda og tíunda áratugnum vakti hann athygli með hljómsveitum á borð við Þey, Sykurmolana, Kukl, og svo mætti lengi telja - en hefur líka um langt skeið komið fram undir listamannsnafninu Bogomil Font, sem er eins konar austantjalds djass-krúnera-hliðarsjálf.
    1 hr 50 min
  • Pönnukökuboð í Öræfum, G! Festival, Davidsson, Kevin Costner
    Þorleifur Gaukur Davíðsson hefur komið víða við á sviði tónlistarinnar undanfarin ár, og er kannski einna þekktastur sem munnhörpuleikari Kaleo, þó einnig hafi hann spilað með fjölda íslenskra og erlendra tónlistarmanna. Fyrr á þessu ári hóf hann að gefa út eigin tónlist undir nafninu Davidsson, og er fyrsta sólóplata hans væntanleg á næstu mánuðum. Við hringjum til Reykhóla, þar sem Þorleifur er staddur þessa dagana.
    Katrín Helga Ólafsdóttir hafði séð fyrir séð að verja helginni á færeysku tónlistarhátíðinni G-festival. Við fáum að heyra söguna af því hvernig það gekk. Í kjölfarið lítum við ofan í kistu Ríkisútvarpsins og fáum að heyra umfjöllun um G-festival frá árinu 2006.
    Við förum svo í pönnukökukaffi til Evu Bjarnadóttur, sem er búsett í Fagurhólsmýri. Hún er ein þeirra 52 listamanna sem taka þátt í Umhverfingu nr. 5 þetta árið.
    Og úr myndlistinni förum við í kvikmyndirnar.
    Kolbeinn Rastrick gerir vestranum Horizon: An American Saga, skil í pistli sínum. Myndin er fyrsti af fjórum köflum og Costner ætlar sér stóra hluti.
    1 hr 46 min
  • LungA, heimsókn í Framnes, afskræming, fegurð og dauði
    Tómas Ævar Ólafsson færir okkur sendingu frá Seyðisfirði, þaðan sem hann er staddur. Listahátíðin LungA er þar í fullum gangi þessa dagana með öllum sínum viðburðum og vinnusmiðjum og hápunkturinn, sjálf tónleikahátíðin, verður svo um helgina. En þetta verður í síðasta sinn sem LungA fer fram.
    Lóa Björk Björnsdóttir hefur líka verið á ferð um Austurland, og í þætti dagsins heyrum við frá heimsókn hennar til mæðgnanna Önnu og Írisar á Framnesi við Berufjörð.
    Ásgeir H. Ingólfsson, menningarsmyglari, heldur áfram að rýna í það markverðasta sem varð á vegi hans á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary í Tékklandi í sumar.
    56 min
  • Óviljandi endurreisn, IceDocs og Rakel McMahon
    Við fjöllum um hugtakið óviljandi endurreisn, accidental renaissance, sem varð til í upphafi samfélagsmiðlaaldarinnar. Það eru ljósmyndir sem fanga augnablik, oft í hversdagslegum aðstæðum, þar sem ljós og skuggar, hreyfing, tjáning og sjónarhorn raðast upp þannig að það minnir á málverk frá endurreisnartímanum. Við ætlum að ræða þetta fyrirbæri við Hallgerði Hallgrímsdóttur myndlistarmann og ljósmyndara í samhengi við ljósmyndina sem tekin var af Donald Trump stuttu eftir skotárásina í Pensilvaníu um helgina.
    Og heimildamyndahátíðin IceDocs verður haldin í sjötta sinn á Akranesi um helgina. Þar er boðið upp á fjölbreytta flóru íslenskra jafnt sem erlendra heimildamynda auk veglegrar barna- og ungmennadagskrár. Ingibjörg Halldórsdóttir einn af stofnendum hátíðarinnar segir okkur frá því sem framundan er.
    Rakel McMahon myndlistarkona kemur til okkar í síðari hluta þáttarins. Hún opnaði sýninguna Trú Blue í gallerý Þulu í Marshallhúsinu úti á Granda. Hún kemur til okkar og svarar spurningum í anda samkvæmsileiks sem kenndur er við Marcel Proust. Þar sem við spyrjum opinna og jafnvel persónulegra spurninga. Við ræðum við hana um Grikkland, Jesú, hælaskó, trú og margt fleira.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
    1 hr 51 min
  • Póstkort frá austurlandi, Ajna og Óskar Guðjónsson
    Við ætlum að taka smá tíma í að hugleiða í þætti dagsins og förum í sveimandi tónlistarferðalag með Daníel Þorsteinssyni. Hann er þekktur fyrir sitt hlutverk í hljómsveitum á borð við Sometime og Maus en síðustu ár hefur hann verið að gera tónlist undir nafninu TRPTYCH. Nýjasta plata Daníels, Ajna, er u-beygja frá teknó og elektróník fyrri platna og hann lítur inn á við með sveimandi hljóðheimi í bland við hin ýmsu hljóðfæri og raddir.
    En við ætlum að byrja á að fá póstkort frá austurlandi, Lóa Björk Björnsdóttir er á faraldsfæti. Hún ætlar að koma við á nokkrum stöðum og ræða við fólk úr ýmsum áttum.
    Óskar Guðjónsson saxafónleikari og meðlimur hljómsveitarinnar ADHD verður svo gestur í síðari hluta þáttarins og talar við Tómas Ævar Ólafsson um djasstónlist.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
    1 hr 53 min
  • Túrismamótmæli í Barcelona, leikritið ÞÆR, Sigríður Pétursdóttir í Proust-leik
    Við fjöllum um mótmæli íbúa Barcelona sem sagt hefur verið frá í fréttum og fáum póstkort frá Oddnýju Halldóru sem hefur búið þar í fjölda ára.
    Við kíkjum ofan í gullkistu Ríkisútvarpsins og rifjum upp umfjöllun um Katalóníu frá árinu 2004, þegar Hólmfríður Matthíasdóttir var gestur þáttarins Út um græna grundu.
    Í seinni hluta þáttar er Sigríður Pétursdóttir gestur okkar, sem vann lengi hjá Ríkisútvarpinu. Við förum með henni í samkvæmisleik Marcel Proust, tölum um London, kvikmyndir og matargerð.
    1 hr 50 min
  • Gervigul, álfakirkja, Karlovy Vary og Portú Galinn
    Í dag fjöllum við um nýja þýðingu Ingunnar Snædal á skáldsögu sem kom út í Bandaríkjunum í fyrra eftir Rebeccu F. Kuang, Yellowface eða Gervigul.
    Áróra vinnur á tjaldsvæðinu Hólaskjól í Skaftártungu. Við spjöllum við hana um álfa sem búa á svæðinu og samskipti hennar við þá.
    Í seinni hluta Tengivagnsins kemur Vilhelm Neto í heimsókn og segir frá nýrri grínplötu sem hann sendi frá sér, Portú Galinn. Við hlustum á grínlög og sketsa af plötunni og heyrum þrjú af uppáhalds grínlögum Villa, eftir aðra listamenn.
    Og Ásgeir H. Ingólfsson flytur fréttir af kvikmyndahátíðinni Karlovy Vary í Tékklandi.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
    1 hr 50 min
  • Hátíðni, Túndran og tifið á Sléttu, The Bikeriders og Nick Cave
    Fjöllistahátíðin Hátíðni er haldin í sjötta sinn um helgina á Borðeyri við Hrútafjörð á Ströndum. Það verður líf og fjör í þessum lita bæ, allskyns listform fá að njóta sín og allt skipulag Hátíðni er í anda GÞS (gerum það saman). Tengivagninn hringir norður og ræðir við Kára Fjóluson Thoroddsen sem er einn fjölmargra sem á þátt í skipulaginu.
    Sýningin "Túndran og tifið á Sléttu" hverfist um Melrakkasléttu og þær breytingar sem hafa þegar orðið og munu senn verða bæði á lífríki og jarðvegi landsins, sem afleiðing hamfarahlýnunar. Halla Harðardóttir hringir Snorri Freyr HIlmarsson einn þeirra fjölmörgu sem eiga verk á sýningunni, en hann er einnig aðalsprautan í menningarfélaginu Heimsenda, sem hefur staðið að uppbyggingu Óskarsbragga á Raufarhöfn.
    Kolbeinn Rastrick rýnir í kvikmyndina The Bikeriders en þar fara Austin Butler, Tom Hardy og Judy Comer með aðalhlutverk í verki sem gerir tilraun til að afbyggja karlmennskuhugmyndir.
    Og við ræðum aðeins tónleikaþrennu ástralska tónlistarmannsins Nick Cave í Eldborg í Hörpu. Þar leikur Cave á flygil og syngur, með undirleik bassaleikarans Colin Greenwood, lög frá ólíkum tímum ferils síns sem spannar 45 ár. Allt saman strípað og án hljómsveitarinnar The Bad Seeds.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
    56 min
  • Gjörningarþrenna í Dölunum, Just Stop Oil og Pétur Gunnars í Proust-prófi
    Gjörningarþrenna til minningar um myndlistarmanninn Hrein Friðfinnsson fer fram í Dölunum, fæðingarstað Hreins. Undir lok júní var gengin mæðuveikisganga og um næstu helgi verður opnuð sýning á verkum Hreins í félagsheimilinu Árbliki, og svo verður sveitaball í félagsheimilinu Röðul á Skarðsströnd þann 17.ágúst. Halla Harðardóttir ræðir við Ragnheiði Gestsdóttur, Sigurði Guðmundssyni og Hrafnhildi Helgadóttur.
    Við fjöllum um fjöldahandtökur á aðgerðarsinnum í Bretlandi úr röðum Just Stop Oil samtakanna. Hlaðvarpsþættirnir Burn Wild úr smiðju BBC fjalla um loftslagsmál þar sem sögð er saga tveggja umhverfisverndarsinna á flótta undan yfirvöldum sem sögð eru vera umhverfishryðjuverkamenn. Við ræðum við Þorgerði Maríu formann Landverndar um umhverfismótmæli og beinar aðgerðir.
    Í síðari hluta þáttarins ætlum við að ræða við Pétur Gunnarsson rithöfund og þýðanda. Hann fær að svara nokkrum spurningum úr samkvæmisleik sem gjarnan er kenndur við franska rithöfundinn Marcel Proust. Við ræðum við Pétur um lestur og Proust, Hobbes og heimsmálin.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
    1 hr 49 min

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.