Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • Konukroppar, Venus: Búbblan, Jöklagrafreitur, vinningsljóð hinsegin daga
    Næskomandi sunnudag mun Sundlaugin í Lundareykjadal breytast í leikhús, þegar verkið Konukroppar eftir sviðslistakonurnar Sigríði Ástu Olgeirsdóttur og Snædísi Lilju Ingadóttur verður frumflutt. Í lýsingu á viðburðinum segir að það sé „…óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi; fellingar, hrukkur, appelsínuhúð, gæsahúð, skvabb, mjúkar línur, beinaber svæði. Sambandið milli kropps og vatns er rannsakað í seyðandi verki sem liggur á mörkum dans- og sviðslistar.“ Halla Harðardóttir ræðir við listakonurnar í þættinum.
    Kvenlíkaminn er líka viðfangsefnið í sýningunni Venus: Búbblan. Gróðurhúsinu á Lækjartorgi verður breytt í útópíska búbblu á laugardaginn kemur, þar sem náttúrulegar hreyfingar kvenlíkamans fjarri oki feðraveldisins eru kannaðar. Bjarni Daníel fékk að líta inn í búbbluna og ræddi við Önnu Guðrúnu Tómasdóttur, sem er annar af tveimur danshöfundum sem kemur að verkinu.
    Ríki kvenna, ríki drottninga, birtist líka í vinningsljóðinu í ljóðasamkeppni Hinsegin daga sem við heyrum í þættinum. Ríki mitt nefnist ljóðið sem er eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur. Tómas Ævar spjallar við Ragnheiði.
    Undir lok þáttarins förum við út í Gróttu og heyrum um jöklagrafreit, líkræðu og minningarathöfn sem fer fram um helgina á viðburðinum Jöklar eru lífið. Melkorka Ólafsdóttir veltir fyrir sér list á tímum loftslagsbreytinga og ræðir við aðstandendur viðburðarins.
    56 min
  • Stórval í i8, Hrói Höttur og Hringstiginn, Ryuichi Sakamoto og Dóra Júlía
    Fjallið innra nefnist sýning á verkum Stefáns Jónssonar frá Möðrudal, Stórval, sem opnuð verður í i8 galleríi 15. Ágúst. Í þætti dagsins kemur Kristján Guðjónsson við í galleríinu og ræðir við Börk Arnarsson framkvæmdarstjóra og eiganda.
    Kolbeinn Rastrick, kvikmynda- og sjónvarpsrýnir, hugar að þessu sinni að kvikmyndunum The Adventures of Robin Hood eða Ævintýri Hróa Hattar frá árinu 1938 og The Spiral Staircase eða Hringstiginn frá árinu 1946.
    Einnig heyrum við áður óútgefið verk eftir Ryuichi Sakamoto sem tileinkað er Jóhanni Jóhannssyni tónskáldi og kom út nú í sumar á einleiksplötu sem nefnist Opus.
    Í síðari hluta þáttar setjast Bjarni Daníel og Kristján niður með Dóru Júlíu Agnarsdóttur, fjölmiðlakonu, plötusnúði og barre þjálfara, og leggja fyrir hana spurningar í anda spurningalista franska rithöfundarins Marcel Proust.
    1 hr 52 min
  • Murr, Nicolas Cage í Longlegs, Nietzsche í sjomlahorni
    Á sýningunni Murr í Listasafni Reykjavíkur er velt upp spurningum um hvað fái listamenn til að vinna endurtekið að sama viðfangsefninu, oft með svipuðum hætti? Hvað fær listamenn til að setja sér reglur og fylgja þeim eftir í þaula, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár eða jafnvel í áratugi? Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, sýningarstjóri Murr, ræðir við Höllu Harðardóttur um sýninguna.
    Longlegs er fjórða kvikmynd hins bandaríska Oz Perkins, leikstjóra og handritshöfundar. Nicolas Cage fer með eftirminnilega rullu í myndinni, en sá hefur verið á miklu flugi undanfarin ár og tekið að sér fjölda áhugaverðra hlutverka í listamyndum og hrollvekjum ýmis konar. Við heyrum í Mio Storasen Högnasyni, en hann er mikill aðdáandi Cage.
    Tómas Ævar Ólafsson heldur áfram með sjomlahornið, seríu sem hóf göngu sína í Víðsjá í vor. Í þætti dagsins er það sjomlinn Friedrich Nietzsche sem er til umfjöllunar.
    1 hr 50 min
  • Erfið-leikar, undir áhrifum Alfreðs Flóka, ferðalög
    Natka Klimowicz og Julie Sjöfn Gasiglia segja frá sýningunni Erfið-leikar sem þær, auk Polu Sutryk og Patty Spyrakos, opna í Gallerý Port við Hallgerðargötu á laugardaginn kemur. Í verkum sínum kanna listakonurnar fjórar stöðu sína sem innflytjendur á Íslandi, og samband sitt við íslenskuna.
    Þórður Ingi Jónsson segir frá samsýningu sem opnar í Gallerý Á Milli í kvöld, þar sem fjöldi listamanna sýnir verk sín, en öll eiga þau það sameiginlegt að vera undir áhrifum frá Alfreði Flóka.
    Hrefna Björg Gylfadóttir hefur verið að velta fyrir sér hvort við leggjum of mikla áherslu á að ferðast og fljúga.
    56 min
  • Heimtaug, Matthildur, Ási í Bæ, Páll Óskar og Skrattar
    Í fyrri hluta Tengivagnsins munum við heyra af sýningu sem opnar í Svavarsafni um næstu helgi, fara aftur í tímann með Birni Th Björnssyni og Ása í Bæ og heyra af vímuefnaneyslu og skaðaminnkandi þjónustu á útihátíðum og innihátíðum, heyrum í Svölu Jóhannesdóttur, sérfræðingur í skaðaminnkun.
    Í seinni hluta tengivagnsins tekur Bjarni Daníel á móti góðum gestum, þeim Páli Óskari og Sölva Magnússyni úr hljómsveitinni Skröttum, en Skrattar og Páll Óskar komu fram saman á tónleikum á Innipúkanum um helgina.
    1 hr 49 min
  • Guitar Poetry, sálin í listinni, Guðrún frystihúsastúlka, Nesbær og SÚN
    Í vor kom út platan Guitar Poetry úr smiðju Mikaels Mána Ásmundssonar. Á plötunni túlkar Mikael hráar og persónulegar tilfinningar einn með gítarinn að vopni. Stíll hans er ljóðrænn og er hann undir miklum áhrifum frá söngvaskáldum þó að tónlistin sé alfarið án texta.
    Nína Þorbjörg Árnadóttir sendir okkur pistilinn, en að þessu sinni er hún að velta fyrir sér sálinni í list á tímum gervigreindar og tilraunum tónskáldsins Davids Cope.
    Guðrún Steina Gamalíelsdóttir var fædd 1937 á Stað í Grindavík og starfaði við fiskvinnslu í Grindavík frá fimmtán ára aldri, og alla tíð, eða þar til hún hætt að vinna árið 2004. Guðrún lést í mars á þessu ári. Við heyrum viðtal við hana sem hljómaði í þættinum Frystihússtúlkurnar í umsjón Rósu Margrétar Húnadóttur árið 2008.
    1 hr 47 min
  • Óm í Neskaupstað, hátíðahöld um verslunarmannahelgi
    Verslunarmannahelgin er handan við hornið, og því margt um að vera víða um landið. Við tökum stöðuna á nokkrum af helstu tónlistar- og útihátíðum sem í boði eru þetta árið, en það eru Norðanpaunk, Útkall, Innipúkinn, Rokkhátíð og Samanfest.
    Við setjumst niður með tónlistartvíeykinu Kötlu Heimisdóttur og Hauki Ingólfssyni í Beituskúrnum í Neskaupstað og ræðum verkið þeirra, Óm.
    54 min
  • Krassoff, Dostojevskíj og Ingibjörg Magnadóttir
    Við kynnumst Kristínu sem kallar sig Krassoff, hún er bæði tónlistarkona og dansari og er nýbúin að gefa út tvö lög.
    Kíkt er ofan í kistu Ríkisútvarpsins og rifjum upp þátt Gunnars Þorra Péturssonar um Dostojevskíj frá árinu 1999, enda gætu Karamazov bræður verið hin fullkomna sumarfrís-lesning.
    Ingibjörg Magnadóttir verður með okkur allan seinnihluta þáttarins, í samkvæmisleiknum er kenndur er við Proust.
    1 hr 49 min
  • Gamli Staðarskáli, Chögma, rigning á G! Festival, Guðrún landvörður
    Staðarskáli er Ísland, sagði skáldið, þar mætumst við óuppstillt á leið frá A til B, með kokteilsósu í munnvikunum og biksvart kaffi í ferðamáli. Á þessum forna skiptistað Landpóstanna hefur um langt skeið verið rekin bensínstöð og veitingasala, en eftir að þjóðvegurinn var færður lokaði gamli skálinn og nýr staður var opnaður í hans stað. Rakel Sigurðardóttir og Alexandra Mjöll Young mynda saman tvíeykið Evil Foods Inc. sem vinnur á mörkum listar og matargerðar, og þeim er Gamli Staðarskáli hugleikinn þessa vikuna, enda hafa þær nú opnað ,,pop-up" vegasjoppu undir því nafni. Tengivagninn gerir sér ferð norður í Hrútafjörð til að kanna málið.
    Við grömsum dálítið í Kistu Ríkisútvarpsins og flytjum viðtal Kristínar Einarsdóttur við Báru Guðmundsdóttur í Staðarskála frá árinu 2007.
    Katrín Helga Ólafsdóttir, pistlahöfundur, sagði frá hrakförum sínum á G! Festival í Færeyjum í þættinum í síðustu viku, en í dag heyrum við frá nokkrum af þeim tónlistarmönnum sem komu fram á hátíðinni.
    Við höldum í Austurátt og mælum okkur mót við landvörðin Guðrúnu Úlfarsdóttur. Við skyggnumst inn í dagleg störf landvarðarins og heyrum hvernig hlaupið í Mýrdalsjökli hefur áhrif.
    Og svo kíkjum við að lokum á hljómsveitaræfingu hjá Chögma í Neskaupsstað. Þau lentu í þriðja sæti í Músíktilraunum og ætla sér stóra hluti. Næst á dagskrá er plata, þangað til, stífar æfingar og rökræður um allt á milli himins og jarðar.
    1 hr 49 min
  • Á leiðarenda, gunbla, The Stimming Pool
    Við hittum Steinunni Gunnlaugsdóttur, myndlistakonu, fyrir framan gluggagalleríið í Bolholti 6. Þar stendur yfir sýningin Gunbla, og mun gera út sumarið. Gluggakistan er blá, og í henni standa hvítmálaðar kókflöskur í gleri. Á flöskurnar hafa orðin Nie og Wieder verið handmáluð.
    Gréta Sigríður Einarsdóttir mætti á opnun sýningarinnar Á leiðarenda, sem er á listasafni Samúels í Selárdal. Þar sýna þeir Þorvaldur Jónsson og Loji Höskuldsson, en þeir eru í hópi listamanna sem taka þátt í listahátíð sem haldin var þann 19.-21. júlí í tilefni þess að 140 ár eru liðin frá fæðingu Samúels Jónssonar.
    Og að lokum höldum við upp á Skaga, á heimildamyndahátíðina IceDocs. Bjarni Daníel ræðir við leikstjóra myndinarinnar The Stimming Pool, Steven Eastwood.
    56 min

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.