Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • Myndleysa, áhrif Autechre og skáldskapur Þórdísar Helgadóttur
    Í dag fjöllum við um Myndleysu sýningu ljósmyndarans Önnu Maggýar í Gallery Þulu, ræðum við raftónlistarþríeykið sideproject um raftónlistartvíeykið Autechre, setjumst niður með Þórdísi Helgadóttur rithöfundu og flytjum pistil eftir Ásdísi Sól Ágústsdóttur um Anthony Bourdain.
    1 hr 51 min
  • Svipmynd af Listasafninu á Akureyri, Þóra Sigurðardóttir, Margrét Jónsdóttir og ljóðasamkeppni Hinsegin daga
    Tengivagninn er á Listasafninu á Akureyri í dag.
    Þóra Sigurðardóttir vinnur með skúlptúra, vídjóverk, textíl og teikningar. Hún leiðir okkur um yfirgripsmikla sýningu sína, Tími - Rými - Efni.
    Margrét Jónsdóttir keramík listamaður lítur yfir fjöutíu ára starfsferil með sýningunni Kimarek.
    Sigríður Örvarsdóttir safnstjóri segir okkur hvað er á dagskrá safnsins það sem eftir er sumars.
    Elín Elísabet Einarsdóttir flytur síðasta pistilinn í bili.
    Viðar Eggertsson og Bergrún Íris Sævarsdóttir segja okkur frá ljóðasamkeppni Hinsegin daga - árlegri keppni þar sem reynd og ný skáld senda nafnlaus ljóð um hinseginleika.
    Tónlist flutt í þætti:
    Only When I - Alice Pheobe Lou
    Raat Ki Rani - Arooj Aftab (Sylvan Esso remix)
    1 hr 49 min
  • Listasafnið á Akureyri: Þóra Sigurðardóttir og Margrét Jónsdóttir
    Tengivagninn er á Listasafninu á Akureyri í dag.
    Þóra Sigurðardóttir vinnur með skúlptúra, vídjóverk, textíl og teikningar. Hún leiðir okkur um yfirgripsmikla sýningu sína, Tími - Rými - Efni.
    Margrét Jónsdóttir keramík listamaður lítur yfir fjöutíu ára starfsferil með sýningunni Kimarek.
    Sigríður Örvarsdóttir safnstjóri segir okkur hvað er á dagskrá safnsins það sem eftir er sumars.
    Elín Elísabet Einarsdóttir flytur síðasta pistilinn í bili.
    Tónlist flutt í þætti:
    Only When I - Alice Pheobe Lou
    Raat Ki Rani - Arooj Aftab (Sylvan Esso remix)
    1 hr 49 min
  • Jórunn Viðar, Marlene Dietrich og Allt sem ég vil segja þér
    Söngleikurinn Þar lá mín leið er byggður á verkum Jórunnar Viðar. Þær Steinunn María Þormar og Ólína Ákadóttir segja okkur frá verkefninu sem er hluti af Skapandi sumarstörfum í Kópavogi og flytja lög úr sýningunni.
    Sýningin Allt sem ég vil segja þér eftir listakvárin Sadie Cook og Jo Pawlowska í Listasafni Reykjavíkur.
    Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, bæjarlistamaður Borgarbyggðar, setur upp söngleik í Sjálfstæðissalnum sem byggður er á lífi Marlene Dietrich.
    Afhverju eru fjöllin blá? spyr Maó Alheimsdóttir.
    Lagalisti:
    All Night All Day - Big Thief
    Mind Loaded - Blood Orange ásamt Caroline Polacheck, Lorde og Mustafa
    Blue World - Mac Miller
    Just Can't Wait - Kokoroko
    1 hr 47 min
  • Pínulítil bók, Eyjafjarðarsveit og Krautz á Seltjarnarnesi
    Melkorka Ólafsdóttir fer í Dyngjuna og heimsækir Smámunasafnið í Eyjafjarðarsveit. Kristján Guðjónsson ræðir við Fríðu Þorkellsdóttur um nýútgefna og pínulitla bók. Kilian Briansson og Jónsi Hannesson segja frá gamanþáttaseríunni Krautz in Seltjarnarnes sem verður sýnd á RÚV í sumar, og Elín Elísabet Einarsdóttir flytur sinn þriðja pistil í Tengivagninum.
    Tónlist flutt í þætti:
    Stefán Elí & Óli Bjarnar - Leyfðu þér að sjást
    Little Simz - Mood Swings
    54 min
  • Vorverk í hAughúsi og listasumar á Akureyri
    Í dag stoppum við í hAughúsi í Héraðsdal í Skagafirði og skoðum sýninguna Vorverk með listakonunum Þórdísi Öldu og Rúrí.
    Við fræðumst líka um listasumar á Akureyri með aðstoð Jóns Hauks Unnarssonar, verkefnastjóra sumarhátíða hjá Akureyrarbæ, og Karólínu Baldvinsdóttur, sem stendur fyrir hátíðinni Karnivölu.
    53 min
  • Ljóðaganga með Múkk, sumarópera, SÍM og Geislagarður
    Kristján Guðjónsson tekur yfir seinni hluta Tengivagnsins í næstu viku. Þá verður spilað viðtal í fjórum hlutum við Jóhann Pál Árnason heimspeking og félagsfræðing. Hann kom og sagði frá seríunni.
    Næstu helgi verður í fyrsta sinn sett á svið ópera á sumartónleikum í Skálholti. Við heyrum frá listrænum stjórnanda hátíðarinnar, Benedikti Kristjánssyni.
    Helmingur ljóðagengisins Múkk heldur af stað í Ljóðagöngu frá Borgarbókasafninu í Grófinni í kvöld. Tengivagninn hitti þær Karólínu og Önnu Rós á safninu og fór svo í nokkrar gallery heimsóknir.
    Samsýningin Leiðir yfir land stendur yfir í sýningarsal SÍM og Geislagarð er að finna Y gallery í Kópavogi.
    Tónlist spiluð í þætti:
    Black Country, New Road - Besties
    Saya Grey - Lie Down
    Erika De Casier - Delusion
    1 hr 47 min
  • Hátíðir um land allt og Þjóðaróperan
    Tengivagninn er á flakki um landið. Melkorka Ólafsdóttir fór á Siglufjörð og fræddi okkur um fjöllistahátíðina Frjó. Helga Lára Þorsteinsdóttir fjallar um Melrakkann á Raufarhöfn og Elín Elísabet heldur sýninguna Sækja heim í Glettu í Borgarfirði Eystri. Við kíkjum einnig á Borðeyri þar sem Hátíðni stóð yfir um helgina.
    Kristján Guðjónsson er í höfuborginni og ræðir við Þórunni Sigurðardóttur um Þjóðaróperu.
    Tónlist flutt í þætti:
    Falin myndavél - Ditzy
    Augnarráð - KUSK & Óviti
    The Kids Are Out Tonight - Ditzy
    Planta - Stirnir
    1 hr 52 min
  • Þorskar, Grænlendingar og Íslendingar á Hróarskeldu
    Tengivagninn heyrir hljóðið í Íslendingum á tónlistarhátíðinni Hróarskjöldu í Danmörku.
    Maó Alheimsdóttir gengur fjöll og fjallar um örnefni.
    Listasafn Íslands sýnir Græna Landið eftir Inuk Silis Høegh, listamann og kvikmyndagerðarmann, og Sögufélagið gefur út bók Sumarliða Ísleifssonar um viðhorf umheimsins til Íslands og Grænlands.
    Lagalisti:
    Africa Express - Morals
    FKA Twigs - Childlike Things
    Ungklang - Du spør' mig om håbet
    Doechii - Catfish
    Uuummatimaa - Tarrak og Suspekt
    1 hr 49 min

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.