Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • Ástin sem eftir er, sveppir, einleikir og Laxness í Hollywood
    Í síðasta Tengivagni sumarsins ræðum við Hlyn Pálmason og Anton Mána Svansson um kvikmyndina Ástin sem eftir er, sem frumsýnd er í dag. Katla Ársælsdóttir rýnir í einleiki á Act alone-hátíðinni á Suðureyri, Kolbeinn Rastrick pælir í Hollywood-för Halldórs Laxness og Halla Harðardóttir fer í sveppamó.
    Tónlist:
    Ana Lua Caiano - Deixem O Morto Morrer
    Charlotte Adigéry & Bois Pupul - Blenda
    1 hr 49 min
  • Dínamískt jafnvægi, stuttbuxur og Safnasafnið
    Í dag heimsækjum heimsækjum við Þórbergssetur á Hala í Suðursveit og ræðum við Maríu Sjöfn, myndlistarmann, um samsýninguna Dínamískt jafnvægi. Sýningunni er fléttað inn í umhverfi Hala og aðrar sýningar í Þórbergssetri, einna helst fyrirferðamikla sýningu um líf og verk Þórbergs Þórðarsonar. Við fáum líka pistil frá Ásdísi Sól Ágústsdóttur um sumarið og sumarfatnað. Að lokum heyrum við frá heimsókn Tengivagnsins í Safnasafnið við Svalbarðseyri í Eyjafirði.
    Tónlist úr þættinum:
    Locust - No one in the world
    Emilíana Torrini - Heartstopper
    Amaarae - Girlie-Pop!
    Oracle Sisters - Marseille
    1 hr 50 min
  • Pönkplata frá BKPM, Skaftfell og LungA-skólinn á Seyðisfirði, 100 ára afmæli Thors Vilhjámssonar
    Meðlimir post-pönk hljómsveitarinnar BKPM segja frá sinni fyrstu hljómplötu, Bíddu ha? og ræða pönkið, hinsseginleikann og streymisveitur.
    Við heimsækjum Skaftfell, myndlistarmiðstöð Seyðisfjarðar og LungA-skólann.
    Synir Thors Vilhjálmssonar segja frá bókinni Og þaðan gengur sveinninn skáld sem gefin er út í tilefni af 100 ára afmæli höfundarins.
    Maó Alheimsdóttir veltir fyrir sér hafinu bláa og Auður Emilsdóttir les ljóð sitt Orðsifjar, sem bar sigur úr býtum í ljóðasamkeppni Hinsegin daga.
    Tónlist flutt í þætti:
    Hayley Williams - Ego Death At A Bachelorette Party
    The New Eves - Cow Song
    1 hr 52 min
  • Úr fullkomnu samhengi, endurkoma Of Monsters and Men og Shakespeare í Tjarnarbíó
    Í dag heimsækjum við sýningarrýmið Verksmiðjuna á Hjalteyri við Eyjafjörð, ræðum við Gústav Geir Bollason og skoðum sýninguna Úr fullkomnu samhengi með verkum Julie Tremble og tvíkeykisins Philippe-Aubert Gauthier og Tönyu St-Pierre.
    Við bregðum okkur líka í Tjarnarbíó og spjöllum við tvo nýútskrifaða leikara sem setja upp leikrit eftir William Shakespeare í leikhúsinu.
    Svo setjast hjá okkur Nanna Bryndís og Ragnar, meðlimir hljómsveitarinnar heimsfrægu Of Monsters and Men, sem gáfu út nýtt lag í dag og eru á leiðinni á túr með nýja plötu.
    Tónlist:
    Of Monsters and Men - Television Love
    Of Monsters and Men - Ordinary Creature
    Of Monsters and Men - Dirty Paws
    Obongjayar - Holy Mountain
    Cornelia Murr - Different this time
    1 hr 49 min
  • Venus í Ásmundarsal og Flóra, Hringmyrkvi og söfnin á Húsavík
    Bjartey Elín Hauksdóttir og Anna Guðrún Tómasdóttir segja frá danssýningunni Venus sem þær undirbúa og sýna í Ásmundarsal á næstunni.
    Við heimsækjum sýningu byggða á dómi Guðmunds Sigurjónssonar glímukappa í Safnahúsinu á Húsavík, fáum leiðsögn um safnið og kynnumst starfsemi Flóru menningarhúss á Akureyri.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir fjallar um Hringmyrkva, listasýningu í Síldartönkunum á Raufarhöfn.
    Tónlist flutt í þætti:
    Anna Erhard - Botanical Garden
    Inspector Spacetime - Catch planes
    Saskia - Shine A Light
    1 hr 43 min
  • GIV MÍ TYGGIGÚMMÍ, Ljóðaunnendur á Austurlandi og Steinunn Eldflaug Harðardóttir
    Við heimsækjum tónlistarkonuna Steinunni Eldflaug Harðardóttur, sem einnig er þekkt sem DJ Flugvél og Geimskip, í hljóðver hennar á Grandanum.
    Við ræðum við Magnús Stefánsson, formann félags ljóðaunnenda á Austurlandi um ljóðlistina og nýjustu útgáfur félagsins á austfirskum ljóðum.
    Við lítum komum við á Korpúlfsstöðum í Mosfellsveit þar sem fyrsta einkasýning Ingibjargar Rannveigar Guðlaugsdóttur, 86, stóð yfir um helgina. Sýningin ber heitið GIV MÍ TYGGIGÚMMÍ og sýningarstjórinn er Silfrún Una Guðlaugsdóttir, sonardóttir Ingibjargar.
    Tónlist úr þættinum:
    Dj. Flugvél Og Geimskip - Zosimos
    Nino Rota - Mi ha anche dato 10,000 lire...
    Yma Sumac - Chuncho
    Martin Denny - Quiet Village
    Dj. Flugvél Og Geimskip - Hjari veraldar
    Dj. Flugvél Og Geimskip; Skuggasveinn - Náttdrottning
    Hlökk - Mosagræna
    1 hr 54 min
  • Barbara Árnason á Gerðarsafni, Alicja Kwade í i8 gallerí og Ars Longa á Djúpavogi
    Listin liggur heldur betur ekki í dvala á sumrin. Verk eftir Barböru Árnason eru sýnd á Gerðarsafni í Kópavogi. Melkorka Ólafsdóttir fjallar um þessa merkilegu listakonu og Pétur Magnússon ræðir við Brynju Sveinsdóttur, forstöðumann Gerðasafns.
    Una Schram ræðir við pólsku listakonuna Alicju Kwade á i8 gallerý þar sem sýning hennar, Silent Archibionts, stendur yfir.
    Við heimsækjum samtímasafnið Ars Longa á Djúpavogi og heyrum frá yfirstandandi sýningu, Í lággróðrinum.
    Kolbeinn Rastrick kvikmyndagagnrýnandi fjallar um Targets eða Skotmörk frá árinu 1968, hryllingsmynd sem veltir fyrir sér hvernig eðlilegur drengur verður að fjöldamorðingja.
    Tónlist flutt í þætti:
    Jack J - Falling Down a Well
    Men I Trust - Space Is the Place
    1 hr 48 min
  • Stuttmyndin Aldrei einn, Bláa kirkjan á Seyðisfirði, Bach í nýjum búning og Kómedíuleikhúsið
    Í þætti dagsins förum í heimsókn í bláu kirkjuna á Seyðisfirði og heyrum í Elfu Hlín Sigrúnar Pétursdóttur sem segir frá tónleikum sem haldnir eru í kirkjunni í kvöld.
    Kristján Guðjónsson forvitnast um nýjustu plötu nafna síns og píanóleikara Kristjáns Martinssonar, og Elfar Logi Hannesson segir okkur frá Kómedíuleikhúsinu og Act alone hátíðinni á Suðureyri.
    Arngunnur Hinriksdóttir, Garðar Hinrksson og Sölvi Dýrfjörð segja okkur frá stuttmyndinni Aldrei Einn sem þau tóku upp og sýna á Flateyri.
    Tónlist flutt í þætti:
    Gudrid Hansdottir - Sakna Mig
    Lög af plötunn 1035 - Kristján Martinsson
    Party 4 U - Charli XCX
    Chintamani - Celíne Dessberg
    SOS - Birnir og Alaska1867
    Everything in it's right place - Radiohead
    1 hr 48 min
  • Currents 10 ára og Svavarssafn á Höfn í Hornafirði
    Við fögnum 10 ára afmæli plötunnar Currents eftir ástralska tónlistarmanninn Kevin Parker eða Tame Impala. Platan blandar saman ný-síkadelíu, rokki, poppi og fönki og er með yfir fimm milljarða spilana á Spotify. Una Schram ræðir við tónlistarfræðinga og helstu aðdáendur Tame Impala á Íslandi.
    Birta Guðjónsdóttir starfar á nýlistasafni Svavars Guðnasonar á Höfn í Hornafirði. Hún ræðir við Pétur Magnússon um safnið og listina.
    1 hr 47 min

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.