Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • Leitað að bílastæði, Íslandssaga, gervigreind og Skruggubúð
    Í dag fer Magnús Sigurður Jónasson í bíltúr með Silju Sóleyju Birgisdóttur, borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins, til að leita að bílastæði og ræða samgöngumál. Við fáum pistil frá Arndísi Þórarinsdóttur, þar sem hún fjallar um gervigreind. Við ræðum við Jón Kristin Einarsson, doktorsnema í sagnfræði, um nýtt hlaðvarp um sögu Íslands frá landnámi til bankahruns. Að lokum rifjum við upp umfjöllun um Medúsuhópinn og galleríið Skruggubúð.
    1 hr 20 min
  • K.Óla og ungurorri
    Við tölum við tvo tónlistarmenn í þætti dagsins. Katrín Helga Ólafsdóttir kemur gjarnan fram undir listamannsnafninu K.Óla en hefur líka verið í hljómsveitum á borð við Milhouse og Arfa. Við heimsækjum stúdíóið hennar í Hafnarfirði í fyrri hluta þáttar.
    Við fáum líka til okkar ungan rappara sem heitir Evald Orri Sæmundsen, kallaður ungurorri. Hann er 17 ára og var að gefa út sína fyrstu plötu.
    1 hr 18 min
  • Evrópsk hugmyndasaga, Ellefistar, Sagrada Familia
    Henry Alexander Henrysson er gestur þáttarins í dag. Við ræðum við hann um hugmyndasögu Evrópu, hvað teljast sem evrópskar hugmyndir og eru sameiginlegir þræðir sem binda hugmyndir þessarar álfu saman?
    Guðrúnu Úlfarsdóttur er tíminn hugleikinn, tímasjónarhornið, Gaudi og Sagrada Familia. Við fáum pistli frá henni um það.
    Og svo heyrum við raddir frá síðustu öld. Ellefestar, fastakúnnar Ellefunnar, á sjötta áratugnum, lýsa stemmingunni á þessum stað, eftir að honum hafði verið lokað. Laugavegur 11 var samkomustaður listafólks, skálda og háskólafólks, og nokkuð alræmdur staður í huga sumra, en nánast eins og annað heimili margra. Þátturinn er í umsjón Páls Heiðars Jónssonar og er frá 1974.
    1 hr 29 min
  • Íslenskur grínisti í New York og 17 ára tónsmiður
    Í þætti dagsins setjumst við niður með Hrannari Björnssyni, sem skrifar sketsa og gerir grín í New York. Hann hélt uppistandssýningu í Reykjavík í síðustu viku og er núna á túr um Bandaríkin með sketsahópnum Tiny Idea. Við ræðum hversdaginn um New York, alternative-grínsenuna í borginni, sketsa, og handritaskrif.
    Við ræðum líka við Láru Eggertsdóttur, sem er að hefja sitt lokaár í menntaskóla. Hún er bæði í MH og í Menntaskólanum í tónlist, þar sem hún er að læra tónsmíðar. Hún er búin að gefa út tónlist á SoundCloud (hlekkurinn) og Spotify, spila á Prikinu og Kaffibarnum, Hátíðni og Sampl í Iðnó og hefur vakið athygli. Við ræðum tónsmíðarnar, gigginn, fyrirmyndirnar innlendar og erlendar og kannski aðeins um kynjaðar hugmyndir um tónlistarfólk.
    1 hr 24 min
  • Hundalabb með Ófeigi og Greifa, Kanínuholan mælir með...
    Við höldum upp á Hólmsheiði, lausagöngusvæði fyrir hunda, og hittum þar Ófeig Sigurðsson rithöfund og skuggan hans, Greifa. Greifi er 7 og hálfs mánaðar gamall þýskur fjárhundur, sætur, loðinn og góður.
    Í hundalabbinu á Hólmsheiðinni ræðum við samband manns og hunds, hvort hundar eigi að sofa uppí og hvort störf þýska fjárhundsins eigi eitthvað sameiginlegt með störfum rithöfundarins.
    Í síðari hluta þáttarins förum við á stúfana og reynum að fá svör við því hvaða bækur við eigum að lesa í sumar. Við munum heimsækja nokkrar sjálfstæðar bókabúðir og byrjum í Holtunum í Kanínuholunni. Þar tekur á móti okkur bóksalinn og bókaunnandinn, Móeiður Hlíf Geirsdóttir.
    1 hr 23 min

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.