Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • Megas jarðsunginn, írsk list og Meðan borgin blánar
    Í dag, 30. júlí, er Magnús Þór Jónsson, jarðsunginn. Að því tilefni ætlum við að minnast hans. Við ræðum við Diddu skáldkonu um Megas, lífið og dauðann. Við ræðum við Jakub Stachowiak um nýja ljóðabók sem kom út hjá Forlaginu í síðustu viku og heitir Meðan borgin blánar. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, listfræðingur, sýningarstjóri og pistlahöfundur fjallar um samband írskrar og íslenskar listar.
    1 hr 29 min
  • Skriða á Patreksfirði, Barn í skólabíl á Flateyri
    Pétur heimsækir Birtu Ósmann prentsmiðjuna og bókaútgáfuna Skriðu á Patreksfirði. Lóa ræðir við Harald Jónsson, myndlistarmann, um verkið Barn, sem var fyrst innsetning í leikskólanum Tjarnarborg í Reykjavík en hefur nú öðlast nýtt líf í gömlum skólabíl á Flateyri.
    1 hr 26 min
  • Ódysseifskviða, bútasaumsteppi í Hrísey, bókumbók og menningartengsl Írlands og Íslands
    Í þætti dagsins förum við til Hríseyjar og ræðum við Dröfn Teitsdóttur, sem var að setja upp sýningu á bútasaumsteppum með myndum af fuglum. Við heimsækjum bókaverslunina Bókumbók í miðborg Reykjavíkur. Kolbeinn Rastrick rýnir í stórmynd Christophers Nolan, Ódysseifskviðu. Við heimsækjum bókabúðina Bókumbók í miðbæ Reykjavíkur og flytjum pistil eftir Þórhildi Tinnu Sigurðardóttur um menningartengsl Írlands og Íslands.
    1 hr 29 min
  • Þýðandinn Larissa Kyzer, Hómer og hexameter, á rúntinum með borgarstjóra
    Larissa Kyzer er bandarískur bókmenntafræðingur og þýðandi úr íslensku yfir á ensku. Hún hefur þýtt fjölda íslenskra skáldsagna, sem margar hverjar hafa hlotið góðar viðtökur, þar má nefna Merkingu eftir Fríðu Ísberg og Elínu, ýmislegt eftir Kristínu Eiríksdóttur. Við hringjum til Brooklyn og ræðum þýðingarvinnuna, hvers vegna hún kemur til Íslands, og erindi íslenskra bókmennta við hinn enskumælandi heim.
    Svo fáum við annað innslag frá Magnúsi Sigurði Jónassyni, nema í MH, í dag fer hann á rúntinn með borgarstjóra, Hildi Björnsdóttur, og tekur tímann hvað hún er lengi að fá stæði í miðborginni.
    Við fræðumst einnig um Hómer og kviður hans í tilefni þess að kvikmynd Christopher Nolan, The Odyssey, er nú í bíó.
    1 hr 20 min
  • Kómedíuleikhúsið, hvaða lag fær þig til að dansa? Og Steven Spielberg
    Elfar Logi Hannesson, leikari, rekur Kómedíuleikhúsið í Haukadal, ásamt Marsibil G. Kristjánsdóttur, listakonu, en þau eru einnig hjón. Elfar og Pétur Magnússon ræða leikhúsið, Act Alone, dýrfirskar draugasögur og nýlega endurvakið félag vestfirskra listamanna.
    En sá félagsskapur fer stækkandi.
    Kolbeinn Rastrick, kvikmyndafræðingur og gagnrýnandi, rekur upphafið að ferli Stevens Spielberg, en saga hans er samofin sögu Hollywood.
    Og svo hlustum við á tónlist sem fær fólk til að dansa. Dagmar Lilja Stefánsdóttir, nemi í versló og dansari, fer um bæinn og spyr fólk þessarar einföldu spurningar: Hvaða lag fær þig til að dansa?
    1 hr 18 min

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.