Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • Akademísk hrollvekja, ljóðaþýðingar og Þjóðlagahátíð á Sigló
    Rachel Britton fluttist til Íslands frá New York fyrir fimm árum síðan og þýðir nú íslensk ljóð yfir á Ensku. Hún segir okkur frá starfi sínu sem þýðandi og áhuga hennar á íslenskri list.
    Akademíska hrollvekjan Marginalía kom út á dögunum og ritlistarnemendur við Háskóla Íslands komu í Tengivagninn og sögðu okkur frá útgáfunni.
    Melkorka Ólafsdóttir er stödd á Siglufirði og gefur hlustendum smjörþef af stemmningunni á Þjóðlagahátíð sem er haldin þar í 25. sinn.
    Tónlist spiluð í þætti:
    Djákninn á Myrká - Rósa Ingólfsdóttir
    primabalerina - Coals
    Umlíðun - hist og
    lúpínu bossa nova - lúpína
    Lost Song - Sykur
    1 hr 46 min
  • Kvenlæg keramiklistaverk og tónleikahald í Reykjavík og Köben
    Hvernig er að halda tónleika í Reykjavík? En í Kaupmannahöfn?
    Óli Dóri og Snorri Ástrásson hafa starfað sem tónleikaskipuleggjendur lengi. Við ræðum við þá um tónleikahald og annað tónlistartengt. Við kynnumst líka þremur tónlistarkonum sem eru nýsnúnar aftur heim eftir framhaldsnám í klassískri tónlist erlendis, og koma fram á tónleikaröðinni Velkomin heim. Við kíkjum einnig á myndlistarsýninguna Þætti sem Valgerður Sigurðardóttir opnaði í Ásmundarsal síðustu helgi.
    Tónlist úr þættinum:
    O.N.E. - Ute.
    Sólveig Steinþórsdóttir - Sonata no.2 in A minor : II. Malinconia: Poco lento.
    Gugusar - Crazy
    Brokeboi - Juno Paul
    Ruby Francis - Lanzarote
    EoO - Bad Bunny
    Red Bottom Sky - Yung Lean
    Time - Sturla Atlas
    Að elska og þrá - K.óla
    1 hr 50 min
  • Grindr-ljóð og hefðbundinn kveðskapur
    Í þessum fyrsta þætti Tengivagnsins verðum við á bókmenntalegum nótum. Við förum meðal annars í bókarölt um miðborg Reykjavíkur í leit að sumarbókum, heimsækjum kvæðabarnafélag Laufásborgar og ræðum við listakvárið og skáldið Sindra „Sparkle“ Frey.
    Tónlist úr þættinum
    Amor Vincit Omnia - Rvk Amour.
    Ríma - Kvæðamannafélagið í Fjallabyggð - Árin líða.
    Olivia Dean - Nice To Each Other.
    Fontaines D.C. - Before you I Just Forget
    Lola Young - One Thing
    Sylvan Esso - Echo Party
    1 hr 48 min
  • Draumar, Klassíkin okkar og sumarlok
    Í þætti dagsins ætlum við að kveðja sumarið, leggjast í umfangsmikla en kaotíska draumarannsókn og svo förum við á hundavaði yfir nokkur tónlistarstef sem koma fyrir í efniskránni á tónleikunum Klassíkin okkar, sjónvarpstónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og RÚV sem fara fram á föstudagskvöld kl. 8 í beinni útsendingu á RÚV. Bjarni Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóri á tónleikunum kemur í heimsókn, sest við lítt stilltan flygil hér í Efstaleiti og spjallar við okkur um nokkur tónlistaratriðin á tónleikunum.
    54 min
  • Gyðingar á faraldsfæti, Hamraborg festival og Ljósbrot
    Bókin Gyðingar á faraldsfæti eftir Joseph Roth kom út hér á landi á dögunum. En sú bók kom upphaflega út fyrir rétt tæplega hundrað árum. Þar bregður höfundur upp mynd af hlutskipti gyðinga í austur-evrópu á fyrstu árum tuttugusta aldarinnar, en margir þeirra yfirgáfu heimkynni sín til að freista gæfunnar á fjarlægum slóðum. Þar mættu þeim hins vegar ólíkar aðstæður, tækifæri og aðlögun, en líka gettó og fordómar. Kristján Guðjónsson ræðir við þýðanda bókarinnar, Jón Bjarna Atlason í þættinum.
    Hamraborg festival hefst á morgun í Kópavogi en þetta er í fjórða skipti sem hátíðin er haldin. Þar verða opnaðar sýningar, framdir gjörningar og spilaðir tónleikar - einnig er hægt að skrá sig í vinnismiðjur sem fara fram yfir helgina. Bjarni Daníel leggur leið sína í Hamraborg og ræðir við Agnesi Ársælsdóttir, eina af sýningarstjórum hátíðarinnar og Hildi Elísu Jónsdóttur, listamann.
    Í síðari hluta þáttar ræða Rúnar Rúnarsson og Elín Hall kvikmyndina Ljósbrot. Mynd sem gerist á einum degi og frá umfangsmiklum átakanlegum breytingum í lífi aðalpersónunnar Unu. Ljósbrot vakti mikla lukku á Cannes kvikmyndahátíðinni í sumar.
    1 hr 50 min
  • Djasshátíð Reykjavíkur 2024 - Bein útsending úr hljóðveri 12 í Efstaleiti
    Bein útsending í byrjun Djasshátíðar Reykjavíkur 2024.
    Umsjón: Pétur Grétarsson
    Útvarpsdjasshljómsveitin:
    Hilmar Jensson - gítar
    Ingibjörg Elsa Turchi - bassi
    Kristófer Rodriguez Svönuson - slagverk
    Haukur Gröndal - klarinett
    Kristjana Stefánsdóttir - söngur
    Hljóðritun: Gísli Kjaran Kristjánsson
    Í þættinum er rætt við meðlimi hljómsveitarinnar um djasstónlistina og þeirra eigin tónlist.
    Tónlistin sem flutt er beint í útsendingunni:
    Things ain't what they used to be - Duke Ellington
    Are you here? - Kristófer Rodriguez Svönuson
    Mahjong - Wayne Shorter
    Tómas Ævar Ólafsson ræðir við Erlu Hlín Guðmundsdóttur sem kemur fram á MÍT Showcase tónleikunum á hátíðinni ásamt kvartetti sínum - einnig kemur þar fram tríó gítarleikarans Alexanders Grybos. Lagið í lok viðtalsins nefnist Thunderclouds og er af nýlegri plötu frönsk amerísku söngkonunnar Cécile McLorin Salvant sem nefnist Ghost Song.
    Júlí - Ingibjörg Turchi
    Hrafnhildur Bragadóttir, Ragnheiður Gröndal og Stína Ágústsdóttir rifja upp minningar frá djasshátíðum fyrri ára í innslagi Kristjáns Guðjónssonar.
    Innslagið endar á Ettu Cameron og Stórsveit Reykjavíkur í Súlnasöl Hótel Sögu á Djasshátíðinni 1999
    Things ain't what they used to be - Duke Ellington
    Rætt við Pétur Oddberg Heimisson um djasshátíð ársins.
    Misty - Errol Garner
    Rætt við Kristjónu Stefánsdóttur um Söru Vaughan
    Day Dream - Billy Strayhorn
    Melkorka Ólafsdóttir ræðir við Stefán S Stefánsson um stórsveitartónlist hans Íslendingur í Uluwata hofi.
    Sassy's Blues - Sarah Vaughan/Quincy Jones
    Einnig hljóma af hljómplötu nokkrir tónar úr Ups and downs - Shuteen Erdenbaatar - Rising Sun 2023
    1 hr 51 min
  • Menningarnótt
    Á Laugardaginn kemur verður menningarnótt í Reykjavík og víða um borgina eru alls um 400 menningarviðburðir á boðstólnum. Kristján og Bjarni Daníel gera heiðarlega tilraun til að renna yfir þessa risavönu dagskrá og segja frá því helsta sem vakti athygli þeirra.
    56 min
  • Queer Situations, Skálda, súrrealískar kvikmyndir og Anton Helgi
    Í fyrri hluta þáttar heyrum við af bókmenntahátíðinni Queer Situations, en líka af glænýrri bókabúð í hjarta Reykjavíkur og fáum einnig pistil frá Nínu Þorbjörgu Árnadóttur, sem fjallar að þessu sinni um súrrealískar kvikmyndir.
    Í seinni hluta tökum við á móti ljóðskáldinu Antoni Helga Jónssyni, sem fagnar nú hálfrar aldar höfundarafmæli og var að gefa út nýja bók af því tilefni. Hann tekur með sér tónlist og segir okkur sitthvað um hlébarða, kaðlaklifur og ljóðasenuna á áttunda áratugnum.
    1 hr 46 min
  • Dacia Duster, stríðið um strendurnar, Feneyjar, heimsreisa Tengivagnsins
    Ferðalög bæði innanlands og utan eru efst á baugi í þætti dagsins. Halla Harðardóttir segir frá mótmælum heimamanna í strandbæjum víða um Evrópu gegn ferðamannaiðnaðinum, og við veltum fyrir okkur einum vinsælasta bíl landsins um þessar mundir, Dusternum. Við fáum svo sendingu frá Feneyjum en Auður Mist Eydal Halldórsdóttir hefur dvalið þar undanfarið, og í seinni hluta þáttar förum við í litla heimsreisu - tökum púlsinn á nokkrum íslenskum ferðalöngum og ræðum við þau um menningarfyrirbæri sem orðið hafa á vegi þeirra í sumar.
    Lagalisti:
    Spilverk þjóðanna - Húsin mjakast upp
    Tucker Carlson's Jonestown Massacre - Dusterlagið
    asdfhg - Malbik
    Brunaliðið - Sandalar
    1 hr 48 min

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.