Í dag hófst aftur liðurinn Sérfræðingurinn í Mannlega þættinum. Við munum fá, eins og við gerðum í fyrra og fyrir áramót, fjölbreytta sérfræðinga í þáttinn á fimmtudögum til að fræða okkur um sitt sérfræðisvið og til þess að svara spurningum um það frá hlustendum. Í dag kom til okkar Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir, sem ætti ekki að þurfa að kynna fyrir hlustendum. Hann hefur auðvitað verið í eldlínunni í gegnum allan heimsfaraldurinn, sem sóttvarnarlæknir og auðvitað hluti af þríeykinu fræga, ásamt Ölmu Möller landlækni og Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni. Þau hafa fylgt okkur í gegnum þessa fordæmalausu tíma, á upplýsingafundum Almannavarna og með því að vera stjórnvöldum innan handar við hverja vendinguna á fætur annarri. Nú erum við enn og aftur á einhverskonar tímamótum í glímunni við Covid 19 og því fannst okkur tilvalið að bjóða Þórólfi í þáttinn. Hann sagði okkur frá þessu merkilega tímabil, frá hvernig veiran hefur aftur og aftur komið okkur á óvart, frá þeirri stöðu sem við erum í í dag og svo svaraði hann spurningum sem hlustendur hafa sent til okkar í netfang þáttarins,
[email protected].