Mannlegi þátturinn

Þörungarækt, að nýta streituna og póstkort frá Kanarí


Listen Later

Við sáum grein í Morgunblaðinu í gær um áhugavert íslenskt verkefni í þörungarækt sem fékk nýlega Evrópustyrk. Fyrirtækið Hyndla hlaut sem sagt þennan sprotastyrk og það er kannski ekki á hverjum degi sem fyrirtæki fær sprotastyrk þar sem öll sem standa að því eru komin yfir sjötugt og tvö þeirra yfir áttrætt. Það eru þau Guðrún Hallgrímsdóttir matvælaverkfræðingur, Gestur Ólafsson arkitekt og skipulagsfræðingur og Bjarni G. Bjarnason framkvæmdastjóri. Verkefnið er mjög áhugavert þar sem meðal annars er unnið með ræktun og möguleika þörungategundarinnar klóblöðku sem aðeins vex á Íslandi. Þau Guðrún og Gestur komu í þáttinn í dag til okkar og segja okkur meira frá þessu áhugaverða sprotafyrirtæki og verkefni.
Svo fengum við heimsókn frá Kristínu Sigurðardóttur, slysa- og bráðalækni og Gyðu Dröfn Tryggvadóttur, meðferðaraðila í áfalla- og uppeldisfræðum, en þær bjóða saman upp á námskeið sem miðar að því að efla seiglu, bæta samskipti og auka þannig færni í lífi og starfi. Þær beina sjónum sínum að nýrri þekkingu og úrræðum, áhrifum og afleiðingum streitu og meðvirkni á samskipti í lífi og starfi.
Að lokum fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Í korti dagsins segir Magnús frá ferðum sínum um Kanaríeyjar, en hann er búinn að heimsækja þær þrjár Tenerife, La Gomera og La Palma. Allar eru þær ólíkar en hafa hver sinn sjarma og sitt aðdráttarafl. Áhrifamest var að heimsækja La Palma þar sem eldgosið olli gríðarlegri eyðileggingu, en það var líka sérstakt að vera á eyju eins og La Gomera sem er í raun aðeins eitt risavaxið eldfjall.
UMSJÓN ÞORGERÐUR ÁSA AÐALSTEINSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners