Við hófum þáttinn á því að senda út upphafsmínúturnar af stöðufundi Almannavarna um COVID-19, því var þátturinn styttri sem því nemur.
Og í dag er fimmtudagur og á fimmtudögum fáum við sérfræðing í þáttinn til þess að fræða okkur um sitt sérfræðisvið og ekki síst til að svara spurningum hlustenda. Sérfræðingur Mannlega þáttarins í dag var Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara. Hún fræddi okkur um þau málefni sem eru efst á baugi hjá sambandinu og hjá eldri borgurum og svaraði spurningum sem hlustendur sendu inn á netfang þáttarins. Það var um margt og mikið að ræða við Þórunni í dag.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR