Mannlegi þátturinn

Þorvaldur og eldfjöllin og bætt aðgengi að gömlum viðtölum


Listen Later

Við töluðum um eldgos í Mannlega þættinum í dag, en ekki er svo langt frá því að eldgosinu lauk við Litla-Hrút á Reykjanesskaga, þriðja gosið á sl.þremur árum. Þegar gaus í Geldingadölum 2021 hafði ekki gosið á þeim slóðum í 6 þúsund ár. Þorvaldur Þórðarson prófessor í eldfjalla- og bergfræði kom í þáttinn í dag og hann sagði að sumt bendi til þess að möttulstrókurinn sé að eflast og eitt af því sem helst rennir stoðum undir þá kenningu er sú staðreynd að kvikan, sem brotist hefur upp á yfirborðið síðustu þrjú ár sé ólík þeirri kviku sem sést hefur áður á Reykjanesskaga. Kvikan sú eigi meira skylt við þá sem kemur úr td. Heklu, Kötlu, Torfajökli, Grímsvötnum og Bárðarbungu. Hvað þýðir þetta? Og nú er land byrjað að rísa á ný á Reykjanesinu. Þorvaldur reyndi sitt besta að svara spurningum okkar í þættinum í dag.
Við fræddumst í dag um þjóðfræðisafn Árnastofnunar, sem geymir yfir 2000 klukkustundir af viðtölum, sem flest voru tekin á árunum 1960 til 1980. Þau innihalda ómetanlegar upplýsingar um lífið snemma á 20. öldinni á Íslandi. Trausti Dagsson, þjóðfræðingur og verkefnastjóri í upplýsingatækni hjá Árnastofnun, kom til okkar í dag og sagði okkur frá talgreini sem hefur gerbylt aðgengi að efni safnsins og að þessum dýrmætu heimildum sem það hefur að geyma. Trausti sagði okkur frá þessu í þættinum og við fengum að heyra nokkur brot úr safninu.
Tónlist í þættinum:
KRISTÍN SESSELJA - Earthquake.
EARTH WIND & FIRE - September.
Ásgeir Ásgeirsson Tónlistarm., Haukur Gröndal, Richard Gudmundur Andersson - Allt að gerast.
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners