Þvottakarfan

Þvottakarfan

By Heiðar & Heimir / PodcaststöðinSportsBasketball
Download on the App Store

Þvottakarfan episodes

  • 9. Þáttur: Kjartan Atli Kjartansson

    Kjartan Atli Kjartansson er landsmönnum góðkunnur. Hann er einn vinsælasti fjölmiðlamaður landsins, hann er þjálfari yngri flokka Stjörnunnar og maður með stórkostlega nálgun á leikinn. Hann settist niður í geggjað spjall.

    Þvottakarfan er í boði Trésmiðju Heimis og Smartsocks.is.

    2 hr 7 min
  • 8. Þáttur: Uppgjör eftir fyrri umferðina

    Þó svo að einn leikur sé enn eftir hjá liðunum í fyrri umferð Domino's deildar karla þá fannst okkur við hæfi að gera hana upp núna. Snillingarnir og mannvitsbrekkurnar Hallgrímur Brynjólfsson og Máté Dalmay kíktu við og fóru yfir hvert lið fyrir sig með viðeigandi hrósum og löstum. Þvottakarfan er í boði Trésmiðju Heimis og Smartsocks.is.

    2 hr 33 min
  • 7. Þáttur: Böðvar Guðjónsson

    Formaður körfuknattleiksdeildar KR, Böðvar Guðjónsson, kíkti til okkar í Nóa Siríus stúdíóið og eyddi með okkur góðri stund. Hann fór yfir Formannshlutverkið, titlana, útlendingamál í deildinni og fjöldaflutninga leikmanna yfir lækinn. Hann er þrælskemmtilegur karl sem hefur marga fjöruna sopið.

    1 hr 12 min
  • 6. Þáttur: Fanney Lind Thomas

    Fanney Lind Thomas opnaði gríðarlega mikilvæga umræðu þegar hún opnaði sig um óviðeigandi hegðun og kynferðislega áreitni karlkyns þjálfara í garð kvenna innan körfubolthreyfingarinnar. Í þessum þætti talar hún um þessi mál í grófari dráttum, auk þess að spjalla um feril sinn, Domino's deild kvenna og allt þar frameftir götunum. 

    Þvottakarfan er tekin upp í Nóa Siríus Stúdíóinu, og er í boði Trésmiðju Heimis og Smartsocks.is

    1 hr 25 min
  • 5. Þáttur: Ívar Ásgrímsson

    Elsku hlustendur, í þessum fyrsta þætti eftir langa pásu eru Þvottakörfumenn mættir aftur, ferskir sem aldrei fyrr. Þjálfari Hauka til margar ára og núverandi Þjálfari kvennaliðs Breiðabliks, Ívar Ásgríms, kom til okkar og spjallaði um allt á milli himins og jarðar. Við ræddum Domino's deildina og þróun hennar, peningamál liðanna, samband Ívars við fjölmiðla og endalaust fleira. Sem fyrr liggur Ívar ekki á skoðunum sínum. Njótið elsku vinir.

    1 hr 19 min
  • 4. Þáttur: Sumarliði Er Fullur

    Eftir skemmtilega fyrstu umferð förum við Þvottakörfumenn yfir málin og ræðum um sigra, töp og typpatog í DHL-höllinni. Það var af nógu að taka, og einsog alltaf, þá segjum við hlutina einsog þeir eru.

    1 hr 12 min
  • 3. Þáttur: Véfréttin Þvær Þvott

    Við fengum einn helsta körfubolta sérfræðing landsins og þáttastjórnanda Boltinn Lýgur Ekki, Sigurður Orra Kristjánsson til okkar. Við fórum yfir vistaskipti Kristófers Acox yfir í Val, spáðum fyrir um framtíðina og töluðum á léttum nótum um NBA og stöðuna þar.   

    Allt er þetta í boði Trésmiðju Heimis í Þorlákshöfn og Smartsocks.is. Njótið, hlægið og hafið gaman.

    1 hr 36 min
  • 2. Þáttur: Acox, Haukur Óskars og menn undir pressu

    Það virðast vera fólksflutningar "yfir lækinn", Haukur Óskarsson verður ekki með Haukum meirihluta næsta tímabils og við ræddum 5 leikmenn sem eru undir mestri pressu á komandi tímabili.

    Svo komumst við líka að því hvað Heisi myndi gera ef hann yrði kona í einn dag.. Njótið!

    1 hr 10 min
  • Season 2: 1. Þáttur

    Eftir alltof langt sumarfrí eru Þvottakörfumenn mættir aftur með sínar umdeildu skoðanir og sína vafasömu brandara. Í þessum fyrsta þætti í þáttaröð 2 tökum við meðal annars símtöl við Mikael Nikulásson KR-ing og Svala Björgvins Valsmann og góðvinar þáttarins, til að fá beint í æð álit manna á þeim hamagangi sem staðið hefur yfir á milli félagana undanfarnar vikur. 

    Við ræðum síðan skemmtileg málefni og höfum almennt gaman af lífinu, alveg eins og þið viljið hafa það.

    1 hr 25 min
  • 13. Þáttur - Kaffistofuspjall

    Við Þvottakörfumenn fengum Hadda Brynjólfs í heimsókn til okkar til að ræða ýmis málefni líðandi, núverandi og komandi stundar í körfuboltaheiminum. Við köstuðum fram umdeildum persónulegum skoðunum og höfðum gaman af. Bara rétt einsog á kaffistofunni.

    1 hr 12 min

About Þvottakarfan

From the publisher's feed

Líkt og í öllum þvottakörfum landsins þá er þar að finna mismunandi efni og mismunandi liti. Í þessum þáttum munum við einmitt ræða allt á milli himins og jarðar þegar kemur að íslenskum körfubolta.…