Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.... more
FAQs about Tölvuleikjaspjallið:How many episodes does Tölvuleikjaspjallið have?The podcast currently has 274 episodes available.
February 28, 2024194. Playstation PortalPlaystation Portal kom út fyrir nokkrum dögum síðan og ... hvað? Hvernig er tölvan? Hvernig hefur hún reynst?Arnór Steinn og Gunnar eru búnir að spila slatta og ræða þennan áhugaverða PS5 aukahlut í þætti vikunnar. Gunnar hefur spilað Helldivers II hjá tengdó og Arnór Steinn er mögulega búinn að fara með sína í bað.Ræðum tækni, útlit, þægindi og margt fleira.Er Portal á þínu heimili? Hvernig hefur hún reynst?Þátturinn er í boði Elko Gaming....more42minPlay
February 21, 2024193. Helvítis djúpa laugin - Helldivers 2Settu á þig sundhettuna, farðu í sundfötin og dýfðu þér með andlitið fyrst oní geðveikina sem er HELLDIVERS 2.Arnór Steinn og Gunnar koma með sín fyrstu hughrif af þessum frábæra leik.Byssur, vondukallar, geðveiki, bilun og helvítis dýfan.Oní með ykkur og ekkert múður!Ef þið eruð ekki búin að prófa divers þá gerið þið það á sekúndunni eftir að hafa hlustað á þennan þátt!Þátturinn er í boði Elko Gaming....more50minPlay
February 14, 2024192. GTS mótaröðin með GuffaÞað eru allnokkrir hlustendur búin að biðja okkur um að taka viðtal við Guffa úr GTS þannig hér kemur það!GTS mótaröðin er að verða vinsælli og vinsælli og því snilldar hugmynd að fá einn af frumkvöðlunum hér á landi í viðtal til að útskýra fyrir Arnóri Steini um hvað þetta allt saman snýst.Hvað getur þú gert til að taka þátt? Þú getur byrjað á að tjékka á Facebook hópnum hjá GTS samfélaginu og svo setur þú stefnuna á YouTube rásina þeirra, hlekkir hér fyrir neðan.Takk kærlega fyrir komuna í þáttinn Guffi! Þátturinn er í boði Elko Gaming.https://www.facebook.com/groups/gtsiceland/https://www.youtube.com/@GTSIceland...more57minPlay
February 05, 2024191. Kratos í ValhallaCory Barlog spilaði Hades og ákvað að gera sinn eigin ... og hann er geggjaður.Spoiler filled þáttur um GOD OF WAR RAGNARÖK dlc pakkann VALHALLA. Spilið hann og horfið svo á þennan þátt. Myndir þú vilja spila God of War: Betlehem þar sem jésúbarnið er loka boss?Hvernig fannst þér Valhalla?Þátturinn er í boði Elko Gaming. ...more38minPlay
January 28, 2024190. Verður 2024 ömurlegt?Það er stóra spurningin ... eftir svakalega gott 2023, verður 2024 gott eða slæmt?Arnór Steinn og Gunnar rýna í komandi leiki ársins. Sumir eru áhugaverðir, aðrir munu fljúga undir radarinn. Þeim tekst einnig einhvern veginn að nýta tækifærið til að drulla yfir Assassin's Creed.Hvaða leikur vekur mesta spennu hjá þér? Segðu okkur frá!Þátturinn er í boði Elko Gaming....more46minPlay
December 31, 2023189. Árið 2023 vol 4: Nóri og Gunnar velja leik ársinsÁrið er ALVEG að verða búið!Arnór Steinn og Gunnar taka saman þetta frábæra ár í FJÓRÐA áramótasérþætti Tölvuleikjaspjallsins.Hver er leikur ársins samkvæmt Arnóri? Var eitthvað fréttnæmt sem gerðist í ár?Allt þetta og MEIRA í hnausþykkum lokaþætti.Við förum svo í smá jólafrí og komum fíflefldir til baka um miðjan janúar.Takk fyrir að vera þið og gleðilegt nýtt ár!...more1h 7minPlay
December 31, 2023188. Árið 2023 vol. 3 - Marín og Baldur's Gate 3Einn af leikjum ársins er klárlega Baldur's Gate 3. Við vildum fá algjöra fagmanneskju til að ræða leikinn í þaula í árs yfirferðinni okkar ... og hver önnur en okkar allra bestaMARÍN EYDALkemur í sett til að ræða leikinn!Föruneyti Pingsins er að gera góða hluti á Twitch þar sem Marín spilar leikinn ásamt vel völdum snillingum. Tjékkið á Marín á hennar socials og fylgist með Föruneyti Pingsins á nýju ári!Er Baldur's Gate 3 leikur ársins hjá þér? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano....more54minPlay
December 20, 2023187. Árið 2023 vol. 2 - Rósinkrans og NintendoAftur, árið 2023 er eitt það besta í manna minnum. Það voru ekki bara Playstation leikir í boði í ár. Onei ...Daníel Rósinkrans, GÓÐUR vinur þáttarins, kom til okkar og talaði um Nintendo árið 2023.Zelda, Mario og MARGT fleira! Stay tuned fyrir næstu þætti um árið 2023!Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano....more37minPlay
December 13, 2023186. Árið 2023 vol. 1: Siggi Sören og Diablo IVÁramótasérþáttur Tölvuleikjaspjallsins er ÞREFALDUR í þetta skiptið! Í sett koma sérfræðingar um alls kyns tölvuleiki og fjalla um árið með Arnóri og Gunnari. Við byrjum á Sigga Sören (siggividis94 á Playstation) sem talar um sinn uppáhalds leik ársins sem er Diablo IV, ásamt mörgum fleirum.Takk fyrir komuna Siggi og gleðilegt ár!Næsti þáttur kemur svo út í næstu viku og þið þekkið rest!Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano....more45minPlay
December 04, 2023185. Uppvakningar og kúrekarÁrið 2010 kom út eitt stykki aukapakki. Aukapakkinn gerði þér kleift að skjóta meira en bara kúreka.Þú gast skotið UPPVAKNINGA.Já börnin mín góð, í þætti vikunnar ræðum við UNDEAD NIGHTMARE.Frábær aukapakki sem er mögulega sá besti. Hvað finnst þér?...more47minPlay
FAQs about Tölvuleikjaspjallið:How many episodes does Tölvuleikjaspjallið have?The podcast currently has 274 episodes available.