Íslenski leikarinn Tómas Lemarqui hefur undanfarin ár leikið í stórmyndum um allan heim, þar á meðal Blade Runner 2049, ofurhetjumyndinni X-Men Apocalypse og kvikmyndinni Touch me not, sem hlaut gullbjörninn á síðustu Berlínarhátíðinni. Flestir tóku fyrst eftir Tómasi í titihlutverkinu í fyrstu mynd Dags Kára Péturssonar, Nóa Albínóa. Tómas kom í Mannlega þáttinn í dag og við forvitnuðumst um hvernig það er að vera íslenskur leikari í stórum erlendum verkefnum.
Hvað er innri úttekt og hverjir framkvæma slíkar úttektir? Í ljósi frétta af til dæmis málefnum OR og ON er vert að skoða það. Lísa Páls talaði við Svein V. Ólafsson verkfræðing í þættinum og fór yfir innri úttektir með honum.
Rannsóknir í jákvæðri sálfræði hafa sýnt að fólk upplifir oft mestu hamingjuna eftir að það hættir að vinna. Þessi staðreynd skapaði löngun hjá Ingrid Kuhlman til að ræða við eldri borgara um það hvernig eigi að lifa hamingjuríku og ánægjulegu lífi. Í meistararitgerðinni sem hún lagði lokahönd á í september sl. er leitað í viskubrunn eldri borgara og athugað hvort niðurstöður rannsókna á vellíðan eigi tengingu við raunveruleikann. Við ræddum við Ingridi í þættinum í dag.
Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson