Mannlegi þátturinn

Tré lífsins, Aromatherapyskóli og jólin á Spáni


Listen Later

Tré lífsins er nýr og umhverfisvænn valmöguleiki við lífslok þar sem fólki gefst kostur á að skrá sínar hinstu óskir og söguna sína fyrir andlát. Það verður opnuð ný bálstofa þar sem aðstandendur geta verið viðstaddir bálför kjósi þau það, en að bálför lokinni er aska gróðursett ásamt tré í Minningagarði. Við fengum þær Sigríði Bylgju Sigurjónsdóttur og Oktavíu Hrund Jónsdóttur, sem standa að Tré lífsins, til að segja okkur frekar frá þessu verkefni, en þær komust með það inn í samfélagshraðalinn Snjallræði og fengu frumkvöðlastyrk frá Íslandsbanka á
dögunum.
Í janúar 2020 mun nýr skóli taka til starfa hér á landi. Um er að ræða Aromatherapyskólann sem stofnaður er af Kristínu Sjöfn Valgeirsdóttur sem er með alþjóðalega viðurkenningar sem aromatherapisti. Í skólanum verður boðuð upp á framúrskarandi tveggja ára nám sem byggir á klassískri þekkingu á ilmkjarnaolíum og nýjustu uppgötvunum og rannsóknum á sviði aromatherapy. Nemendur læra á 50 ilmkjarnaolíur, hvernig þær eru unnar úr jurtum, virkni þeirra og efnafræði og örugga, ábyrga og hagnýta notkun ilmkjarnaolía til forvarna heilsu og vellíðunar. Við ræddum við Kristínu í þættinum.
Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni á Spáni í dag. Það er öðruvísi stemning fyrir jólunum á Spáni en á Íslandi. Hann segir að jólin séu ekki eins hátíðleg þar og á Íslandi. Á Spáni heita þau Navidad sem þýðir fæðingarhátíð. Það er ekki mikið um skreytingar nema í verslunum og einstaka veitingastað. Jólatré, jólasveinar og hreindýr virka hreinlega skrítin þar. Aðalfjörið á Spáni snýst um risapott í Spænska ríkishappdrættinu. Póstkort dagsins snýst um jól, skort á jólum og hvernig það er fyrir íslending að upplifa spænska aðventu.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners