Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Uppsveitakastið:How many episodes does Uppsveitakastið have?The podcast currently has 64 episodes available.
September 17, 2025Helga JóhannaHelga Jóhanna er athafnakona sem lætur ekkert stoppa sig. Nýlega var hún kjörin formaður suðurlandsdeildar FKA en það er ekki eina járnið sem hún hefur í eldinum. Hún rekur gistiheimili ásamt eiginmanni sínum, hefur sungið á plötur, gefið út bækur og margt fleira. Eins hefur hún tekið að sér að gefa saman hjón á hinum ýmsu stöðum.Helga er hvergi hætt og lítil hætta á að hún rykfalli í rólegheitum. ...more51minPlay
September 10, 2025Tveir á tali með fjallkóngumTveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, tóku á móti 3 fjallkóngum en það eru Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir, fjallkóngur Biskupstungna, Guðmundur Árnason, fjallkóngur Gnúpverja og Ingvar Hjálmarsson, fjallkóngur austurleitar Flóa- og Skeiða. Þeir ræddu göngur og þær áskoranir sem þeim fylgja. Rætt var um réttirnar, sauðfé og í raun allt sem sneri að fjallferðum og sauðfjárbúskap. Eins var talað um réttarböllin og komandi Réttarball uppsveitanna....more1h 2minPlay
September 03, 2025Lína Björg TryggvadóttirLína Björg Tryggvadóttir, byggðaþróunarfulltrúi, kom í þáttinn og talaði um uppsveitirnar og starf sitt hjá þeim. Hún fór yfir verkefni sín og fræddi mig meðal annars um möguleika til styrkja vegna nýsköpunar. Fróðlegt og skemmtilegt viðtal....more56minPlay
August 27, 2025Matthías Bjarnason - Sveitarfélagið ÁrnessýslaMatthías Bjarnason mætti til okkar til að tala um lokaverkefnið sitt í opinberri stjórnsýslu við Háskólann á Bifröst. Verkefnið heitir Sveitarfélagið Árnessýsla og í því er fjallað um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna í Árnessýslu, áskoranir og tækifæri sem slíkri sameiningu fylgir. Forvitnilegt verkefni þar sem ekki er leitast við að komast að einhverri niðurstöðu heldur að fjalla um verkefnið á sem víðustum grunni.Eins fjöllum við um það sem er efst á baugi í uppsveitunum og við höfum fengið veður af....more56minPlay
August 21, 2025Siggi í SkarðiSigurður Björgvinsson, eða Siggi í Skarði, kom í spjall. Hann ræddi uppvöxtinn í Reykjavík og sjómennsku. Svo ræddi hann fyrstu ár Búrfellsvirkjunar, vinnustaðinn, samfélagið og sveitina. Flutninginn af mölinni og Skarð. Sönginn og kórastarfið. Það var gaman að spjalla við Sigga Bjögg eins og alltaf...more43minPlay
August 13, 2025Grímsævintýri - Laufey GuðmundsdóttirGrímsævintýri er skemmtun sem haldin er í Grímsnes- og Grafningshrepp á hverju ári. Laufey Guðmundsdóttir kom í heimsókn og kynnti fyrir okkur hátíðina og eins Kvenfélag Grímsneshrepps sem stendur að Grímsævintýri. Tombólan er fastur liður en í ár verður hún 99 ára gömul. Það er mikið um að vera og kvenfélagið síungt og fjörugt. Við hvetjum alla til að kíka og skemmta sér og öðrum. ...more1hPlay
August 06, 2025Hestakráin með nýja eigendurÍ vor keyptu þau Helgi Haukur Hauksson og Helga Margrét Friðriksdóttir Hestakránna. Í tilefni af því skrapp Uppsveitakastið í heimsókn og hitti Helgu. Það er mikið að gera hjá þeim en auk þess að reka Hestakránna reka þau einnig Þjóðveldisbæinn í Þjórsárdal auk þess að vera með útleigu á gistingu og að standa í flugningum. Það er bjart framundan hjá þessu unga fólki og spennandi tímar....more50minPlay
July 30, 2025Sólheimar í GrímsnesiTveir á tali brugðu undir sig díselfætinum og fóru í heimsókn að Sólheimum í Grímsnesi. Þar tóku á móti okkur Kristín Björg Albertsdóttir, framkvæmdastjóri, og Kristófer Agnarsson listamaður. Þau fræddu okkur um fjölbreytta starfssemi Sólheima en þar má finna listasmiðjur, verslanir, kaffihús og margt fleira. Það var gaman að rölta um Sólheima og skoða þorpið. Á myndinni er Kristófer Agnarsson, listamaður....more1h 9minPlay
July 23, 2025Pálmi GunnarssonÍ dag fagnar Uppsveitakastið árs afmæli en þann 22.07.2024 kom fyrsti þátturinn út. Viðmælandi dagsins er hinn góðkunni Pálmi Gunnarsson bassaleikari og söngvari. Við ræddum saman um náttúruna, silunga, sjónvarpsþætti, bækur og margt fleira. Eins var spjallað um tónlistina og helstu áhrifavalda. Pálmi hefur frá mörgu skemmtilegu að segja. Við ræddum um verndun silunga og uppbyggingu veiðistaða. Pálmi hefur skrifað nokkrar bækur og við ræddum um þær og margt fleira.Þetta var skemmtilegt spjall og gaman að fá að kynnast persónunni Pálma. ...more1h 19minPlay
July 16, 2025Tveir á tali - SumarspjallTveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fara yfir það helsta sem er um að vera í uppsveitunum þennan mánuðinn. Skoðum dagskrána á útihátíðinni Flúðir um versló og þar verður nóg um að vera, Umferðarhornið er á sínum stað. Leikhópurinn Lotta fær glimrandi umsögn....more1hPlay
FAQs about Uppsveitakastið:How many episodes does Uppsveitakastið have?The podcast currently has 64 episodes available.