Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Uppsveitakastið:How many episodes does Uppsveitakastið have?The podcast currently has 89 episodes available.
October 22, 2025Sölvi Arnarson - EfstidalurÍ þáttinn Tveir á tali kom góður gestur. Við, Jónas og Árni, tókum á móti Sölva Arnarsyni veitingamanni í Efstadal og í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Sölvi kynnti fyrir okkur ísinn og salatostinn sem þau gera í Efstadal og sagði okkur um leið frá ferðaþjónustunni sem hann ásamt systrum sínum og fjölskyldum reka. Eins sagði hann okkur af rekstri Héraðsskólans á Laugarvatni en þar reka þau gistiheimili og veitingastað í þessu sögufræga húsi. Nú er bara að setja sig í stellingar og hlusta og heyra hvað hann hefur að segja en sögurnar voru margar....more1h 20minPlay
October 15, 2025Sigurjón Sæland - Leikdeild UMF Bisk.Sigurjón Sæland kom í heimsókn og kynnti nýjustu afurð leikdeildar UMF Bisk. en það er leikritið 39 & hálf vika eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ólafar Sverrisdóttur. Leikritið er gamanleikrit í farsastíl þar sem meðganga er viðfangsefnið og eins og einkennir góð gamanleikrit þá er eitthvað um misskilning og rangtúlkanir og svo vonandi leysist allt að lokum. Þar sem sjón er sögu ríkari þá er bara um að gera að drífa sig á sýninguna og njóta kvöldsins. Veitingastaðirnir Mika og Vínstofa Friðheima eru með leikhústilboð á mat fyrir sýningu....more1h 1minPlay
October 08, 2025Tveir á tali - Hvað er að frétta?Jónas Yngvi og Árni Þór voru einir í þetta skipti með þáttinn tveir á tali. Nóg að tala um enda mikið um að vera í uppsveitunum. Við fórum yfir allt sem netleit okkar hafði leitt í ljós og segjum frá uppákomum, fundum, skemmtunum, sveitarstjórnarmálum o.fl. Hrekkjavakan á stóran sess og eins tölum við aðeins um Ylju, nýja veitingastaðinn í Laugarási. Friðheimar eru alltaf að gera góða hluti og þannig mætti lengi telja...já eiginlega gerðum við það í þættinum og nú er bara að setja sig í stellingar og hlusta....more1h 1minPlay
October 01, 2025Björgvin Skafti BjarnasonSkafti kíkti í heimsókn og við spjölluðum um hvað á daga hans hefur drifið. Hann talaði um æskuna í Skeiðháholti, árin í Gósen, sveitarstjórnarmál og við ræddum aðeins um Parkinson sjúkdóminn. Skafti er líka hagyrðingur og það gæti vel verið að einhver vísa skjóti upp kollinum....more1h 7minPlay
September 24, 2025Karl HallgrímssonKarl Hallgrímsson er deildarstjóri í Reykholtsskóla í Bláskógabyggð. Hann er líka tónlistamaður. Hann tók sig til og fór í Háskóla Íslands til að læra um stjórnun menntastofnana og skrifaði ritgerðina "Röfl um mengi og magann á beljum".Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, vildu fræðast meira um ritgerðina og líka manninn og hann kom til okkar og sagði okkur frá sjálfum sér, tónlistinni, vinnunni og náminu. Þetta varð hið skemmtilegasta spjall og fræðandi. ...more1h 8minPlay
September 17, 2025Helga JóhannaHelga Jóhanna er athafnakona sem lætur ekkert stoppa sig. Nýlega var hún kjörin formaður suðurlandsdeildar FKA en það er ekki eina járnið sem hún hefur í eldinum. Hún rekur gistiheimili ásamt eiginmanni sínum, hefur sungið á plötur, gefið út bækur og margt fleira. Eins hefur hún tekið að sér að gefa saman hjón á hinum ýmsu stöðum.Helga er hvergi hætt og lítil hætta á að hún rykfalli í rólegheitum. ...more51minPlay
September 10, 2025Tveir á tali með fjallkóngumTveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, tóku á móti 3 fjallkóngum en það eru Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir, fjallkóngur Biskupstungna, Guðmundur Árnason, fjallkóngur Gnúpverja og Ingvar Hjálmarsson, fjallkóngur austurleitar Flóa- og Skeiða. Þeir ræddu göngur og þær áskoranir sem þeim fylgja. Rætt var um réttirnar, sauðfé og í raun allt sem sneri að fjallferðum og sauðfjárbúskap. Eins var talað um réttarböllin og komandi Réttarball uppsveitanna....more1h 2minPlay
September 03, 2025Lína Björg TryggvadóttirLína Björg Tryggvadóttir, byggðaþróunarfulltrúi, kom í þáttinn og talaði um uppsveitirnar og starf sitt hjá þeim. Hún fór yfir verkefni sín og fræddi mig meðal annars um möguleika til styrkja vegna nýsköpunar. Fróðlegt og skemmtilegt viðtal....more56minPlay
August 27, 2025Matthías Bjarnason - Sveitarfélagið ÁrnessýslaMatthías Bjarnason mætti til okkar til að tala um lokaverkefnið sitt í opinberri stjórnsýslu við Háskólann á Bifröst. Verkefnið heitir Sveitarfélagið Árnessýsla og í því er fjallað um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna í Árnessýslu, áskoranir og tækifæri sem slíkri sameiningu fylgir. Forvitnilegt verkefni þar sem ekki er leitast við að komast að einhverri niðurstöðu heldur að fjalla um verkefnið á sem víðustum grunni.Eins fjöllum við um það sem er efst á baugi í uppsveitunum og við höfum fengið veður af....more56minPlay
August 21, 2025Siggi í SkarðiSigurður Björgvinsson, eða Siggi í Skarði, kom í spjall. Hann ræddi uppvöxtinn í Reykjavík og sjómennsku. Svo ræddi hann fyrstu ár Búrfellsvirkjunar, vinnustaðinn, samfélagið og sveitina. Flutninginn af mölinni og Skarð. Sönginn og kórastarfið. Það var gaman að spjalla við Sigga Bjögg eins og alltaf...more43minPlay
FAQs about Uppsveitakastið:How many episodes does Uppsveitakastið have?The podcast currently has 89 episodes available.