Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Uppsveitakastið:How many episodes does Uppsveitakastið have?The podcast currently has 84 episodes available.
July 09, 2025Einar Gíslason, KjarnholtumÉg skrapp í heimsókn til Einars í Kjarnholtum og spjallaði við hann um lífið og tilveruna. Hvernig var að alast upp í Biskupstungum, skólagönguna, mannlífið og fleira. Um leið og við nutum útsýnis yfir sveitina spjölluðum við um daginn og veginn, gamla tíma og nýja. Góð heimsókn og fræðandi....more54minPlay
July 02, 2025Heiðrún KristmundsdóttirHeiðrún Kristmundsdóttir frá Haga er ein af forsprökkum körfuboltabúða á Flúðum í júlí. Karfan á hug hennar allan og hún hefur komið víða við. Spilað og þjálfað.... annars er bara best að hlusta á hana tala um körfuna, sveitina, hestana og allt sem gaman og skemmtilegt er að gera. Það er ekki að vita nema eitthvað nýtt skjóti upp kollinum sem enginn vissi fyrir. Spurningin er: Á Heiðrún sér uppáhaldssamloku?Tveir á tali, Þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu hér heldur betur hressan viðmælanda með mjög forvitnilegt efni....more1h 3minPlay
June 18, 2025Hallbera GunnarsdóttirHallbera Gunnarsdóttir er kennari, söngvari, útivistafrömuður og helling fleira. Hvað kom til að ákveðið var að sofa í tjaldi allan ársins hring? Af hverju eru haldnir tónleikar úti á Laugarvatninu sjálfu? Hallbera kíkti í spjall til okkar í Tveir á tali og fór yfir lífshlaupið og hvernig hægt er að hafa gaman að einföldu hlutunum. Minnum líka á tónleikana á Laugarvatni þann 27.06.2025...more54minPlay
June 11, 2025Magnús Bjarki - Björgunarsveitin IngunnÁ Laugarvatni er árlega haldið hlaup sem kallast Gullspretturinn. Í ár er það haldið þann 14.06. Magnús Bjarki Snæbjörnsson, formaður björgunarsveitarinnar Ingunnar á Laugarvatni, kom og kynnti þennan viðburð fyrir mér. Eins sagði Magnús frá fjölbreyttu starfi sveitarinnar og var þar greinilega nóg um að vera. Ég hvet alla sem hlusta til að kíkja á Gullsprettinn og sjá keppendur hlaupa þennan hring um Laugarvatn, nú eða jafnvel að taka þátt....more1h 1minPlay
June 04, 2025Tveir á tali - Upp í sveitEins og okkar er vísa þá eru tveir á tali að spjalla um allt sem gerist í uppsveitunum og við vitum af. Ástráður Unnar Sigurðsson kom og sagði okkur frá sumarhátíðinni í Skeiða- og Gnúpverjahrepp en hún kallast Upp í sveit. Ljóst er að dagskráin verður fjölbreytt og eins og fyrri ár gaman að taka þátt. Hvað þar gerist kemur í ljós við hlustun á þáttinn nú eða með því að mæta og upplifa.Tveir á tali eru Jónas Yngvi Ásgrímsson og Árni Þór Hilmarsson....more1h 3minPlay
May 28, 2025Björg Eva ErlendsdóttirBjörg Eva er mörgum vel kunnug. Fædd í Gnúpverjahreppnum og sérstakur áhugamaður um náttúruvernd. Hún er framkvæmdastjóri Landverndar og nýtir sumarfríið til landvörslu. Við ræddum um uppvaxtarárin á Hamarsheiði, Þjórsána, Þjórsárdalinn, virkjanir og vindmyllur svo eitthvað sé nefnt. Skemmtilegt og fróðlegt spjall um náttúru í nútíð og framtíð....more1h 2minPlay
May 21, 2025Tveir á tali - EnduroHeimir Sigurðsson frá Hreppaköppum kynnti Enduro keppni. Eins var farið yfir fundargerðir og fleira. Fréttir og skemmtanir. GÓSS í Friðheimum og fullt í viðbót....more1h 9minPlay
May 07, 2025Tveir á tali - Pálmi HilmarssonTveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór fengu Pálma Hilmarsson í heimsókn. Pálmi er nemendum Menntaskólans að Laugarvatni að góðu kunnur því hann hefur verið staðahaldari þar í þónokkur ár. Pálmi sagði okkur frá sögu ML og skólahalds að Laugarvatni og skaut inn nokkrum skemmtisögum í leiðinni. Skemmtilegt og fróðlegt spjall og við vitum að hlustendur kvarta ekki þó aðeins hafi lengst í annan endan....more1h 16minPlay
April 23, 2025Tveir á tali (26)Jónas Yngvi og Árni Þór settust niður að loknum páskum og fóru yfir það sem stóð uppúr um páskana og eins hvað er framundan. Páskaeggin og málshættirnir fengu sinn skammt ásamt nýjum lið sem er matarhorn, enda báðir miklir matgæðingar. Við stefnum að því að kíkja á veitingastaði í uppsveitum og smakka það sem er í boði og ræða okkar upplifun. Í þessum þætti var mætt á nýjan austurlenskan veitingastað á Flúðum, Star. ...more1h 7minPlay
April 16, 2025Haraldur Þór Jónsson - oddviti Skeiða- og GnúpverjahreppsHaraldur Þór Jónsson - oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps fer yfir stöðu sveitarfélagsins þegar tæp 3 ár eru liðin af kjörtímabilinu. Litið er yfir farinn veg og rætt um hvað hefur áunnist og hvað er eftir.Staða sveitarfélagsins, virkjanamál, veiðifélagið, Samfylkingin og margt fleira. Hvað er framundan? Mun Samfylkingin bjóða fram í sveitarfélaginu, eða verður Haraldur áfram með Samvinnulistann?Hresst spjall þar sem ekkert er dregið undan. ...more1h 19minPlay
FAQs about Uppsveitakastið:How many episodes does Uppsveitakastið have?The podcast currently has 84 episodes available.