Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Uppsveitakastið:How many episodes does Uppsveitakastið have?The podcast currently has 84 episodes available.
January 15, 2025Árni Þór HilmarssonÁrni Þór Hilmarsson kíkti í spjall um lífið og tilveruna, kennsluna, íþróttir, sveitalífið, tónlistina o.fl. Skemmtilegt spjall og farið víða um. ...more1h 5minPlay
January 01, 2025Sigurður IngiUm leið og Uppsveitakastið óskar hlustendum sínum gleðilegs nýs árs og þakkar samfylgdina á nýliðnu ári er nýr þáttur settur í loftið. Hreppamaðurinn Sigurður Ingi Jóhannsson fer hér í stuttu máli yfir lífshlaup og feril. Það er líklega óhætt að segja að fáir ráðherrar hafa stjórnað jafn mörgum ráðuneytum og hann. Bóndi, dýralæknir, þingmaður, ráðherra. Það var mjög gaman að fá að heyra í honum varðandi lífið og tilveruna. Það er svo aldrei að vita nema við fáum að heyra meira á komandi misserum....more1h 1minPlay
December 18, 2024Óskar í HrunaÍ þessum þætti af Uppsveitakastinu er spjallað við Óskar Hafstein Óskarsson eða Óskar í Hruna. Farið er um víðan völl, rætt um preststarfið, jólin, búskapinn og margt fleira. Óskar er viðræðugóður og gaman er að heyra hvað á daga hans hefur drifið. Þátturinn er styrktur af Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi....more49minPlay
November 20, 2024Björgvin G. Sigurðsson - ÞjórsárdalurBjörgvin G. Sigurðsson hefur komið víða við. Hann hefur verið þingmaður, ráðherra, kennari, leiðsögumaður o.fl. Núna er hann að rita sögu Þjórsárdals. Hann kom í heimsókn og sagði frá sinni sögu og eins sögu Þjórsárdalsins. Skemmtilegt spjall og áheyrendur verða margs vísari um Þjórsárdalinn og byggð þar.Þátturinn er styrktur af Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshrepp, Hrunamannahrepp og Skeiða- og Gnúpverjahrepp....more53minPlay
November 06, 2024Heilsueflandi Uppsveitir - Gunnar GunnarssonGunnar Gunnarsson segir frá verkefninu Heilsueflandi Uppsveitir. Hann segir frá hvernig heilsuefling bætir ekki aðeins líkamlega líðan heldur andlega einnig. Heilsuefling á sér þrjár hliðar, líkamlega, andlega og félagslega. Gunnar segir hvernig efling þessara þátta eflir og styrkir. En heilsueflandi er líka meira. Gunnar segir frá hvernig tókst til með fjölmenningadag uppsveitanna.Þátturinn er styrktur af Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshrepp, Hrunamannahrepp og Skeiða- og Gnúpverjahrepp....more59minPlay
October 23, 2024Jón Bjarnason - oddviti HrunamannahreppsJón Bjarnason, oddviti Hrunamannahrepps, kom í heimsókn og spjallaði um sveitarfélagið, mannlífið, framtíðina o.fl. Við ræddum um uppbyggingu, skólamál, verslun og þjónustu. Jón er síðasti oddvitinn í uppsveitum sem rætt er við á þessu hausti og var virkilega gaman og fræðandi að fá hann í heimsókn. Hrunamannahreppur er honum hugleikinn og hafði hann frá heilmiklu að segja varðandi sveitarfélagið í fortíð, nútíð og framtíð. Uppsveitakastið hefur fengið styrk frá Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshrepp, Hrunamannahrepp og Skeiða- og Gnúpverjahrepp....more57minPlay
October 09, 2024Lionsklúbburinn Dynkur - BjarniBjarni Ásbjörnsson, varaformaður Lionsklúbbsins Dynks, kom í spjall til að fræða okkur um Lionshreyfinguna, starfið í Dynk og Snitselkvöldið framundan. Það er mikið um að vera í klúbbnum. Framundan er skemmtikvöld þar sem borinn er á borð dýrindis snitsel frá Laxárdal, happadrætti, fjör og fleira. Bjarni leiðir okkur í allan sannleika um félagsskapinn, starfið og skemmtunina við að starfa í Dynk....more59minPlay
September 25, 2024Ása Valdís Árnadóttir - oddviti GOGGÁsa Valdís Árnadóttir, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps kom í viðtal og spjallaði um sveitina, starfið og mannlífið. Virkilega forvitnilegt spjall þar sem víða var komið við. ...more44minPlay
September 11, 2024Eyrún JónasdóttirEyrún Jónasdóttir er tónlistakennari, organisti, kórstjóri og margt meira. Hún kom við og spjallaði um hestana sína, sönginn, kóra og margt fleira. Kór Menntaskólans á Laugarvatni, Vörðukórinn, kirkjukórar. Eyrún segir að allir geti sungið bara að mæta á æfingar og syngja. Eins náði ég að fá hana til að segja mér frá uppáhalds tónlistarmönnum. Söngurinn bætir hressir og kætir og það kemur vel í gegn hjá Eyrúnu. ...more39minPlay
August 28, 2024Helgi Kjartansson - Oddviti BláskógabyggðarHelgi kom í heimsókn og við ræddum um Bláskógabyggð. Talað var um samgöngusáttmála landsbyggðarinnar, samstarfið í sveitarstjórn, sameiningar sveitarfélaga, samstarf o.fl. Eins útskýrir Helgi af hverju fólk á að flytja í Bláskógabyggð....more57minPlay
FAQs about Uppsveitakastið:How many episodes does Uppsveitakastið have?The podcast currently has 84 episodes available.