Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Uppsveitakastið:How many episodes does Uppsveitakastið have?The podcast currently has 84 episodes available.
April 09, 2025Tveir á tali -- um allt og ekki neittTveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, spjalla um hvað er efst á baugi í uppsveitunum þessa dagana. ...more1h 2minPlay
April 02, 2025Nils Guðjón - Heildrænar meðferðirNils Guðjón kom i spjall á dögunum. Hann er best þekktur sem Nils nuddari en hann gerir bara svo mikið meira. Hann fór yfir ferilinn frá því hann var peyji á Bergstaðarstrætinu til Ólympíuleikanna í París.Forvitnilegt og skemmtilegt spjall....more49minPlay
March 26, 2025Tveir á Tali. Djöflaeyjan - Menntaskólinn að LaugarvatniMenntaskólinn að Laugarvatni hefur verið að sýna Djöflaeyjuna við góðar undirtektir. Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu í heimsókn þau Stefaníu Maren Jóhannsdóttur og Daníel Aron Bjarndal Ívarsson sem leikstýrðu verkinu. Mikið var spjallað um verkið og eins um skólann. Samkvæmt þeirra hlutlausu frásögn þá er ML víst besti skóli landsins en það er víst betra að hlusta á þáttinn og heyra þeirra frásögn....more1h 7minPlay
March 19, 2025Ævar AustfjörðÆvar Austfjörð kíkti við til að fræða mig og aðra um eitt og annað. Auðgandi landbúnaður er eitt af hans hugðarefnum og hann ræddi um þá aðferð og kynnti um leið ráðstefnu sem haldin verður þann 02. apríl á hótel Hilton. En það var ekki allt því hann kynnti einnig þann lífsstíl að borða einungis dýraafurðir. Þetta var forvitnilegt og skemmtilegt spjall sem gaman var að taka þátt í....more1h 3minPlay
March 12, 2025Tveir á taliJónas Yngvi og Árni Þór fóru vítt og breitt yfir málefni uppsveitanna. Hinn sívinsæli liður, Lesið úr fundargerðum sveitarstjórna, er á sínum stað en einnig er farið yfir viðburði og fréttatilkynningar sem okkur hafa borist. Ef menn vilja koma einhverju á framfæri þá er um að gera að hafa samband við okkur. Tveir á tali koma alltaf út á tveggja vikna fresti....more56minPlay
March 05, 2025Sex í sveitBjörk Jakobsdóttir, leikstjóri, kom í spjall ásamt eiginmanninum, Gunnari Helgasyni. Björk hefur undanfarna mánuði verið að leikstýra leikdeild UMFG í verkinu Sex í sveit eftir Marc Camoletti í heimfæslu og þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Rætt var um sýninguna og svo allt annað og mikið meira.Eftir spjallið fór ég á leiksýninguna og er skemmst frá að segja að úr varð hin besta skemmtun og ég hvet alla til að sjá þessa uppfærslu í Árnesi. Eftir sýningu tók ég leikhópinn tali og sögðu þau mér allt um uppfærsluna og hópinn....more59minPlay
February 26, 2025Tveir á tali - Bragi kíkti viðTveir á tali eru: Jónas Yngvi og Árni Þór.Bragi Viðar Gunnarsson, formaður Jökuls, kom í heimsókn og fræddi okkur um þetta nýja félag. Létt spjall um hestamennsku og sport, tamningar og keppnir, inni og úti, sumar og vetur. Eins fórum við yfir hvað er á döfinni í uppsveitum. Kíkt í fundargerðir sveitarstjórna og létt skoðun á félagslífinu framundan. ...more1h 3minPlay
February 19, 2025Odda - Oddrún Ýr SigurðardóttirÍ þessum þætti er spjallað við Oddu. Hún bregður sér í mörg hlutverk í daglega lífinu: kennari, hestadómar, kennsla og svo keypti hún ásamt eiginmanni sínum honum Þorra keypti Garðyrkjustöðina Reykás fyrir um ári síðan.Hún sagði mér frá baráttunni við að reka garðyrkjustöð meðan raforkan hækkar og hækkar. Þetta er ekki raunasaga heldur sterk kona að reyna ásamt manninum sínum að gera drauminn að veruleika ...more42minPlay
February 12, 2025Tveir á tali 12.02.25Nú er komið að tilraun hjá Uppsveitakastinu. Árni Þór Hilmarsson og Jónas Yngvi Ásgrímsson fara yfir það sem er á döfinni í uppsveitunum. Skoðaðar eru fundargerðir sveitarstjórna og molar lesnir úr þeim. Stefnt er að því að hafa þessa þætti reglulega og væri vel þegið ef klúbbar, félög, fyrirtæki, einstaklingar láti okkur vita af viðburðum eða bara hverju því sem koma má á framfæri. Gestum verður boðið að kíkja inn og spjalla um daginn og veginn. Við vonum að vel verði tekið í þetta framtak og af því verði einhver skemmtun en einnig eitthvað gagn....more1hPlay
February 05, 2025Fjóla KristinsdóttirFjóla Kristinsdóttir er nýr sveitarstjóri í Grímsnes- og Grafningshreppi. Hún fer hér yfir uppvöxt á Selfossi, námið, störfin og áhugamálin. Fjóla hefur mikla reynslu í störfum tengdum fjármálum ásamt því að hafa unnið við margvísleg störf á sveitarstjórnarstigi. Það var gaman að spjalla við hana og hún á líklega eftir að koma aftur enda hefur hún frá mörgu að segja....more43minPlay
FAQs about Uppsveitakastið:How many episodes does Uppsveitakastið have?The podcast currently has 84 episodes available.