Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Uppsveitakastið:How many episodes does Uppsveitakastið have?The podcast currently has 89 episodes available.
January 21, 2026Rakel Theódórsdóttir - ByggðaþróunarfulltrúiTveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu til sín góðan gest. Rakel Theódórsdóttir, nýr byggðarþróunarfulltrúi uppsveitanna, kom í heimsókn og sagði okkur frá sér og sínum högum. Hún hefur komið víða við, afgreitt kaffi í London, unnið í Friðheimum, aðstoðað ferðamenn í vanda og bara alls konar. Núna er hún sem sagt orðin byggðaþróunarfulltrúi og leiðir okkur í allan sannleik um hvað það starf felur í sér. ...more1h 8minPlay
January 14, 2026Stefán ÞorleifssonÍ þessum þætti er tekið hús á Stefáni Þorleifssyni, tónlistarmanni og kennara (og margt fleira). Hann tók á móti okkur í Tónsmiðju Suðurlands og við ræddum lífshlaupið, tónlistina, kennsluna og margt fleira. Stefán er lífsglaður og hláturmildur með skoðanir á hlutunum og við hefðum getað talað mikið lengur um tónlist og kennslu. Því miður voru einhverjir tæknilegir örðugleikar á upptöku spyrils þannig að í síðari hluta þáttarins voru spurningar stjórnanda teknar upp aftur og skeytt í á sína staði. Ég vona að þetta komi ekki að sök en það er búið að ganga í málið og vonandi verða ný tæki komin fyrir næsta þátt....more1h 3minPlay
January 01, 2026Árný Fjóla og Daði FreyrÁ nýársdag gáfu Árný Fjóla og Daði Freyr sér tíma til að kíkja við og spjalla við okkur í Tveir á tali. Við ræddum um tónlistina og myndlistina og bara flest milli himins og jarðar. Eurovision bar á góma ásamt leiklist í FSU og þar sem Árni Þór var einn af stjórnendum var auðvitað rætt um körfubolta. Það var virkilega gaman að fá þessa ungu listamenn í heimsókn og heyra aðeins af þeirra lífi....more1h 4minPlay
December 17, 2025Tveir á tali - Við hvorn annanTveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, spjalla um desember, jólin, hefðir og allt sem tengist jólunum...og þeim sjálfum. Pínulítið sjálfhverfur þáttur þar sem farið er um víðan völl. - Valið á uppsveitamanni ársins er í gangi og nokkrar tilnefningar hafa borist en við hvetjum alla sem hafa tillögur að hafa samband. ...more1h 11minPlay
December 10, 2025Guðmundur skólastjóriGuðmundur Finnbogason, skólastjóri Þjórsárskóla, mætti í létt spjall. Við spjölluðum um daginn og veginn, skátastarf, náttúruna, æskuna, menntamál, eldamennsku og margt fleira. Guðmundur hefur komið víða við og segir frá sér og sínum verkum í þessu hressilega spjalli....more1h 6minPlay
December 03, 2025Tveir á tali á SæsabarTveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, brugðu sér af bæ og kíktu inn á Sæsabar. Auðvitað var talað við Sæsa sjálfan, eða Sævald Þór Eyþórsson, um barinn og lífið og tilveruna. Eins fengum við annan góðan gest en Sigurður Emil Pálsson, eða bara Siggi, sem vann Blítt og létt keppnina í ML kíkti við og tók lagið fyrir okkur. Ekki má gleyma að í lokin var sungum við jólalag þar sem þátturinn var tekinn upp í upphafi aðventu....more1h 3minPlay
November 26, 2025Sylvía Karen Heimisdóttir - Sveitarstjóri Skeiða- og GnúpverjahreppsHver er Sylvía Karen Heimisdóttir, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps? Hún kom í spjall í Uppsveitakastið. Við ræddum um æskuna á Selfossi, nám, störf, fjölskylduna og áhugamál. Það var gaman að kynnast konunni bak við titilinn í skemmtilegu og þægilegu spjalli....more57minPlay
November 19, 2025Tveir á tali - Björgunarsveitin Eyvindur, Einar og TobiasTveir á tali, þeir Jónas og Árni, fengu góða gesti í þáttinn. Einar Hjörleifsson og Tobias Ölvisson frá Björgunarfélaginu Eyvindi kíktu til okkar og sögðu okkur frá starfinu og Eyvindi. Tveir hressir strákar sem brenna fyrir því að láta gott af sér leiða. Eins fórum við yfir það sem okkur hafði borist til eyrna í atburðum og uppákomum sem eru á næstunni í uppsveitunum. ...more1h 10minPlay
November 04, 2025Heilsugæsla uppsveitannaTveir á tali, þeir Jónas og Árni, fengu góða heimsókn enda tilefnið ærið. Nú er heilsugæslustöðin í Laugarási að flytja sig um set, þó ekki í fyrsta skipti en uppsveitirnar sem læknishérað urðu til 1899 og var fyrsti læknirinn staðsettur í Grímsnesi. Í Laugarási hefur hins vegar verið læknir frá 1922 eða í 103 ár. Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU, kom til okkar í spjall um fyrirhugaðan flutning á Flúðir. Talað var um þjónustuna, ástæður flutningsins og helling í viðbót. Heilsugæsla uppsveitanna opnar í dag, 05.11.2025 á nýjum stað og í tilefni þess sendum við þetta fróðlega samtal út. ...more1h 5minPlay
October 29, 2025Vörðukórinn - Ferðasaga frá SkotlandiDagana 21.-26. október fór Vörðukórinn til Skotlands til að syngja í St. Mary's Parish Church í Haddington nálægt Edinborg. Ég gat komist með sem maki og tók upp nokkur tóndæmi í ferðinni. Tónleikarnir voru sungnir með skoskum kór, The Garleton Singers, og lauk með að báðir kórar sungu saman þjóðsönginn okkar. Algert gæsahúðamóment. Þessi þáttur er ferðasaga með tóndæmum og ég þakka bara fyrir mig....more1h 58minPlay
FAQs about Uppsveitakastið:How many episodes does Uppsveitakastið have?The podcast currently has 89 episodes available.