
Sign up to save your podcasts
Or


Í þættinum í dag er heldur betur farið yfir Reykjavíkurmaraþonið, brautin rædd, góð ráð fyrir hlaup og svo mætti lengi telja. Við fengum skýrslu frá Andreu Kolbeins og viðtal við Hlyn Andrésson sem við mælum mikið með að hlusta á!
Hugleiðingar fyrir Reykjavíkurmaraþonið, Ólympíuleikarnir, Fimmvörðuhálsinn og Súlurnar gerðar upp. Við fáum úrvals sögu frá últrahlauparanum geðþekka Sigfinni Björns ásamt alvöru niðurhlaupi!
Hugleiðingar varðandi 100km hlaup, skýrsla úr Kerlingarfjöllum, uppgjör á allskonar hlaupum og margt fleira á boðstólum í þættinum í dag!
Laugavegurinn á risastóran sess í hlaupasumri flestra utanvegahlaupara. Það verður að vera sér þáttur til að gera upp þetta stóra og mikla hlaup!
Laugavegurinn var þema þáttarins. Við fengum skýrslu frá Rögnu, viðtal við sjálfan Laugavegskónginn, Höskuld og svo var hlaupauppgjörið að sjálfsögðu á sínum stað. Þess má geta að næringarplönum okkar var lekið í beinni útsendingu svo nú getið þið öll étið þennan Laugaveg eins og úthvíld tröll!
Viðtalsþáttur við sjúkraþjálfarann geðuga Einar Sigurjónsson. Í þættinum förum við yfir allt milli himins og jarðar hvað varðar næringu íþróttafólks. Einar, eða Latsi eins og hann er gjarnan kallaður er frábær í að útskýra flókin fyrirbæri á mannamáli og því vonum við að hlustendur geti lært af þessu spjalli og hafi gaman af!
Í þættinum í dag gerðum við upp Ármannshlaupið, tókum upp símann og heyrðum í Hafdísi, Siggunum tveimur og fengum skýrlu frá Olgeiri varðandi Dyrfjallahlaupið. Upplagt að hlusta á þáttinn á leiðinni austur!
Í þættinum í dag er heldur betur farið yfir farinn veg í nýafstöðnum hlaupum, bæði hér heima og erlendis. Við fáum góða tjónaskýrslu frá Hlyni Guðmunds eftir krampafestival á Ítalíu og nýtt hlaup verður kynnt ásamt fullt af aulabröndurum. Þess má geta að það er enginn best fyrir dagsetning á þessum þætti!
Hugleiðingar, skýrsla, uppgjör og margt margt fleira í þætti dagsins!
Það var af nægu að taka í hlaupauppgjörinu að þessu sinni enda langt síðan við félagarnir höfum sest niður og rætt málin. EM í Annecy, Mýrdalshlaupið og Hengillinn voru gerð upp af mikilli alúð.
From the publisher's feed

462 Listeners

215 Listeners

22 Listeners

5 Listeners

90 Listeners

72 Listeners

32 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

6 Listeners

12 Listeners

0 Listeners

3 Listeners

27 Listeners

14 Listeners