Veistu hvað?

Veistu hvað?

By RÚVEducation
Download on the App Store

Veistu hvað? episodes

  • Trúðar
    Veistu hvaða starfsstétt er sú eina á Íslandi sem á sinn eigin ís? Já, trúðar eru skemmtileg fyrirbæri en sumum finnst þeir alveg hrikalega hrollvekjandi. Það er meira að segja til hugtak yfir óttann við trúða: Coulrophobia. Í þessari viku tala Vigdís og Gummi um rjómatertur, ICP, ródeó, Uncanny Valley og allt sem tengist þessari dularfullu starfsstétt. Leikkonan Agnes Wild er viðmælandi þáttarins, en hún hefur um nokkurt skeið starfað sem spítalatrúður.
    1 hr
  • One Direction
    Veistu hvað One Direction (ísl. Ein átt) hefur unnið til margra verðlauna? Er einhver að pæla í því þegar hægt er að stara í móbrún augu Liams (á mynd)? Ein vinsælasta* hljómsveit síðustu ára er umræðuefni þáttarins að þessu sinni en þá helst útlit meðlimanna. Kristín Ólafsdóttir, einn mesti og elsti aðdáandi One Direction á Íslandi, segir frá aðdáun sinni og hræðilegum fréttum daginn eftir afmælið hennar árið 2015.
    *séu vinsældir metnar í fjölda aðdáenda sem reiðubúnir eru að kaupa plötur, miða á tónleika og ýmsan varning t.a.m. sængurföt með mynd af sveitinni.
    1 hr
  • Blak
    Veistu hvað “lauma í fjarkann“ þýðir? Og vissirðu að það er hægt að taka þátt í blaki ef maður er lágvaxinn, en þá spilar maður bara “líberó“. Vigdís og Gummi fræðast um þessa rótgrónu íþrótt, fræðast um svakalega vinsæl Öldungamót og syngja með blaktengdum cover-lögum. Aðalbjörg Árnadóttir segir frá sinni aðkomu að íþróttinni sem spilari, þjálfari og stofnandi blakliðsins “Áhorfendur“. Hallelúja!
    1 hr
  • CISV
    Veistu hvað sum börn borða í sumarbúðum CISV á meðan önnur fá pönnukökur? Vigdís fræðir Gumma um alþjóðasamtökin CISV (ísl. Alþjóðlegar sumarbúðir barna), en honum virðast búðirnar samblanda stjórnleysis og tilraunamennsku á börnum. Hann sannfærist þó um ágæti samtakanna eftir frekari fræðslu, sérstaklega frá Margréti Erlu Maack, CISV-kempu Íslands og gesti þáttarins þessa vikuna.
    1 hr
  • Aukaleikarar
    Veistu hvað aukaleikarar í Bretlandi mega segja mörg orð áður en þeir eru ekki lengur skilgreindir sem aukaleikarar? Vigdís fékk allavegana ekki að segja nein orð þegar hún lék pizzugerðarmanneskju í sjónvarpsþætti. Gummi fræðir Vigdísi um allt sem tengist aukaleikurum, afsakið, bakgrunnslistamönnum. Tveir af fremstu bakgrunnslistamönnum þjóðarinnar, þær Ester Sveinbjarnardóttir og Birgitta Jeanne Sigursteinsdóttir, segja okkur allt sem þú þorðir ekki að spyrja um kvikmyndaiðnaðinn.
    1 hr
  • Rick&Morty
    Veistu hvað Wubba lubba dub dub þýðir á fuglamáli? Vissirðu að tilgang lífsins má finna í sósu sem var gefin út af McDonald's til að kynna Disney myndina Mulan? Í þætti vikunnar fræðast Vigdís og Gummi um bestu teiknimyndaþætti sem framleiddir hafa verið, þættina um Rick og Morty. Rakel Ósk Þorgeirsdóttir kíkir í heimsókn og spyr fólkið sem hélt að það væri nördar spurninga sem láta þau efast um að þau hafi horft nógu oft. Gerumst schwifty og horfum á Rick & Morty til eilífðarnóns, ævintýri Rick og Morty að eilífu í hundrað ár, allan daginn að eilífu Rick og Morty punktur is.
    1 hr
  • Fortnite
    Veistu hvað Elaine úr Seinfeld, Carlton úr Fresh Prince og Instagram stjarnan Backpack Kid eiga sameiginlegt? Þau eru að minnsta kosti öll betri dansarar en Vigdís og Gummi sem reyna að tækla stóru spurningarnar um tölvuleikinn Fortnite í þætti vikunnar. Stefán Atli og Ingi Þór Bauer svipta hulunni af myrkustu leyndarmálum hinnar nýtilkomnu listgreinar að streyma tölvuleikjum. En að þeirra mati skiptir meira máli að fara reglulega úr buxunum en að vera góður í sjálfum leiknum.
    1 hr
  • Áramótaheit
    Veistu hversu hárri prósentu tekst almennt að efna áramótaheit sín? Hún er allavega það lág, að vert er að fara yfir hvað sé mikilvægt að hafa í huga þegar maður setur sér markmið. Gummi og Vigdís hafa ekki strengt nein heit fyrir næsta ár en ræða um hugmyndina og hvers vegna áramót kalli svo sterkt á nýtt upphaf. Vigdís hringir í ömmu og Ragnheiður Stefánsdóttir kemur í heimsókn, en hún strengdi 50 áramótaheit fyrir nokkrum árum. 50!
    1 hr
  • Grýla og Leppalúði
    Veistu hvað Grýla og Leppalúði eiga mörg börn úr fyrri samböndum? Gummi og Vigdís kasta fram ríkjandi hugmyndum og eigin kenningum um þessi umdeildu skötuhjú í síðasta þættinum fyrir jól og komast að því að enn er mörgum spurningum ósvarað. Er Grýla sú eina sem borðar börn? Er hún dáin eða er það samsæriskenning? Er Leppalúði bara skoðanalaus letihaugur? Voru nöfn jólasveinanna valin við fæðingu eða eru þau listamannanöfn? Það er ljóst að enn er margt sem almenningur ekki veit og því liggur beinast við að heyra hvað þau hafa sjálf að segja.
    1 hr
  • Berlínarmúrinn
    Veistu hvað olli því að reistur var rúmlega 140 km langur múr í gegnum Berlín? Gummi og Vigdís eru bæði stödd í höfuðborg Þýskalands og hvað er meira viðeigandi en að fara og skoða minningarsvæði um múrinn? Margrét Rós Harðardóttir, myndlistarkona, sögunörd og ein af Berlínum, sem fræða Íslendinga sem eiga leið um borgina, segir frá upphafi og enda múrsins þar sem mikið er um dauða og hörmungar en pínulítið um samstöðu og partý.
    1 hr

About Veistu hvað?

From the publisher's feed

Veistu hvað? er vikulegur þáttur um alls konar sem þú veist ekkert um, veist mjög mikið um, ættir að vita meira um eða er bara einfaldlega skemmtilegra að vita. Guðmundur Felixson og Vigdís…