Veistu hvað?

Veistu hvað?

By RÚVEducation
Download on the App Store

Veistu hvað? episodes

  • Jóladagatöl
    Veistu um hvað vinsælasta jóladagatalið í Noregi er? Eða hvaða landi datt í hug að telja áreiðanlega niður til jólanna? Eða hvert óþekku börnin í til dæmis Hollandi og Belgíu eru tekin á Nikulásardegi? Gummi og Vigdís fara um víðan völl í umræðu sinni um jóladagatöl og siði og Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri hjá RÚV svarar spurningum um Jóladagatal Sjónvarpsins, lof þess og last.
    1 hr
  • 2118
    Veistu hvað mannkynið mun þurfa að takast á við árið 2118? Verður mannkynið yfir höfuð til árið 2118? Það vita eflaust fáir, en það skaðar ekki að Vigdís og Gummi pæli aðeins í því. Sævar stjörnumaður kíkir í heimsókn og reynir að dempa aðeins svartsýnina sem er augljósasta leiðin til að ímynda okkur heim sem fer stöðugt versnandi. Við reynum að horfa framhjá loftslagsbreytingum og dystópískum framtíðarspám en einblínum þeim mun meira á brauðristarvekjaraklukkur og rafdrifnar tannþráðssnældur.
    1 hr
  • Hláturjóga
    Veistu hvað einkennir alvöru hlátur? Það vita Gummi og Vigdís ekki heldur, enda eiga þau í mestu erfiðleikum með að greina gervihlátur hvors annars. Það ætti þó ekki að koma að sök, því hláturinn lengir lífið hvort sem hann er raunverulegur eða ekki. Umfjöllunarefni þáttarins er hláturjóga og í tilefni af því kíkir Ásta Valdimarsdóttir í heimsókn, fræðir okkur um hláturjóga og kennir okkur nokkrar æfingar.
    Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    1 hr
  • Eve Online
    Veistu hvað Hættuspilið og Latibær eiga sameiginlegt?
    Svar: Bæði áttu þátt í uppbyggingu íslenska fyrirtækisins CCP sem framleiðir fjölnotendanetspunaleikinn Eve Online. Gummi er einn í stúdíói 9 og Vigdís er með höfuðverk í herberginu sínu í Berlín eftir lestur um þennan flókna leik, nei, heim, þar sem lítið er um reglur og lögmálið um framboð og eftirspurn ræður ríkjum. Bergur Finnbogason, starfsmaður CCP, svarar allskyns spurningum um leikinn og spilara hans, sem virðast eiga það til að taka málin í sínar hendur.
    1 hr
  • Spuni
    Veistu hvað spunahugtakið „game“ þýðir? Það vita bæði Gummi og Vigdís enda var það spuni sem leiddi þau saman og er meðal annars ástæða þess að þetta hlaðvarp er til. Að hugsa sér!
    Leikhússpuni á sér langa sögu en spunasenan á Íslandi hefur vaxið mjög hratt á stuttum tíma. Dóra Jóhannsdóttir, leikkona og stofnandi Improv Ísland er gestur þáttarins. Hún kynnti landann fyrir allskyns leikjum og reglum frá risanum í vestri, NÝTT: uppáhalds landi allra, NÝTT: landinum sem við elskum að hata, Bandaríkjunum.
    1 hr
  • Hestamennska
    Veistu hvað hestur kostar? Og vissirðu að það er hægt að taka BS gráðu í reiðmennsku? Vigdís veit meira um hesta en Gummi, enda hefur honum alltaf fundist óþægilegt að fara á hestbak. Hulda frænka Vigdísar kíkir í heimsókn og fræðir okkur um lífið í hestamennskunni. Look at my horse, my horse is amazing!
    1 hr
  • The Room
    Veistu hvað lélegasta kvikmynd sögunnar kostaði í framleiðslu? Svarið er of mikið. Og peningurinn kom allur úr vasa leikstjórans sem skrifaði líka myndina og ákvað að leika aðalhlutverkið. Umfjöllunarefni þáttarins þessa vikuna er the Room, en hún hefur verið kölluð Citizen Kane lélegra kvikmynda. Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur kíkir í heimsókn og fræðir okkur um myrka fortíð hins dularfulla Tommy Wiseau og segir okkur frá hefðunum sem fylgja því að horfa á myndina í bíó.
    1 hr
  • Stjörnuspeki
    Veistu hvað þú ert í mörgum stjörnumerkjum? Já, mörgum, því í stjörnuspeki er horft á stöðu ólíkra pláneta þegar einstaklingur fæðist.
    Gísli Gunnarsson Bachmann áhugamaður um stjörnuspeki og lærlingur Gunnlaugs Guðmundssonar störnuspekings var gestur þáttarins. Hann segir frá áhuga sínum á spekinni og dregur upp mynd af persónuleika Gumma og Vigdísar með því að lesa í stjörnukortið þeirra.
    1 hr
  • Memes
    Veistu hvað lagið All Star með Smashmouth passar vel við Glaðasti hundur í heimi? Umræðuefni þáttarins er fyrirbærið „meme“ (ísl. mem, jarm, farandbrandari, mím) í öllu sínu veldi! Nei kannski í hálfu sínu veldi. Eða jafnvel bara einum nítugasta. Þetta er flókið dæmi.
    Á meðan Vigdís segir Gumma frá uppruna orðsins, upphafi meme-sins og reynir að rekja söguna hatar Gummi internetið. Karl Ólafur Hallbjörnsson meme-nörður kemur með heimspekilegar vangaveltur um fyrirbærið, greinir frá myrkum hliðum þess og lætur Gumma hata internetið enn meira. EN. Svo er sungið!
    1 hr
  • CrossFit
    Veistu hvað eru mörg CrossFit box í heiminum? Það eru allavega fleiri CrossFit box á Íslandi en armbeygjurnar sem Vigdís getur tekið í röð. Gummi og Vigdís fræðast um vörumerkið sem hefur tröllriðið líkamsræktarheiminum og laðað að sér brjálæðinga - nei, afsakið - þátttakendur úr öllum áttum. Evert Víglundsson, einn upphafsmaður CrossFit á Íslandi, talar um hreyfingu af svo mikilli sannfæringu að Gummi og Vigdís enda með að kíkja á æfingu.
    1 hr

About Veistu hvað?

From the publisher's feed

Veistu hvað? er vikulegur þáttur um alls konar sem þú veist ekkert um, veist mjög mikið um, ættir að vita meira um eða er bara einfaldlega skemmtilegra að vita. Guðmundur Felixson og Vigdís…