Veistu hvað?

Veistu hvað?

By RÚVEducation
Download on the App Store

Veistu hvað? episodes

  • Réttir
    Veistu hvað fjallkóngur gerir? Gummi og Vigdís vissu það ekki þó svo að réttir og smölun séu enn í dag stór hluti af hausti fjölmargra Íslendinga. Líneik Jakobsdóttir, gestur þáttarins, segir frá eirðarleysi í smölun, marblettum og túristum í réttum.
    Rétt er að vara við miklu orðagríni. Haha RÉTT!
    Viltu dilk?
    1 hr
  • K-pop
    Veistu hvað BTS, HOT og EXO eiga sameiginlegt? Veistu hvers vegna svona mörg nöfn á K-pop hljómsveitum eru skammstafanir? Vigdís er ekki sannfærð um gæði tónlistarinnar en Gummi reynir að sannfæra hana um gæði þessarar geysivinsælu tónlistarstefnu. Aldís Amah Hamilton kíkir í heimsókn og ræðir hinar ljósu og myrku hliðar kóreska tónlistarbransans og við heyrum mjög margar útgáfur af Gangnam Style. Eiginlega allt of margar útgáfur af Gangnam Style.
    1 hr
  • Að fara í sund
    Veistu hvað Ísland á marga ólympíufara í sundi? Ekki Vigdís og Gummi enda er það ekki til umræðu í þættinum. Umræðuefnið er ekki íþróttagreinin, ekki sagan, ekki hringrásarkerfi sundlauga. Bara að fara í sund. Auk nokkurrra staðreynda að vísu. Gestur þáttarins er að þessu sinni hvorki áhugamanneskja né sérfræðingur um efnið. Hún heitir Rannveig Lind Bjargardóttir og hún fílar einfaldlega ekki að fara í sund .
    1 hr
  • Twitter
    Veistu hvað þarf til að vera fyndinn á Twitter? Það vita Gummi og Vigdís ekki en þeim tekst samt að tala mjög mikið um það. Berglind Festival twitterstjarna segir okkur sín myrkustu tístleyndarmál og Steiney Skúla og Villi Neto ofurnotendur koma líka við sögu. #twitter #podcast #podcastlife #funny
    1 hr
  • Skylmingar
    Veistu hvað má ekki gera í skylmingum? Gummi kemst að því en tileinkar sér ekki þann drengskap sem tíðkast í þessari merku íþróttagrein sem keppt var í á fyrstu nútíma Ólympíuleikunum. Gestur þáttarins er Þorbjörg Ágústsdóttir, margfaldur Íslands- og Norðurlandameistari í höggsverði og fyrrum þjálfari Vigdísar. En garde, prêt, allez!
    1 hr
  • Að rusla
    Veistu hvað það er mikið af mat í heiminum sem fer til spillis? Spoiler alert: Það er einn þriðji af öllum þeim mat sem við framleiðum. Í þættinum í dag fjöllum við um hina pólitísku gjörð að rusla (e. dumpster diving). Hlynur Steinsson ruslmeistari og freeganisti segir okkur frá heitasta gámnum í bænum og gefur hlustendum nokkur ráð um hvernig megi lifa lífi sínu án þess að kaupa hluti. Spoiler alert: Þar koma óskilamunir mikið við sögu.
    1 hr
  • Drag
    Veistu hvað Meatball, Hedda Lettuce og David LaPoop eiga sameiginlegt? Þær eru allar dragdrottningar! Sú síðastnefnda er reyndar ekki til í alvörunni en við hvetjum verðandi dragdrottningar að nýta þetta stórkostlega nafn. Í þættinum í dag fjöllum við um drag. Sigurður Heimir Guðjónsson, betur þekktur sem Gógó Starr kíkir í heimsókn og við lærum um Siggu flipp, sem er hlédræg skrifstofudama sem elskar að fara á froðudiskótek.
    1 hr
  • ABBA
    Veit mamma þín hvað „þriðja hlustunarstig ABBA“ er? Samkvæmt gesti þáttarins, Adolfi Smára Unnarssyni er hún að öllum líkindum á því núna. Gummi og Vigdís tala um upphaf, miðju og endi ABBA áður en Adolf Smári (Dolli) stígur inn og gýs upp fróðleik og sítrónukristal. Hann greinir þessa farsælu hljómsveit sem fagurfræðilegt fyrirbrigði þar sem sænsk þjáning er klædd í þröngan glimmerbúning.
    Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    1 hr
  • Survivor
    Veistu hvað þarf til að verða bestur í Survivor? Vigdís og Gummi reyna að skilja hvað það er sem gerir þessa þætti svo vinsæla að seríurnar verða bráðum orðnar 37 talsins. Pétur Marteinn Urbancic Tómasson kíkir í heimsókn og ræðir taktík, pólitík og sambandsslit sem hafa orðið í þessum leik sem virðist sakleysislegur í fyrstu, en háalvarlegur þegar betur er að gáð.
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    1 hr
  • Súrdeigsbrauð
    Veistu hvað er erfitt að skera súrdeigsbrauð? Gummi veit hvað það reynir á og heldur að það sama gildi um að tala um brauð í klukkutíma. En viti menn! Brauð á sér fleiri hliðar en botninn. Það er heimspekilegt, sögulegt, trúarlegt, samfélagslegt, nú og auðvitað skemmtilegt! Gestur þáttarins er Ragnheiður Maísól, súrdeigsnörd, bloggari og listakona. Hún talar um hveiti, hita, tímann og vatnið og opnar sig um samband sitt við mæður sínar.
    Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    1 hr

About Veistu hvað?

From the publisher's feed

Veistu hvað? er vikulegur þáttur um alls konar sem þú veist ekkert um, veist mjög mikið um, ættir að vita meira um eða er bara einfaldlega skemmtilegra að vita. Guðmundur Felixson og Vigdís…