Veistu hvað?

Veistu hvað?

By RÚVEducation
Download on the App Store

Veistu hvað? episodes

  • Skrafl
    Veistu hvað kúlomb er? Ekki Hildur Lilliendahl heldur, en hún er samt með það skrifað í sérstakt skjal í símanum sínum. Skjal sem er fullt af skrítnum orðum sem hún reynir að læra utanbókar, því hana grunar að einn daginn muni gagnast henni að geta lagt KÚLOMB fyrir fullt fullt fullt af stigum í mikilvægum skraflleik. Í þætti dagsins fræðast Guðmundur og Vigdís um skrafl-samfélagið á Íslandi, tildrög þess að nýr orðapoki er nú notaður í íslensku skrafli og ástæðu þess að Lenku-verðlaunin eru afar eftirsótt hjá ákveðnum skröflurum.
    Veistu hvað? er vikulegur þáttur um alls konar sem þú veist ekkert um, veist mjög mikið um, ættir að vita meira um eða er bara einfaldlega skemmtilegra að vita. Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir reyna að leiða þig (og hvort annað) í sannleikann, sem tekst yfirleitt betur með hjálp góðs gests. Þátturinn er á dagskrá RÚV streymisins, öll fimmtudagskvöld klukkan 21.
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    1 hr
  • Hundarækt
    Veistu hvað eru til mörg hundakyn í heiminum? Það veit Vigdís en það gerir hana ekki hæfari hundapassara. Guðmundur fær skýrari mynd af hundAsýningum og hleypir fram nýrri hlið sinni sem sálgreinir. Gestur þáttarins er Herdís Hallmarsdóttir, formaður Hundaræktarfélags Íslands, hundaræktandi og -eigandi. Hún segir frá starfi félagsins, ræktun á Íslandi og kostum þess að eiga lítinn eða stóran ferfætling.
    Þáttur þessi er tileinkaður Birtu.
    Umsjónarmenn og klipping: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    1 hr
  • Hagmælska
    Veistu nú hvað vísa er?
    því Vigg'og Gummi svara
    hlaðvarpsþáttinn þennan hér
    skalt hlust'á - ekki fara!
    Vigdís og Guðmundur reyna að átta sig á algengustu bragarháttum á Íslandi eins og ferskeytlunni góðu sem er notuð í elstu rímum Íslands. Greindarvísitala Guðmundar tekur stökk við nýja og hávísindalega aðferð og Vigdís fer á lúða-egotripp. Svona geta kvæðin kallað fram ólíka þætti í manni.
    Hagyrðingurinn Unnur Halldórsdóttir kíkti í heimsókn og henti frá sér sögum og fyrripörtum án vand-kvæða.
    Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    Sérstakar þakkir fær Ragnar Ingi Aðalsteinsson.
    1 hr
  • LiFe Stream
    Veistu hvað er pirrandi að gera sér ferð að kaffikönnu sem er svo tóm!? Gummi og Vigdís velta fyrir sér beinni útsendingu og spennunni, en jafnframt áhættunni, sem fylgir því að sýna líf sitt í beinni. Aron Már Ólafsson, oft þekktur sem Aronmola, deilir reynslu sinni af ólíkum miðlum og ráðum til þáttastjórnenda um hvað þurfi til að halda áhorfendum áhugasömum.
    Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    1 hr
  • Chili
    Veistu hvað sterkasti chili pipar í heiminum heitir? Hefurðu heyrt um Chili Klaus? Það veit Vigdís ekki eða neitt annað um chili-bylgjuna sem hefur tröllriðið netheimum síðustu misseri. Gummi er hinsvegar búinn að rannsaka kapsaísín og Scoville skalann og með hjálp Björns Teitssonar chili-sérfræðings reyna þau að komast til botns í því hvers vegna fólk leggur á sig þá þolraun að borða ómannlega sterka pipra.
    Tenglar:
    Facebook-hópurinn Ég ann chili: https://www.facebook.com/groups/268766466581646/
    Vúlkan vefverslun: http://vulkan.karfa.is/
    Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    1 hr
  • Skátar
    Veistu hvað skátar taka með sér í ljós? Svarið kemur í ljós (hehe) í þessari skátasprengju! Gummi var eitt sinn skáti og þarf ekki að vera það ennþá frekar en hann vill, en Vigdís hefur aldrei verið í skátunum þrátt fyrir einkar skátalegt yfirbragð. Inga Auðbjörg Straumland kíkir í heimsókn og kennir Gumma og Vigdísi eitt og annað um útilegur, tevur og skátaútgáfur af gömlum Eurovisionlögum!
    Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    1 hr
  • D&D
    Veistu hvað þú átt að gera þegar tröllið neitar að hleypa þér yfir brúna? Gummi og Vigdís reyna að komast að því í þætti sem fjallar um spunaspilið Dungeons and Dragons (ísl. Drekar og dýflissur). Gummi lærir um tilkomu spilsins, gagnrýni í gamla daga og jákvæð áhrif þess í dag og Vigdís lærir enska orðið „barbarian“. Gestur þáttarins er Þorsteinn Mar Gunnlaugsson erkinörd og stjórnandi facebookhópsins Roleplayers á Íslandi. Alea iacta est!
    Umsjónarmenn og klipping: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    1 hr
  • ASMR
    Veistu hvað ASMR stendur fyrir? Það vita Gummi og Vigdís allavega... núna. Rætt er um svokallað „heilakitl“, tilkomu hugtaksins, samfélag ASMRara og fleira áhugavert. Gummi og Vigdís reyna að lýsa tilfinningu sem þau finna ekki sjálf en fá íslenska ASMR-listamanninn Ingibjörgu Aldísi Hilmisdóttur til að hjálpa sér. Hún er einnig þekkt sem Nordic Whisper í ASMR-heiminum.
    Linkur á YouTube-rás Ingibjargar:
    https://www.youtube.com/channel/UCgwJntW3LwxouttnTcaZ3Zw
    Uppáhalds ASMR-myndband Vigdísar:
    https://www.youtube.com/watch?v=orD6yIilR0A&t=384s
    Umsjónarmenn og klipping: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    1 hr

About Veistu hvað?

From the publisher's feed

Veistu hvað? er vikulegur þáttur um alls konar sem þú veist ekkert um, veist mjög mikið um, ættir að vita meira um eða er bara einfaldlega skemmtilegra að vita. Guðmundur Felixson og Vigdís…