Í síðustu viku fór að bera á myndböndum á netinu og samfélagsmiðlum með yfirskriftinni ?Veldu núna.? Þar gafst áhorfendum færi á að aðstoða tvær persónur að komast undan í æsispennandi eltingaleik með því að velja reglulega milli tveggja valkosta. Sem sagt hvort að persónurnar ættu að velja leið A eða leið B í hvert sinn og þá auðvitað með mismunandi útkomu. Við fengum Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF í þáttinn til þess að segja okkur frá þessu verkefni og af hverju UNICEF er að koma að framleiðslu svona gagnvirkrar spennusögu og hvað hún kemur heimsforeldrum við.
Óskarsverðlaunin voru afhend í nótt og því fengum við hina einu sönnu Húsavíkur-Siggu til að skoða með okkur úrslitin. Það er sem sagt Sigríður Pétursdóttir kvikmyndafræðingur, sem er fædd á Húsavík, eins og aðalpersóna Netflix-kvikmyndarinnar Eurovision sem heitir líka Sigga.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV. Hún og hennar deild aðstoðar okkur hér á RÚV við að vera á réttum slóðum þegar kemur að okkar ástkæra og ylhýra tungumáli, íslenskunni. Við fengum að vita hvaða bækur eru á náttborðinu hjá henni, hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG MARGRÉT BLÖNDAL