Hljómsveitin Ylja hefur gert það mjög gott undanfarin ár og er að senda frá sér nýja plötu sem samanstendur af rammíslenskum þjóðlögum í þeirra búning. Þær Guðný Gígja Skjaldardóttir og Bjartey Sveinsdóttir úr Ylju komu í þáttinn og sögðu frá plötunni og frumfluttu lagið Grafskrift í beinni útsendingu.
Friðarsúlan í Viðey verður tendruð í 12. sinn með friðsælli athöfn á morgun, á fæðingardegi John Lennon. Friðarsúlan mun varpa ljósi upp í himininn til 8. desember sem er dánardagur Lennon. Boðið er upp á fríar ferjusiglingar og strætóferðir fyrir og eftir tendrunina. Listasafn Reykjavíkur og boðið verður uppá tónlistaratriði í kjölfar þess að súlan verður tendruð. Björg Jónsdóttir verkefnastjóri viðburða á skrifstofu menningarmála hjá Reykjavíkurborg kom í þáttinn.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var tónlistarmaðurinn Hörður Torfason. Við fengum að vita hvaða bækur eru á náttborðinu hjá honum, hvað hann er að lesa þessa dagana og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina. Hörður var sjálfur að gefa út bókina Bylting, þar sem hann skrifar um mótmælin í kjölfar hrunsins fyrir tíu árum, þar sem hann var í broddi fylkingar.
Umsjón Lísa Pálsdóttir og Gunnar Hansson