Sérfræðingur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Yrsa Löve ofnæmislæknir. Nú er einmitt tíminn þar sem fólk er farið að finna fyrir til dæmis frjókornaofnæmi, mörg jafnvel án þess að átta sig á því að það sé einmitt frjókornaofnæmi. Svo eru það öll hin ofnæmin, fyrir vissum matartegundum, fyrir dýrum og fleiru. Yrsa sagði okkur í fyrri hluta þáttarins frá starfi sínu og hennar helstu verkefnum þar og fræddi okkur almennt um ofnæmi. Og svo í seinni hluta þáttarins svaraði hún spurningum sem hlustendur hafa sent í pósthólf þáttarins,
[email protected]. Spurningarnar voru fjölbreyttar, til dæmis um ónæmiskerfið og ónæmismeðferð, snyrtivörur, gæludýr, ofsakláða, matarofnæmi, hvort ofnæmi erfist og fleira.