Heimskviður

137| Plastmengun á Norðurslóðum og málsókn Nígeríumanna gegn Shell


Listen Later

Þó plastmengun í hafi sé heldur lítil á Norðurslóðum miðað við til dæmis Miðjarðarhafið þá er hún að aukast. Og hvaðan kemur þessi plastmengun á svæðinu sem sárafáir búa á? Það er mikið til úr sjávarútveginum, en sömuleiðis áhrif frá okkur, til dæmis úr dekkjakurli og í plastþráðum úr útivistarfatnaði sem losna úr þeim við þvott og komast þannig út í umhverfið. Hallgrímur Indriðason var á ráðstefnu Arctic frontiers á dögunum, þar sem plastmengun á Norðurslóðum var meðal annars til umfjöllunar.
Tæplega fjórtán þúsund íbúar Nígeríu hafa höfðað mál fyrir dómstólum í London gegn olíurisanum Shell fyrir gengdarlausa og áratuga langa olíuvinnslu í landinu með tilheyrandi mengunarslysum og lekum. Íbúarnir tilheyra Ogale og Billie sem eru landbúnaðar- og veiðisamfélög sem búa við ósa Nígerfljóts í suðurhluta landsins. Þeir saka Shell um gríðarlega mengun í vatnsuppsprettum og eyðileggingu á vistkerfum, sem hefur dregið úr lífsgæðum og umturnað lífinu á svæðinu. Kröfurnar eru settar fram bæði í nafni einstaklinga en einnig stofnana eins og kirkna og skóla. Fólkið krefst þess að olíufyrirtækið axli ábyrgð og sjái um það umfangsmikla hreinsunarstarf sem nauðsynlegt er til þess að endurheimta sómasamlegt líf við ósana. Einnig gerir fólk kröfu um skaðabætur fyrir hörmungarnar sem olíuvinnslan hefur valdið fyrir fiskveiðar og landbúnað. Forystumenn Shell halda fast í þá skoðun að kröfurnar séu tilhæfulausar. Það segist ekki bera ábyrgð á þjófnaði og skemmdarverkum skipulagðrar glæpastarfsemi sem það segir hafi valdið stórum hluta slysanna. Þessi átök teygja sig eins og svo víða annars staðar í Afríku aftur til nýlendutímans og málaferlin eru aðeins einn kafli í flókinni sögu olíuvinnslu Shell í Nígeríu, sem nú hyggst hætta vinnslu þar eftir langa viðveru. Jóhannes Ólafsson fjallar um málið.
Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

15 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

482 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

25 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

93 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

33 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

36 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners