Heimskviður

143| Gagnaleki og Biden á Írlandi og sambúð Moldóvu og Rússlands


Listen Later

Fjögurra daga heimsókn Joe Bidens bandaríkjaforseta til Írlands og Norður-Írlands lauk í gær en afar óvenjulegt er að bandaríkjaforsetar staldri svo lengi við í opinberum erindagjörðum. Biden hefur svo gott sem staðfest að hann ætli að berjast fyrir endurkjöri eftir rúmt ár og tímasetning heimsóknarinnar heppileg til að afla vinsælda í kosningabaráttunni, en friðarsamkomulagið á Írlandi, sem bandaríkjastjórn hafði milligöngu um árið 1998, er eitt af því fáa sem andstæðir pólar í bandarískum stjórnmálum líta sömu augum, og það þykir afar vel heppnað. Írskar rætur liggja víða í bandaríkjunum og því hafa þarlendir forsetar ítrekað heimsótt eyjuna grænu þegar líða fer að kosningum, en það sem hefði átt að vera vika Bidens, þar sem hann gæti hossað sér á hlut sínum og Bandaríkjanna í friðarsamkomulaginu og reynt að miðla málum að nýju, reyndist heldur vandræðaleg vegna gagnaleka sem staðfesti njósnir bandaríkjastjórnar um samherja sína og vantrú á sókn úkraínuhers gegn Rússum. Bjarni Pétur fjallar um málið.
Sem stendur er Moldóva á berangri. Rússar vilja halda landinu á sínu áhrifasvæði en stjórnvöld í Moldóvu stefna óhikað að því að verða eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins. Þá er Moldóva það ríki utan Úkraínu, sem hefur fundið hvað mest fyrir afleiðingum innrásar Rússa. Eins óttast stjórnvöld í Moldóvu að vera næst á lista Pútíns Rússlandsforseta og segja Rússa með ýmsum ráðum reyna að seilast til áhrifa. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.
Umsjónarmenn Heimskviða eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

15 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

482 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

25 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

93 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

33 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

36 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners