Heimskviður

154| Náttúruhamfarir í Afríku, kosningar í Póllandi og Novo Nordisk


Listen Later

Í Heimskviðum í dag förum við víða eins og venjulega, náttúruhamfarir í Afríku, pólitík í Póllandi og fjöllum svo um verðmætasta fyrirtæki Evrópu.
Íbúar Norður-Afríku máttu þola tvenns konar náttúruhamfarir á þremur dögum um síðustu helgi. Mikið manntjón varð eftir jarðskjálfta í Marokkó og flóð í Líbíu og íbúar kvarta undan því að neyðaraðstoð berist ekki nógu hratt. Bjarni Pétur ræddi við Jóhann Thoroddsen sálfræðing sem fór á vettvang jarðskjálftanna í Bam í Íran í byrjun aldarinnar og svo aftur á Haítí. Og hann þekkir vel þessa vinnu sem fer af stað þegar svona hamfarir verða, hvernig unnið er úr áföllunum og hvernig líðan fólks við þessar aðstæður.
Við fjöllum um verðmætasta fyrirtækið í Evrópu. Það er danskt en er þó hvorki LEGO né Carlsberg. Það heitir Novo Nordisk og hagvöxtur danska ríkisins var á fyrri helmingi ársins keyrður áfram á þessu eina fyrirtæki. Fyrirtæki sem er metið með hærra markaðsvirði en heildarvirði danska hagkerfisins. Birta kynnti sér sögu Novo Nordisk.
Svo förum við til Póllands. Vaxandi skautun og óvægin umræða um pólitíska andstæðinga einkennir kosningabaráttuna í Póllandi, þar sem þingkosningar verða haldnar fimmtánda október. Stjórnarflokkurinn, sem á pólsku kallast Lög og réttlæti, hefur verið við völd frá 2015. Nái flokkurinn aftur meirihluta, yrði það í fyrsta skipti síðan 1989, þegar kommúnistar létu af völdum í Póllandi, að sami flokkur haldi um stjórnartaumana þrjú kjörtímabil í röð. Það verður spennandi að sjá hvort það takist því skoðanakannanir benda til þess að stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, Borgaravettvangur - gæti unnið nauman sigur og mögulega púslað saman meirihlutastjórn með smærri flokkum. Björn Malmquist, fréttaritari RÚV í Brussel, var í Póllandi á dögunum.
Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

15 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

480 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

150 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

93 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

33 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

12 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

34 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners