Heimskviður

163| Stjórnarkreppa á Spáni og sextugar samsæriskenningar


Listen Later

Stjórnarkreppan sem hefur verið á Spáni síðan í júlí leystist á fimmtudaginn þegar 179 þingmenn á spænska þinginu greiddu atkvæði með tillögu Pedros Sanchez, leiðtoga sósíalista, um meirihlutastjórn. Sanchez er þannig búinn að púsla saman átta flokka meirihluta og verður áfram forsætisráðherra Spánar - eftir umdeilt samkomulag við flokka aðskilnaðarsinna í Katalóníu. Það samkomulag snýst meðal annars um sakaruppgjöf fyrir þrjú til fjögur hundruð manns sem komu að atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu. En hvernig lítur þetta samkomulag út, um hvað er deilt og hver er forsagan? Björn Malmquist ræddi spænsk stjórnmál við Jóhann Hlíðar Harðarson sem hefur búið á Spáni síðustu ár og Montserrat Riba Cunill, sem er yfirmaður sendinefndar Katalóníu fyrir Norðurlönd og Eystrasaltslöndin.
Þann 22.nóvember verða 60 ár liðin frá því að John F. Kennedy, þá forseti Bandaríkjanna, var skotinn til bana í Dallas í Texas í Bandaríkjunum. Í síðasta mánuði fjölluðu flestir stærstu bandarísku fjölmiðlanna um nýja bók leyniþjónustumanns sem var á staðnum þegar Bandaríkjaforsetinn var myrtur. Hann ákvað að gefa út endurminningar sínar sex áratugum eftir atburðinn, en frásögnin hefur enn og aftur þyrlað upp umræðu og kenningum um hver eða hverjir voru að verki þennan örlagaríka dag í Dallas. En af hverju er enn verið að skrifa fréttir um sannarlega sviplegt andlát Kennedys? Alls konar kenningar og samsæriskenningar hafa í gegnum tíðina verið viðloðandi umfjöllun um málið, sem sextíu árum síðar virðist enn tilefni til að fjalla um. Og það gerir Birta Björnsdóttir í þættinum með aðstoð Magnúsar Sveins Helgasonar, sagnfræðings og sérfræðings í bandarískri sögu.
Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

15 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

480 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

148 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

25 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

93 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

33 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

35 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners