Heimskviður

171 - Glæpagengi í Mexíkó og Ingebrigtsen fjölskyldan


Listen Later

Hvað gerir móðir þegar dóttur hennar er rænt og hún drepin af mönnum sem tilheyra skipulögðum glæpasamtökum? Vitandi af gjörspilltu og um margt lömuðu stjórnkerfi heimalands síns ákvað hin mexíkóska Miriam Rodríguez að taka málin í sínar hendur og hefna dóttur sinnar. Saga hennar er sögð í nýlegri bók eftir Azam Ahmed, blaðamann á New York Times. Við ræðum við Azam í Heimskviðum í dag en í bókinni er einnig sagt frá uppgangi og miklum áhrifum glæpagengja í Mexíkó. Þó einhver árangur hafi náðst í að draga úr áhrifum þeirra eru skipulögð glæpasamtök fimmti stærsti atvinnurekandinn í Mexíkó. Um 175 þúsund eru talin starfa innan þeirra vébanda.
Svo fjöllum við um sögu einnar þekktustu fjölskyldu Noregs. Sennilega þeirrar þekktustu fyrir utan norsku konungsfjölskylduna. Það er Ingibrigtsen fjölskyldan en í henni eru þrír af heimsins bestu hlaupurum og þeir sökuðu á dögunum föður sinn, sem hefur þjálfað þá frá barnæsku, um að beita sig andlegu og líkamlegu ofbeldi frá því þeir voru smástrákar. Lögreglurannsókn stendur nú yfir og þetta hefur klofið fjölskylduna sem norska þjóðin hefur fylgt síðustu ár í sjónvarpsþáttunum Team Ingebrigtsen. Yngsti bróðirinn, Jacob, er einn besti hlaupari sem Norðmenn hafa alið og hann ætlar að freista þess í París í sumar að verja ólympíugullið sem hann náði á leikunum í Tokyo 2021, en það gæti reynst honum erfitt án þjálfarans og pabba síns sér við hlið.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

14 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

474 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

93 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

22 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners