Sign up to save your podcasts
Or

Viðmælandi þáttarins er Hermann Kristjánsson, stofnandi og fyrrum framkvæmdastjóri Vaka, sem er 30 ára gamalt hátæknifyrirtæki sem býr til búnað fyrir fiskeldi. Hermann er fæddur árið 1962 og ólst upp í Kópavogi og Garðabæ. Hann gekk í Fjölbrautaskólann í Garðabæ og Flensborg og síðan lá leið hans í Háskóla Íslands í rafmagnsverkfræði. Hermann stofnaði Vaka árið 1986 þegar hann var enn í háskólanámi með það að markmiði að tæknivæða fiskeldi. Fyrirtækið starfaði í 30 ár og bjó til 40 mismunandi vörur, m.a. til að telja, stærðarmæla, dæla og flokka lifandi fiska í fiskeldi og laxveiðiám. Fyrirtækið velti tæplega 2 milljörðum króna á ári undir lokin og var með dótturfélög í Noregi, Skotlandi, Chile og Kanada. Árið 2016 var Vaki selt til bandaríska fyrirtækisins, Pentair Aquatic Systems og starfaði Hermann þar í tvö ár þangað til það var síðan selt áfram til fyrirtækisins, Merck, þar sem Hermann starfaði sem ráðgjafi þar til hann sagði skilið við við fyrirtækið eftir 32 ár. Í dag situr Hermann í stjórnum ýmissa nýsköpunarfyrirtækja og sinnir hestamennsku af miklu kappi þess í milli.
Þátturinn er kostaður af Icelandair.
By Sesselja Vilhjálms5
1010 ratings

147 Listeners

217 Listeners

88 Listeners

23 Listeners

21 Listeners

72 Listeners

29 Listeners

30 Listeners

22 Listeners

14 Listeners

6 Listeners

6 Listeners

4 Listeners

27 Listeners

10 Listeners