360 Heilsa

360 Heilsa

By Rafn Franklin JohnsonAlternative HealthHealth & Fitness
Download on the App Store

360 Heilsa episodes

  • #19. Hvernig öndun getur breytt lífi þínu (og barnanna þinna) með Patrick Mckeown
    Gestur þessa þáttar er öndunarsérfræðingurinn Patrick Mckeown.

    Patrick er sérhæfður í Buteyko öndunarfræði sem hann lærði í Rússlandi árið 2002 undir Professor Konstantin Buteyko. Síðan þá hefur Patrick unnið með þúsundum fólks, allt frá börnum og fullorðnum með asmtma, svefnörðugleika og öndunarvandamál yfir í afreksíþróttafólk og ólympíufara. Hann hefur hingað til skrifað 8 bækur um öndun og nýjasta bókin hans "The Oxygen Advantage" hefur náð gríðarlegum vinsældum um allann heim og verið þýdd á 10 tungumál.

    -------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvorur.is www.hreyfing.is www.purenatura.is - Kóði: "360heilsa" f. 25% afslátt -------------- Þessi þáttur var unninn af Arnari Dór Ólafs.
    1 hr 17 min
  • #18. Ert þú meðvirk/ur? með Gyðu Dröfn Tryggvadóttir
    Ath. Ég biðst innilegrar velvirðingar á lélegu hljóði í þættinum. Tæknin var ekki nógu meðvirk. Gestur þáttarins í dag er Gyða Dröfn Tryggvadóttir. Hún starfar sem meðvirkiráðgjafi og kennari á sviði núvitundar og meðvirkni. Gyða er með meistargráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu frá háskólanum í Rvk og síðan hefur hún lokið námi í meðvirknifræðum Piu Mellody, sem er leiðandi sérfræðingur í þessum fræðum. Gyða færir rök fyrir því að meðvirkni verði til í æsku en sé ekki meðfætt fyrirbæri. Hún komi þá fram vegna óheilbrigðra fjölskyldumynstra. Mér fannst þetta þvílíkt áhugavert spjall og ef það er eitthvað sem ég persónulega tók útúr þessu spjalli er að meðvirkni er töluvert algengari heldur en mig hefði nokkurn tíman grunað. En sem betur er til lausnin við að brjóta meðvirkishegðunina og hana er að finna í þættinum. -------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvorur.is www.purenatura.is - Kóði: "360heilsa" f. 25% afslátt -------------- Þessi þáttur var unninn af Arnari Dór Ólafs.
    1 hr 10 min
  • #17. Vegferðin að bættri heilsu, tilgangur o.fl með Sölva Tryggva

    Gestur þáttarins í dag er enginn annar en fjölmiðlamaðurinn og heilsumógúllinn Sölvi Tryggvason. Eins og eflaust margir landsmenn vita þá hefur Sölvi frá áhugaverðri sögu að segja um sitt ferðalag í átt að bættu heilbrigði og betri útgáfu af sjálfum sér sem hann fjallar um í bókinni sinni "á eigin skinni". Í þessum þætti spjölluðum við um vegferðina að bættri heilsu og hvað þarf að vera til staðar til að taka jákvæð skref í átt að bættri heilsu. Við köfuðum síðan í dýpri sálma eins og tilgang, drauma og fleira. --------------- Samstarfsaðilar þáttarins:

    www.blublox.com - 15% afsláttur m. kóða "360heilsa" www.evenlabs.is - 20% afsláttur m. kóða "360heilsa" www.purenatura.is - 25% afsláttur m. kóða "360heilsa" www.sportvorur.is

    1 hr 20 min
  • #16. Aðgerðir sem ég ætla að tileinka mér til varnar gegn COVID-19
    Í þessum þætti fer ég yfir nokkur atriði sem ég persónulega hef og ætla að tileinka mér til að verja mig sem best gegn Covid veirunni. Miðað við þá gríðarlegu umfjöllun sem hefur átt sér stað síðastliðnar vikur þá finnst mér klárlega vanta heilsuvinkilinn í umræðuna. Hvað getum við sem einstaklingar gert til að gera okkur enn hraustari og heilsusamlegri til að vera betur í stakk búin til að takast á við veiruna ef við skyldum fá hana. ------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.blublox.com - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt www.hreyfing.is www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 25% afslátt
    22 min
  • #15. Taugakerfið, streita, öndun, munnteip, hreyfiflæði o.fl með Einari Carl

    Gesturinn í þessum þætti er Einar Carl, einn af stofnendum og eigandi Primal Iceland líkamsræktarstöðinni í Faxafeni 12. Einar er með virkilega áhugaverða og óhefðbundna sýn á hreyfingu og hvernig streita, taugakerfið, öndun og hreyfing hangir allt saman og getur verið beitt á mismunandi vegu til að vinna á ýmis stoðkerfis- og heilsufarsvandamálum. Við fórum um víðan völl og köfuðum ofan í allskyns áhugaverða hluti eins og taugakerfið, streitu, öndun, munnteip, hreyfiflæði og margt fleira. Ef þú vilt kynnast Einari Carl meira og því sem hann er að gera getur þú farið inn á www.primal.is eða einfaldlega kíkt á þá í Faxafeni 12. --------------- Samstarfsaðilar þáttarins: - www.evenlabs.is - 20% afsláttur "360heilsa" - www.sportvorur.is - www.hreyfing.is

    1 hr 32 min
  • #14. Q&A - Feitir einkaþjálfarar, föstur, mjólkurvörur, sólarupprás og fleira.

    Í þessum nýja Q&A þáttarlið hjá mér svara ég spurningum hlustenda og gef mitt álit á öllu mögulegu sem við kemur heilsu. - Til að senda inn spurningu í þáttinn ferðu einfaldlega inn á www.360heilsa.is/spurningar og sendir inn. Ég geri mitt besta til að svara þeim spurningum í þættinum sem ég tel eiga við. - Ég svara öllum spurningum einungis útfrá persónulegri reynslu, skoðun og þekkingu og ætti því undir engum kringumstæðum að túlka þau svör sem ráðgjöf af neinu tagi. ----- Samstarfsaðilar þáttarins: - Hreyfing heilsulind - www.hreyfing.is - Pure Natura - www.purenatura.is

    37 min
  • #13. Kírópraktík, líkamsstaða, functional þjálfun og af hverju þú ættir að æfa berfættur með Matta Kíró
    Mattías Arnarson, lærður kírópraktor, kom til mín í þáttinn í dag. Við spjölluðum um allskyns hluti eins og hver er ávinningur þess að heimsækja kírópraktor, mikilvægi líkamsstöðu og afleiðingar slæmrar líkamsstöðu, functional þjálfun, af hverju þú ættir hugsanlega að endurskoða skóna sem þú notar og í staðinn eyða meiri tíma berfættur og margt fleira. Ekki gleyma að smella á subscribe til að missa ekki af næsta þætti! ---------- Samstarfsaðilar þáttarins: -www.sportvorur.is -www.blublox.com- kóði: "360heilsa" f. 15% afslátt -www.purenatura.is- kóði: "360heilsa" f. 25% afslátt
    1 hr 20 min
  • #12. Líkamsklukkan, gervibirta, "Blue Blocker" gleraugu o.fl með Andy Mant
    Í þessum þætti spjallaði ég við mann að nafni Andy Mant. En Andy er stofnandi fyrirtækisins BLUblox sem að selur svokölluð "Blue Blocker gleraugu" sem vernda augun frá ákveðinni birtu sem getur haft neikvæð áhrif á svefn og heilsu. Andy er gríðarlega fróður um allt sem tengist birtu, ljósi, líkamsklukkum og hvaða áhrif þetta allt saman hefur á líkamann en þessir hlutir eru nefnilega gríðarlega mikilvægir þegar kemur að heilsu og það er margt sem þarf að hafa í huga. ---------- Samstarfsaðilar þáttarins: -www.hreyfing.is -www.dropi.is- kóði: "360heilsa" f. 15% afslátt -www.blublox.com- kóði: "360heilsa" f. 15% afslátt -www.purenatura.is- kóði: "360heilsa" f. 25% afslátt
    1 hr 8 min
  • #11. 7 Ástæður fyrir því að þú ert ekki að grennast + Q&A (föstur, melting o.fl.)

    Í þessum þætti fer ég yfir 7 hugsanlegar ástæður fyrir því að þú ert ekki að grennast. Þrátt fyrir að í grunninn snúist fitubrennsla að því að brenna fleiri kaloríum en við tökum inn, þá eru fleiri þættir sem spila inn í þessa jöfnu og hafa áhrif á niðurstöðurnar. Q&A - spurt og svarað

    Í þessum þætti kynni ég inn nýjan lið í hlaðvarpinu sem virkar þannig að hlustendur hafa færi á að senda inn spurningar í þáttinn sem ég geri mína bestu tilraun á að svara. Fyrir hvern Q&A þátt fer ég yfir þær spurningar sem hafa verið sendar inn og vel nokkrar áhugaverðar til að svara í þættinum. Með því að fara inn á www.360heilsa.is/spurningar getur þú sent inn þína spurningu í þáttinn. --------------- Samstarfsaðilar þáttarins:

    -www.dropi.is - kóði: "360heilsa" f. 15% afslátt -www.blublox.com - kóði: "360heilsa" f. 15% afslátt -www.purenatura.is - kóði: "360heilsa" f. 25% afslátt

    38 min
  • #10. Hvaða áhrif hafa raftækin okkar á heilsuna? - Rafsegulbylgjur og áhrif raftækja á heilsu með Valdemar Gísla
    Málefni þáttarins í dag er ansi umdeilt en ég fékk til mín Valdemar Gísla Valdemarsson rafeindavirkjameistara til að ræða um hugsanleg heilsuspillandi áhrif rabylgna á líkamann. Valdemar er skólastjóri raftækniskólans og framkvæmdarstjóri fyrirtækisins Vitalis. Hann hefur eytt síðastliðnum 25 árum í að kynna sér rafsegulfræði og hugsanleg áhrif rafbylgna á líkama manna og dýra. Af því sem mér skilst eru rannsóknir á þessum málefnum ekki komnar langt á veg en rétt eins og fyrir 10-15 árum síðan þá þótti hugleiðsla vera algjör vitleysa og eitthvað sem bara hippar og furðufuglar stunduðu. Í dag hafa vísindin hinsvegar sýnt trekk í trekk ávinning þess að hugleiða og nú er hugleiðsla notuð af nánast öllu íþróttafólki og orðin samfélagslega samþykkt. Kannski eru rafsegulbylgjur eitthvað sem við þurfum að vera meðvitaðari um. Þú kemst að því með því að leggja við hlustir á þáttinn.

    ----------

    Samstarfsaðilar þáttarins:

    -www.hreyfing.is

    -www.dropi.is - kóði: "360heilsa" f. 15% afslátt

    -www.blublox.com - kóði: "360heilsa" f. 15% afslátt

    -www.purenatura.is - kóði: "360heilsa" f. 25% afslátt

    1 hr 18 min

About 360 Heilsa

From the publisher's feed

Hér finnur þú allt sem snýr að bættri heilsu, bættum árangri og betri líðan. Hlustaðu á viðtöl við allskyns sérfræðinga á sviði líkamsræktar og heilsu til að fá nýjustu upplýsingar og vísindi beint í…

More shows like 360 Heilsa

Hlaupalíf Hlaðvarp by Vilhjálmur Þór og Elín Edda

Hlaupalíf Hlaðvarp

5 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Draugar fortíðar by Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

72 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

13 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

9 Listeners