360 Heilsa

360 Heilsa

By Rafn Franklin JohnsonAlternative HealthHealth & Fitness
Download on the App Store

360 Heilsa episodes

  • #9. Áhrif eiturefna úr umhverfi, matvörum, snyrtivörum o.fl. á heilsuna okkar með Unu Emils lækni
    Í þessum þætti fékk ég til mín Unu Emilsdóttur en Una er læknisfræðimenntuð úr kaupmannahöfn og starfar í dag sem sérnámslæknir í lyflækningum hjá Landspítalanum. Í læknisfræðinni var eitt fag sem virkilega kveikti áhuga hennar en það var það sem kallast umhverfislæknisfræði "eða Environmental and Occupational Medicine" en þar er fjallað um eiturefni í nærumhverfi okkar, matvælum, snyrtivörum o.fl og farið yfir hvernig þessi efni geta haft skaðleg áhrif á heilsu okkar. Síðastiliðin ár hefur hún kafað ofan í þessi fræði utan skólans og haldið fjöldan af fyrirlestrum um málefnið til að fræða fólk um þær hættur sem geta stafað af þessum efnum sem umkringja okkur. ----------- Samstarfsaðilar: -Dropi -Hreyfing -www.blublox.com - kóði: "360heilsa" f. 15% afslátt -www.purenatura.is - kóði: "360heilsa" f. 25% afslátt
    1 hr 52 min
  • #8. Mismunandi andlit streitu - Streita, kulnun og andleg heilsa með Snædísi Evu Sigurðar

    Stress eða streita á ekki bara við um stress vegna vinnu eða skóla. Streitan kemur að okkur úr öllum áttum og því skiptir máli að auka meðvitund á því hvernig mismunandi andlit streitu líta út og mynda sér þaðan streitustjórnunar aðferðir til að halda kerfinu í jafnvægi. Í þessum þætti spjalla ég við Snædísi Evu Sigurðardóttir sem er menntaður sálfræðingur, með streitu og kulnun sem sérsvið. Snædís starfar í Heilsuborg og segir að yfir 50% af hennar skjólstæðingum séu að kljást við streitutengd vandamál. Í þættinum ræðum við um allt það helsta sem tengist streitu og Snædís kemur með ansi áhugaverða vinkla varðandi málefnið!

    1 hr 20 min
  • #7. 7 leiðir til að bæta svefngæðin

    Í þessum þætti langar mig að fara yfir svefninn aðeins. Svefn er að mínu mati bæði vanmetið og misskilið fyrirbæri. Svefn er ekki bara svefn heldur skipta gæði svefnsins höfuðmáli. Þessvegna langar mig að fara yfir með þér 7 leiðir til að bæta svefngæðin.

    Þú finnur síðan upplýsingar um allt sem ég tala um í þættinum á www.360heilsa.is/svefn

    38 min
  • #6. Carnivore mataræði, vegan og umhverfisáhrif með Ævari Austfjörð

    Í þessum þætti ræddi ég við Ævar Austfjörð sem hefur tileinkað sér svokallað carnivore mataræði. En það snýr að því að neyta aðeins dýraafurða. Þetta mataræði hjálpaði honum að vinna á ýmsum heilsufarsvandamálum en á sama tíma þykir það afar umdeilt. Við ræddum um mataræðið, áhrif þess á heilsu og umhverfið,hans skoðanir á vegan mataræði, game changers myndina og margt fleira.

    1 hr 37 min
  • #5. Ísböð, hugarfar og streita með Andra Iceland

    Í þessum þætti spjalla ég við íslenska ísmanninn Andra Iceland. Andri hefur frá magnaðri sögu að segja þar sem hann vann bug á krónískum taugaverkjum með ísböðum. Við förum yfir allt það helsta sem þarf að hafa í huga þegar kemur að ísböðum, hugarfarið sem Andri hefur tileinkað sér, áhrif streitu á líkamann o.fl.

    1 hr 13 min
  • #4. Hvaða mataræði er best fyrir heilsuna?

    Í þessum þætti spjalla ég um eina áhugaverðustu bók sem ég hef lesið. Fyrsta bókin sem ég las um mataræði, sem varpaði ljósi á raunverulegar afleiðingar vestræns mataræðis á heilsuna okkar. Bókin heitir Nutrition and Physical Degeneration og er skrifuð árið 1939 af tannlækni sem hét Dr. Weston Price. Sagan er vægast sagt mögnuð og gefur okkur innsýn í það hvernig frumbyggjasamfélög höguðu mataræði sínu og hvernig þau viðhéldu framúrskarandi heilbrigði.

    42 min
  • #3. Heilbrigð ástarsambönd, kynjahlutverk, hugarfar og karlmennska með Ólafi Árna
    Í þessum þætti spjalla ég við Ólaf Árnason sálfræðing um hvað þarf til að viðhalda heilbrigðum ástarsamböndum og hjónaböndum. Við snertum einnig á viðfangsefnum á borð við kynjahlutverk og karlmennsku. Ólafur er með BA próf í sálfræði frá truman state og einnig MA próf í sálfræði frá sonoma state í BNA. Hann hefur starfað sem sálfræðingur fyrir karlalandsliðið í fótbolta ásamt því að sinna dagsdaglega sálfræðiráðgjöf fyrir íþróttafólk, stjórnendur, einstaklinga og pör.
    1 hr 26 min
  • #2. Heilsa, mataræði og eldamennska með lækninum í eldhúsinu

    Ragnar Freyr Ingvarsson er gesturinn í þessum þætti. Ragnar er betur þekktur af mörgum sem Læknirinn í eldhúsinu. Hann er sérfræðingur í gigtarlækningum og starfar við það á daginn en hefur á sama tíma gríðarlega ástríðu fyrir eldamennsku. Hann hefur gefið út 3 frábærar uppskriftarbækur, haldið fyrirlestra um mataræði og síðan er hann einnig með blogg á netinu þar sem hann heldur utan um ævintýrin í eldhúsinu. Við Ragnar spjölluðum um ýmis mál tengd heilsu, mataræði og eldamennsku.

    1 hr 3 min
  • #1. Hvað er 360° Heilsa?

    Í þessum fyrsta þætti langar mig að kynna fyrir þér conceptið mitt 360° heilsa. Hvað þýðir það og hvernig getur það hjálpað þér að ná betri árangri og betri tökum á eigin heilsu.

    22 min

About 360 Heilsa

From the publisher's feed

Hér finnur þú allt sem snýr að bættri heilsu, bættum árangri og betri líðan. Hlustaðu á viðtöl við allskyns sérfræðinga á sviði líkamsræktar og heilsu til að fá nýjustu upplýsingar og vísindi beint í…

More shows like 360 Heilsa

Hlaupalíf Hlaðvarp by Vilhjálmur Þór og Elín Edda

Hlaupalíf Hlaðvarp

5 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Draugar fortíðar by Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

72 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

13 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

9 Listeners