Heimskviður

86 | Þingmaður sem öllu ræður, ráðist á fótboltakonu, konur í myndlist


Listen Later

Hver hefur raunverulega völdin í Hvíta húsinu í Bandaríkjunum? Þó að Joe Biden sé forseti hefur einn af flokksbræðrum hans í öldungadeildinni, Joe Manchin, verið ötull við að nýta sér þann nauma meirihluta sem Demókratar hafa þar til að knýja fram ýmsar breytingar á málum sem forsetinn hefur lagt fyrir þingið - og jafnvel stoppa þau. Eitt af þeim eru miklar umbætur í loftslagsmálum sem núna virðast stranda á Manchin og gefið hefur verið í skyna að skýringanna sé að leita í hagsmunum hans sjálfs. Hallgrímur Indriðason fjallar um málið.
Ein besta knattspyrnukona Frakklands varð fyrir fólskulegri líkamsárás á dögunum. Fljótlega beindist grunur að liðsfélaga hennar bæði í landsliði og félagsliði, og gerðu fjölmargir evrópskir fjölmiðlar að því skóna að afbryðissemi og óhófleg metnaðargirnd væru ástæður árásarinnar og báru málið saman við það þegar fyrrum eiginmaður listskautadansarans Tonyu Harding slasaði keppinaut hennar, Nancy Kerrrigan um miðbik tíunda áratugs síðustu aldar, með þeim afleiðingum að Harrigan varð að draga sig úr keppni á bandaríska meistaramótinu. En þetta forvitnilega mál er víst ekki alveg svo einfalt, eins og Guðmundur Björn Þorbjörnsson komst að.
Sjálfsportrett eftir mexíkósku listakonuna Fridu Kahlo seldist fyrir metfré á uppboði í Bandaríkjunum á dögunum. Kahlo var einn þekktasti málari síðastliðinnar aldar, en önnur eldri málverk eftir konur seljast nú mun betur og fyrir talsvert hærra verð en nokkru sinni áður. Þessa breytingu má merkja í flestum uppboðshúsum heims. Enn munar þó miklu sé verðmiðinn borinn saman við listaverk eftir karla. Sama þróun er að verða þegar hlutur kvenna í fastasýningum á stórum söfnum er annars vegar. Árið 1997 voru verk kvenna að meðaltali 1% af fastasýningum á stórum alþjóðlegum söfnum. Árið 2020 var hlutfallið 25%. Birta Björnsdóttir fjallar um málið og ræðir meðal annars við Ólöfu Kristínu Sigurðardóttur, forstöðumann Listasafns Reykjavíkur.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

15 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

482 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

25 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

93 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

33 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

36 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners