Heimskviður

87 | Grænlensku tilraunabörnin og hvar er Peng Shuai?


Listen Later

Við hefjum Heimskviður í dag í Kína. Kínverska tennisstjarnan Peng Shuai greindi frá því í upphafi mánaðar að hátt settur kínverskur ráðamaður og fyrrum varaforseti landsins, hefði brotið á henni kynferðislega. Peng greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Weibo, og einungis 30 mínútum síðar var færsla hennar horfin. Ekkert spurðist til Peng svo vikum skipti. Í fyrri hluta þáttarins er rætt við Öldu Elísu Andersen, alþjóðastjórnmálafræðing um ritskoðun í Kína, mál Peng Shuai og hvers vegna #meToo byltingin á undir högg að sækja í þessa fjölmennasta ríki heims.
Í síðari hluta þáttarins bregðum við okkur til Grænlands. Árið 1951 voru 22 grænlensk börn tekin frá fjölskyldum sínum og flutt til Danmerkur. Tilgangurinn var að kenna þeim dönsku svo þau gætu snúið aftur heim og hjálpað dönskum stjórnvöldum að færa Grænland nær nútímanum. Tilraunin mistókst og börnin hafa flest liðið mikið fyrir tilraunina. Í fyrra baðst Mette Frederiksen afsökunar á þessari tilraun fyrir hönd dönsku stjórnarinnar. Nú hafa sex af grænlensku tilraunabörnunum svokölluðu farið fram á bætur frá danska ríkinu vegna vistaskiptanna.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimskviðurBy RÚV

  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3
  • 4.3

4.3

15 ratings


More shows like Heimskviður

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

482 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

25 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

93 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

33 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

36 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners