Á þessu ári er þess minnst að 250 ár eru liðin frá fæðingu dansk-íslenska myndhöggvarans Thorvaldsens, en hann fæddist 19. nóvember 1770. Thorvaldsen var einn frægasti myndhöggvari heims á 19. öld, en hitt vita færri að Thorvaldsen hafði líka tónlistarhæfileika og lék á gítar, fiðlu og flautu. Leikin verður tónlist sem tengist Thorvaldsen, meðal annars úr handskrifaðri nótnabók hans fyrir gítar sem inniheldur verk eftir ýmis 18. aldar tónskáld. Thorvaldsen kynntist frægum tónskáldum, svo sem Felix Mendelssohn, sem lék á píanó fyrir hann meðan hann vann að myndverkum sínum og Gaetano Donizetti, sem samdi afmælissöng honum til heiðurs. Einnig verður flutt brot úr leikhúsforleiknum sem verið var að flytja þegar Thorvaldsen lést, en dauða hans bar brátt að, hann hneig niður á sýningu í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn 24. mars 1844, og var ekki búið að leika forleikinn til enda þegar andlátsfregnin barst frá manni til manns á leikhúsbekkjunum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Anna Marsibil Clausen.