Á nýliðnu ári, 2020, voru liðin 400 ár frá því að tónskáldið Isabella Leonarda fæddist. Hún fæddist 6. september 1620 í Novara á Ítalíu, gekk í klaustur 16 ára og var nunna allt til dauðadags 1704. En í klaustrinu lagði hún mikla stund á tónlist og samdi um 200 verk, bæði söngverk og hljóðfæraverk, og þar á meðal eru fyrstu sónötur konu sem gefnar voru út, sónötur Isabellu Op.16 sem út komu 1693. Flutt verða nokkur af tónverkum Isabellu, meðal annars sónötur sem kammersveitin Reykjavík Barokk flutti á Sumartónleikum í Skálholti 2016. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.