Á síðasta áratug 19. aldar stunduðu þrír ungir menn nám við Konunglega tónlistarskólann í Lundúnum og höfðu allir sama tónsmíðakennara: Charles Villiers Stanford. Þetta voru Ralph Vaughan Williams, Gustav Holst og William Yeates Hurlstone, en hinn síðastnefndi var þeirra hæfileikaríkastur að mati kennarans. Hurlstone lést hins vegar árið 1906, aðeins þrítugur að aldri, og frægðin féll ekki honum í skaut, heldur hinum tveimur. Í þættinum „Á tónsviðinu“, fim. 10. september, verður flutt tónlist eftir þá alla: einsöngslög eftir Vaughan Williams, kórlög eftir Holst og fagottsónata eftir Hurlstone. Einnig verða flutt sönglög eftir kennarann, Charles Villiers Stanford. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.