„Fidelio“ var eina ópera Beethovens og var frumsýnd árið 1805, en hann gerði síðar breytingar á henni og endanleg gerð óperunnar var frumsýnd 1814. Óperan er byggð á texta eftir Jean-Nicolas Bouilly og fjallar um hugrakka konu, Leónóru, sem bjargar eiginmanni sínum úr fangelsi. En Beethoven var ekki fyrstur til þess að nota þessa sögu, þrír tónsmiðir höfðu orðið á undan honum til þess að semja óperu um Leónóru. Einn þeirra var Ferdinando Paër, en ópera hans, „Leónóra“, var frumflutt 1804. Beethoven þekkti Paër og mat hann mikils, jafnvel er talið að hann hafi orðið fyrir nokkrum áhrifum frá óperu Paërs þegar hann samdi „Fidelio“. Á liðnu ári var „Leónóra“ eftir Paër gefin út á geislaplötum og í þættinum „Á tónsviðinu“ verða flutt atriði úr báðum óperunum: „Leónóru“ eftir Paër og „Fidelio“ eftir Beethoven, svo að hlustendum gefist tækifæri til þess að bera óperurnar saman.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.